Karl Garðarsson ráðinn yfir miðla Pressunnar

Fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Frjálsrar fjöl­miðl­unar, sem nýverið keyptu miðla Pressu­sam­stæð­unnar.

Karl Garðarsson var þingmaður Framsóknarflokksins á síðasta kjörtímabili.
Karl Garð­ars­son var þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á síð­asta kjör­tíma­bili. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Frjáls fjöl­miðlun hefur ráðið Karl Garð­ars­son, fyrr­ver­andi þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem fram­kvæmda­stjóra. Karl leiddi lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í kosn­ing­unum í fyrra­haust en náði ekki kjöri. Frjáls fjöl­miðlun keypti í síð­ustu viku fjöl­miðl­anna Pressu­sam­stæð­unnar: DV, DV.is, Eyjuna, Pressuna, Bleikt, Birtu, Doktor.is, 433.is og sjón­varps­stöð­ina ÍNN. Karl mun bera ábyrgð á dag­legum rekstri allra miðla Frjálsrar fjöl­mið­unar.

[links]Samkvæmt til­kynn­ingu var kaup­verðið fyrir þessa miðla Pressunn­ar á sjötta hund­rað millj­ónir króna. Greitt var fyrir miðl­anna með reiðufé auk yfir­töku skulda. Ekki hefur verið opin­berað hverjir eig­endur Frjálsrar fjöl­miðl­unar en lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son er for­svars­maður þess.

Miðl­arnir voru keyptir af félag­inu Press­unni en og hluti skulda hennar voru skildar eftir þar. Fjár­mun­irnir sem greiddir voru fyrir miðl­ana voru m.a. not­aðir til að greiða upp opin­ber gjöld sem voru í van­skilum við toll­stjóra. Sú skuld hljóp á hund­ruð millj­ónum króna. Toll­stjór­inn í Reykja­vík hafði lagt fram gjald­þrota­beiðni á hendur Press­unni fyrir hér­aðs­dómi vegna þess og átti að taka hana fyrir í síð­ustu viku. Sú beiðni var aft­ur­kölluð eftir að Sigurður greiddi þá skuld sem var for­senda hennar.

[adspot]

Í frétt á Eyjunni, sem til­heyrir nú Frjálsri fjöl­miðlun, segir að stefnt sé að því að efla starf­semi félags­ins á næstu miss­erum. Um Karl segir að hann hafi: „tæp­lega ald­ar­fjórð­ungs starfs­reynslu í íslenskum fjöl­miðlum. Þannig var hann einn af fyrstu frétta­mönnum Bylgj­unnar og síðar frétta­maður og frétta­stjóri Stöðvar 2 um ára­bil. Hann var síðan fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­svið Norð­ur­ljósa.

Þá var Karl einn stofn­enda, fram­kvæmda­stjóri og rit­stjóri Blaðsins/24 stunda, sem síðar var selt til Árvakurs hf. Hann var útgáfu­stjóri prent­miðla Árvakurs um tíma. Karl var alþing­is­maður árin 2013-2016 og for­maður Íslands­deildar Evr­ópu­ráðs­þings­ins á sama tíma.“

Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Karl og Sigurður G. Guð­jóns­son vinna saman. Árið 2005 stofn­uðu þeir frí­blaðið Blaðið saman sem stefnt var í sam­keppni við Frétta­blaðið á frí­blaða­mark­aði. Þeir seldu það síðar til Árvakurs og Blaðið breytt­ist í 24 stundir. Það var fyrsti fjöl­mið­ill­inn sem lagður var niður eftir hrunið, en útgáfu 24 stunda var hætt í neyð­ar­laga­vik­unni. Sigurður var einnig for­stjóri Norð­ur­ljósa, sem síðar urðu 365 miðlar, þegar Karl var frétta­stjóri frétta­stofu Stöðvar 2 á árunum 2002-2004.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár