Mynd: Gunnar Vigfússon

Hverjir eru ráðherrarnir í nýrri ríkisstjórn?

Fyrsta ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar tók form­lega við á mið­viku­dag. Í því sitja ell­efu ráð­herrar. Kjarninn kann­aði hvaða fólk þetta er.

Ellefu ráð­herrar sitja í nýrri rík­is­stjórn Íslands sem starfar undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ráð­herr­arnir fund­uðu í fyrsta sinn með Guðna Th. Jóhann­essyni á rík­is­ráðs­fundi á Bessa­stöðum mið­viku­dag­inn 11. jan­úar. Tveir ráð­herr­anna sátu í rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sem var veitt lausn fyrr þennan dag. Það eru Bjarni Bene­dikts­son og Kristján Þór Júl­í­us­son sem báðir taka að sér ný ráðu­neyti.

Þrír flokkar mynda meiri­hlut­ann á Alþingi sem veitir stjórn­inni umboð sitt. Það eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Viðreisn og Björt fram­tíð. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skipar sex ráð­herra, Viðreisn skipar þrjá og Björt fram­tíð tvo. Fjórar konur og sjö karlar hljóta ráð­herra­dóm í rík­is­stjórn­inni, þar á meðal yngsta konan til að gegna ráð­herra­emb­ætti í sögu lýð­veld­is­ins. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir fær þann heiður því hún er aðeins 29 ára gömul. Aðeins einn ráð­herra hefur verið yngri en hún, en Eysteinn Jónsson var 27 ára gam­all þegar hann tók við emb­ætti fjár­mála­ráð­herra 1934.

Sjö ráð­herr­anna hafa aldrei gengt ráð­herra­emb­ætti áður. Það eru Þórdís Kolbrún, Sigríður Andersen, Jón Gunn­ars­son, Óttarr Proppé, Benedikt Jóhann­es­son, Björt Ólafs­dóttir og Þor­steinn Víglunds­son. Þau Þórdís Kolbrún, Benedikt og Þor­steinn tóku sæti á Alþingi í fyrsta sinn eftir kosn­ing­arnar í haust.

Öll þau sem taka sæti í rík­is­stjórn eru að taka við nýjum mála­flokkum sem þau hafa ekki verið ráð­herrar yfir áður. Bjarni fer úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu í for­sæt­is­ráðu­neytið, Kristján Þór tekur við mennta­málum eftir að hafa verið heil­brigð­is­ráð­herra í síð­ustu rík­is­stjórn og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir verður sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra en hún var mennta­mála­ráð­herra frá 2003-2009.

Þetta er jafn­framt fyrsta rík­is­stjórnin sem Guðni Th. Jóhann­es­son skipar sem for­seti Íslands en hann tók við búinu á Bessa­stöðum 1. ágúst í fyrra. Þá hafði Sigurður Ingi Jóhanns­son stýrt ráðu­neyti sínu frá í apríl.

Nánar má lesa um rík­is­stjórnir Íslands á vef Stjórn­ar­ráðs­ins. Hér að neðan er stutt umfjöllun um hvern ráð­herra fyrir sig, unnin upp úr ævi­á­gripum þeirra á vef Alþingis. Myndina að ofan tók Gunnar Vig­fús­son, en hann hefur myndað allar rík­is­stjórnir síðan 1973.

Bjarni er fæddur í Reykja­vík 26. jan­úar 1970. Bjarni tók fyrst sæti á Alþingi árið 2003 fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og svo rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar árin 2013-2017. Hann var for­maður alls­herj­ar­nefndar Alþingis árin 2003-2007. Bjarni hefur verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan 2009.

Bjarni lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík árið 1989 og lauk lög­fræði­f­prófi í Háskóla Íslands árið 1995. Hann hlaut LL.M.-gráðu í lög­fræði frá Uni­versity of Miami School of Law í Banda­ríkj­unum árið 1997. Hér­aðs­dóms­lög­manns­rétt­indi árið 1998.

Benedikt er fæddur í Reykja­vík 4. maí 1955. Benedikt var fyrst kjör­inn á Alþingi eftir kosn­ing­arnar haustið 2016 fyrir nýtt fram­boð Við­reisnar. Hann situr sem þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis. Þegar þing kom saman í vetur sat hann sem for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis. Áður en Benedikt tók sæti á Alþingi hefur hann setið í og gengt for­mennsku í stjórnum all­margra fyr­ir­tækja. Hann er fram­kvæmda­stjóri Útgáfu­fé­lags­ins Heims síðan árið 2000 og hefur stýrt ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Talna­könnun sem hann stofn­aði sjálfur árið 1984. Benedikt varð fyrsti for­maður Við­reisnar árið 2016.

Benedikt lauk stúd­ents­prófi frá MR árið 1975 og B.Sc.-prófi í stærð­fræði og hag­fræði frá Uni­versity of Wisconsin árið 1977. Hann hlaut meist­ara­próf í töl­fræði frá Florida State Uni­versity árið 1979 og dokt­ors­prófi í töl­fræði sem aðal­grein og stærð­fræði sem auka­grein frá sama skóla árið 1981.

Óttarr er fæddur í Reykja­vík 7. nóv­em­ber 1968. Hann var fyrst kjör­inn á þing úr Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður árið 2013 fyrir Bjarta fram­tíð en er nú odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og er for­maður Bjartrar fram­tíðar síðan 2015. Óttarr var kjör­inn borg­ar­full­trúi fyrir Besta flokk­inn árið 2010 og sat í borg­ar­stjórn þar til hann sett­ist á Alþingi. Óttarr er einnig þekktur sem tón­list­ar­maður með hljóm­sveit­unum HAM, Dr. Spock, Rass og fleiri frá 1988. Hann hefur einnig feng­ist við fleiri list­greinar.

Óttarr lauk prófi frá Penn­ridge High School í Pennsil­vaníu í Banda­ríkj­unum árið 1986.

Þor­gerður Katrín er fædd í Reykja­vík 4. októ­ber árið 1965. Hún var fyrst kjörin á þing sem þing­maður Reyknes­inga árið 1999 og síðar sem þing­maður Suð­vest­ur­kjör­dæmis frá 2003 til 2013 fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hún gaf ekki kost á sér í kosn­ing­unum árið 2013 og gekk til liðs við Viðreisn árið 2016 og situr nú aftur sem þing­maður Suð­vest­ur­kjör­dæmis. Hún var mennta­mála­ráð­herra fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn árin 2003 til 2009. Þor­gerður Katrín var for­maður alls­herj­ar­nefndar Alþingis og for­maður Íslands­deildar þing­manna­nefndar EFTA árin 1999-2003.

Þor­gerður Katrín lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum við Sund árið 1985 og lög­fræði­prófi frá Háskóla Íslands árið 1993.

Þórdís Kolbrún er fædd á Akranesi 4. nóv­em­ber 1987. Hún var fyrst kjörin á þing í kosn­ing­unum 2016 og situr sem þing­maður Norð­vest­ur­kjör­dæmis. Hún var aðstoð­ar­maður Ólafar Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra, 2014 til 2016 og fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins árin 2013 til 2014. Hún var lög­fræð­ingur hjá úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála árin 2011-2012. Þórdís Kolbrún hefur einnig gengt fleiri trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Þórdís Kolbrún lauk stúd­ents­prófi frá Fjöl­brauta­skóla Vest­ur­lands árið 2007 og BA-prófi í lög­fræði frá Háskól­anum í Reykja­vík árið 2010 og svo ML-prófi árið 2012. Hún var í skipti­námi í lög­fræði í Salzburg árið 2011.

Sigríður er fædd í Reykja­vík 21. nóv­em­ber 1971. Hún tók fyrst sæti á Alþingi við and­lát Péturs Blöndal árið 2015. Þá hafði hún tekið sæti á Alþingi sem vara­þing­maður frá 2008. Hún hefur starfað sem lög­fræð­ingur og lög­maður hjá Versl­un­ar­ráði Íslands 1999-2005, í dóm­stóla­ráði 2004-2009 og sem hér­aðs­dóms­lög­maður hjá LEX 2007-2015. Sigríður var í stjórn útgáfu­fé­lags­ins Andríkis árin 1995-2006 og í rit­stjórn Vef­þjóð­vilj­ans árin 1995-2006. Hún hefur einnig gengt trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Sigríður lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík árið 1991 og lög­fræði­prófi frá Háskóla Íslands árið 1999. Hún hlaut hér­aðs­dóms­lög­manns­rétt­indi árið 2001.

Jón er fæddur í Reykja­vík 21. sept­em­ber 1956. Hann hefur verið Alþing­is­maður fyrir Suð­vest­ur­kjör­dæmi síðan 2007. Hann var for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis og for­maður Íslands­deildar þing­manna­ráð­stefn­unnar um norð­ur­skauts­mál frá 2013 til 2016. Jón hefur starfað sem bóndi, yfir­maður aug­lýs­inga- og áskrift­ar­deildar Stöðvar 2, mark­aðs­stjóri prent­smiðj­unnar Odda og fram­kvæmda­stjóri Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar. Hann hefur einnig gengt fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum í hinum ýmsu björg­un­ar­sveitum og fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Jón er með próf frá málm­iðn­að­ar­deild Iðn­skól­ans í Reykja­vík frá 1975 og með próf í rekstrar- og við­skipta­fræðum frá End­ur­menntun Háskóla Íslands árið 1996.

Kristján Þór er fæddur á Dalvík 15. júlí 1957. Hann hefur verið Alþing­is­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis síðan 2007 og var heil­brigð­is­ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili. Hann var bæj­ar­stjóri Dalvíkur 1986-1994, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðar 1994-1997 og bæj­ar­stjóri Akur­eyr­ar­bæjar 1998-2007. Áður starf­aði hann sem stýri­maður og skip­stjóri á skipum frá Dalvík og svo sem kenn­ari við Stýri­manna­skól­ann á Dalvík. Hann hefur einnig setið í stjórnum ýmissa fyr­ir­tækja og félaga tengdum sjáv­ar­út­vegi. Kristján Þór hefur einnig gengt trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Kristján Þór lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum á Akureyri árið 1977 og skip­stjórn­ar­prófi frá Stýri­manna­skól­anum í Reykja­vík árið 1978. Hann lagði stund á nám í íslensku og almennum bók­menntum við Háskóla Íslands og lauk kennslu­rétt­inda­prófi þaðan árið 1984.

Björt er fædd á Torfa­stöðum í Bisk­ups­tungum 2. mars 1983. Hún hefur verið Alþing­is­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norður síðan árið 2013. Áður en hún tók sæti á Alþingi starf­aði hún sem með­ferð­ar­full­trúi við Með­ferð­ar­heim­ilið Torfa­stöðum 1997 til 2004 og sem stuðn­ings­full­trúi og verk­efna­stjóri á geð­deildum Land­spít­al­ans með námi 2006 til 2009. Hún starf­aði svo við við­skipta­þróun og mannauðs­mál hjá Vinun árin 2010 og 2011 og varð svo mannauðs- og stjórn­un­ar­ráð­gjafi hjá Capacent 2011 til 2013. Hún var for­maður Geð­hjálpar árin 2011 til 2013.

Björt lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð árið 2003 og BA-prófi í sál­fræði og kynja­fræði frá Háskóla Íslands árið 2007. Hún lauk meist­ara­prófi í mannauðs­stjórnun frá Háskól­anum í Lundi árið 2008.

Guð­laugur Þór er fæddur í Reykja­vík 16. des­em­ber 1967. Hann hefur verið þing­maður Reyk­vík­inga síðan 2003. Hann var heil­brigðis- og trygg­inga­mála­ráð­herra 2007-2008 og heil­brigð­is­ráð­herra 2008-2009. Hann borg­ar­full­trúi í Reykja­vík 1998-2006. Áður en Guð­laugur Þór tók sæti á þingi sinnti hann ýmsum störfum hjá fjár­mála­fyr­ir­tækjum og trygg­inga­fé­lögum. Guð­laugur Þór hefur einnig sinnt ýmsum trún­að­ar­störfum innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann var for­maður umhverf­is­nefndar Alþingis 2004-2007, for­maður Íslands­deildar þing­manna­nefndar EFTA 2003-2007, for­maður Íslands­deildar þing­manna­nefndar EFTA og EES 2013-2016 og for­maður þing­manna­nefndar Íslands og ESB 2013-2016. Guð­laugur hefur gengt for­mennsku og átt sæti í stjórnum alþjóð­legra stjórn­mála­hreyf­inga.

Guð­laugur Þór lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum á Akureyri árið 1987 og BA-prófi í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands árið 1996.

Þor­steinn er fæddur á Sel­tjarn­ar­nesi 22. nóv­em­ber 1969. Hann tók sæti á Alþingi í fyrsta sinn eftir kosn­ing­arnar 2016 sem þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norður. Hann starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins 2013-2016. Áður hafði hann starfað sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka álf­ram­leið­enda 2010-2013, fram­kvæmda­stjóri BM Vallár hf. 2002-2010 og sem for­stöðu­maður hjá Kaup­þingi í Lúxembourg 1998-2002. Hann hefur setið í stjórn Samtaka iðn­að­ar­ins, Iðunnar, fræðslu­set­urs og Virk – starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóðs auk þess að hafa verið vara­for­maður og for­maður líf­eyr­is­sjóðs­ins Gildis árin 2014-2016.

Þor­steinn lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Reykjvík árið 1990 og BA-prófi í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands 1995. Þá hefur hann AMP frá IESE Business School, Uni­versity of Navarra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár