Vegagerðin líti ásakanir um óheiðarleg vinnubrögð starfsmanna alvarlegum augum

Nið­ur­staða kæru­nefndar útboðs­mála vegna kæru sem barst vegna hönn­un­ar­sam­keppni Foss­vogs­brúar liggur fyrir. Kærunni var vísað frá og skaða­bóta­skyldu hafnað. For­stjóri Vega­gerð­ar­innar fagnar nið­ur­stöð­unni.

Fyrirhuguð Fossvogsbrú, eins og hún leit út á teikningum frá Eflu, sem varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppninni í fyrra.
Fyr­ir­huguð Foss­vogs­brú, eins og hún leit út á teikn­ingum frá Eflu, sem varð hlut­skörpust í hönn­un­ar­sam­keppn­inni í fyrra. Mynd: Efla

Kæru­nefnd útboðs­mála hefur vísað frá kæru arki­tekta­stof­unnar Úti og Inni vegna hönn­un­ar­sam­keppni um Foss­vogs­brú, sem lögð var fram undir lok síð­asta árs, og hafnað kröfu arki­tekta­stof­unnar um skaða­bóta­skyldu. Úrskurður kæru­nefnd­ar­innar var birtur á mánu­dag.

Í til­kynn­ingu á vef Vega­gerð­ar­innar er haft eftir Bergþóru Þor­kels­dóttur for­stjóra stofn­un­ar­innar að hún sé ánægð með nið­ur­stöð­una og að kæran hafi verið mjög ómál­efna­leg. „Vega­gerðin lítur það mjög alvar­legum augum þegar starfs­menn hennar eru sak­aðir um óheið­ar­leg vinnu­brögð líkt og gert var í umræddri kæru. Það var alla tíð aug­ljóst að ekki væri hægt að kom­ast að annarri nið­ur­stöðu en nefndin komst að,“ er haft eftir Bergþóru.

Kæran var lögð fram gegn Vega­gerð­inni, Reykja­vík­ur­borg, Kópa­vogsbæ, Rík­is­kaupum og verk­fræði­stof­unni Eflu og hafði kær­andi auk ann­ars kraf­ist ógild­ingar á hönn­un­ar­sam­keppn­inni, vegna fyrri vinnu Eflu við und­ir­bún­ing Foss­vogs­brúar og náin tengsl lyk­il­fólk hjá Vega­gerð­inni við verk­fræði­stof­una.

[adspot]

Kjarninn fjall­aði um efni kærunnar í apr­íl­mán­uði, en þetta var önnur kæran sem barst frá þessum sömu aðilum vegna hönn­un­ar­sam­keppni um Foss­vogs­brú. Sú fyrri end­aði með því að fram­kvæmd fyrri hönn­un­ar­sam­keppni brúar yfir Fossvog var ógilt og ferlið komst á byrj­un­ar­reit.

Í hinni nýju nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar segir að kæru­frestur vegna hluta þeirra athuga­semda kær­anda sem settar voru fram hafi verið lið­inn er kæran barst til nefnd­ar­innar 17. des­em­ber í fyrra. Sú nið­ur­staða kæru­nefnd­ar­innar á við um athuga­semdir frá Úti og Inni vegna mats á til­lögu fyr­ir­tæk­is­ins í hönn­un­ar­sam­keppn­inni, sem og meintum hug­verka- og hug­mynda­stuldi. [links]

Aðrar athuga­semdir kær­anda, um ætlað van­hæfi dóm­nefnd­ar­manna og um brot á jafn­ræði í hönn­un­ar­sam­keppni, voru taldar hafa borist innan kæru­frests. Kæru­nefndin taldi hins vegar að ekki hefði verið sýnt fram á það með neinum hald­bærum hætti að brotið hefði verið gegn lögum um opin­ber inn­kaup eins og kær­andi vildi meina, og hafn­aði því kröfu arki­tekta­stof­unnar um við­ur­kenn­ingu skaða­bóta­skyldu Vega­gerð­ar­innar og ann­arra varn­ar­að­ila í mál­inu.

Í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar segir meðal ann­ars að meta þurfi í hverju og einu til­viki hvort fyr­ir­tæki sem hafi komið að und­ir­bún­ingi verk­efnis sem þessa, sem óum­deilt er að Efla gerði, hafi með því í raun búið yfir ólög­mætu for­skoti. „Eins og hér háttar til þykir fátt renna stoðum undir mála­til­búnað kær­anda að svo hafi verið,“ segir kæru­nefndin við því.

Kæru­nefndin fellst þó á það með arki­tekta­stof­unni að breyt­ingar á skil­málum hönn­un­ar­sam­keppn­innar svipi að vissu leyti til þeirra hug­mynda sem stofan lagði fram í fyrri hönn­un­ar­sam­keppni um Foss­vogs­brúnna. „Á hinn bóg­inn fæst ekki séð að sú breyt­ing geti talist hafa dregið taum Eflu sér­stak­lega,“ segir í nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar.

Kæru­nefnd útboðs­mála þótti rétt að máls­kostn­aður í mál­inu félli niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framkvæmdamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár