Allt sem þú vildir vita um brúðkaup ársins í dag

Harry Breta­prins mun í dag ganga að eiga banda­rísku leikkon­una Meghan Markle í Windsor á Englandi. Kjarninn tók saman allt sem þú þarft að vita um dag­inn og fyr­ir­komu­lag á hátíð­ar­hald­anna, sem og brúð­hjónin sjálf.

Harry Breta­prins mun í dag ganga að eiga banda­rísku leikkon­una Meghan Markle í kapellu heilags Georgs í Windsor á Englandi.

Búist er við miklum her­leg­heitum og mann­fjölda bæði við athöfn­ina og veisl­una, enda hefur breska þjóðin beðið eftir þessum degi í um fimm mán­uði frá því trú­lofun þeirra var kynnt í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Hafði prins­inn þá upp­lýst drottn­ing­una ömmu sína um fyr­ir­ætl­anir sínar auk þess sem hann mun hafa beðið for­eldra Meghan bless­unar. Hjóna­efnin hafa síðan ferð­ast víða um Bretland á mán­uð­unum sem liðið hafa og lýst yfir sér­stöku þakk­læti fyrir hversu vel breska þjóðin hefur tekið á móti þess­ari verð­andi banda­rísku tengda­dóttur sinni.

Stóri dagurinn

Brúð­kaupið sjálft og brúð­kaups­dag­ur­inn allur verður sam­kvæmt ströng­ustu hefðum, með­fram því að reynt verður að leyfa per­sónu­leikum prins­ins og Markle að skína í gegn. Varn­ar­mála­ráðu­neyti Englands sem og skrif­stofa kon­ung­dæm­is­ins sjá um skipu­lagn­ingu hátíð­ar­hald­anna.

Athöfnin hefst í kapell­unni á hádegi að stað­ar­tíma, ell­efu að íslenskum, og verður fram­kvæmd af tveimur prestum, þar á meðal erki­bisk­upnum af Canterbury sem mun gefa hjónin saman. Harry sjálfur var skírður í þess­ari kapellu og ýmsar aðrar kon­ung­legar athafnir hafa farið fram þar í gegnum tíð­ina, þar á meðal hjóna­vígsla Karls föður hans og Camillu Parker-Bowles árið 2005.

Meira en 250 her­menn munu taka þátt í helgi­hald­inu, þar á meðal her­menn sem gegndu her­þjón­ustu með Harry sjálfum á sínum tíma. Klukkan eitt, eftir athöfn­ina, munu hjónin ferð­ast um Windsor í hest­vagni þar sem þau munu gefa almenn­ingi kost á að berja þau augum og taka þannig þátt í hátíð­ar­höld­unum.

Harry og Megan hafa gefið það út að þau vilji gefa almenn­ingi eins mik­inn þátt í deg­inum og mögu­legt er.

Þannig hefur 2.640 manns verið boðið að mæta inn á jörð­ina við Windsor kast­ala til að fylgj­ast með komu brúð­hjón­anna sem og form­legu gest­anna. Um er að ræða 1.200 manns víðs vegar að frá Stóra-Bret­landi. Ein­stak­ling­arnir hafa verið valdir úr breiðum hópi fólks, með mis­mun­andi bak­grunn og á mis­mun­andi aldri og sér­stak­lega ein­stak­lingar sem hafa þjónað nær­sam­fé­lagi sínu með ein­hverjum hætti. Þá hafa 200 manns verið valdir úr ýmiss konar góð­gerð­ar­starf­semi og félaga­sam­tökum sem Harry og Meghan völdu. Í hópnum verða einnig 100 nem­endur úr tveimur skólum í nágrenni kast­al­ans, 610 manns sem starfa í og við kast­al­ann og 530 manns sem telj­ast til kon­ungs­legs starfs­fólks.

Þá hefur 600 gestum verið boðið sem form­legum veislu­gestum bæði í athöfn­ina sjálfa og til veisl­unnar. Gestir þessir munu mæta í hádeg­is­verð­ar­boð sem drottn­ingin heldur í St. George sal í Windsor kast­ala (sem er 55,5 metra langur og 9 metra breiður) og tekur 160 manns í sæti. Síðar um kvöldið hefur 200 manns verið boðið í einka­veislu í Frogmore House sem land­ar­eign stað­sett nokkrum kíló­metrum frá Windsor.

Boðskortin voru send út til gesta í mars og fram­leidd af fyr­ir­tæk­inu Barnard & Westwood. Letrið er prentað með gulli og ber meðal ann­ars merki Prinsins af Wales.

Sjö bak­arar sjá um brúð­artert­una, en aðal­bak­ar­inn er Clarie Ptak, eig­andi Violet Bakery í Austur-London. Þau hafa unnið að kök­unni alla vik­una í eld­húsum Buckingham-hall­ar­innar, en sítrónur og ylli­blóm eru í aðal­hlut­verki.

Harry prins valdi, engum að óvörum, bróður sinn her­tog­ann af Cambridge Vilhjálm, sem svara­mann sinn í brúð­kaup­inu.

Meghan hins vegar valdi sér enga aðal­brúð­ar­mær, eða maid of honour, þar sem hún vildi ekki gera upp á milli nán­ustu vin­kvenna sinna.

Fjöl­skylda brúð­hjón­anna beggja mun taka virkan þátt í hátíð­ar­höld­unum, þar á meðal öll þrjú systk­ini Díönu prinsessu heit­innar, sem og fjöl­skylda Meghan, þó að faðir hennar verði víðs­fjarri sökum heilsu­tengdra vanda­mála að sögn upp­lýs­inga­full­trúa Kens­ington­hall­ar­búa.

Það kom einnig fáum á óvart þegar til­kynnt var að börn Vil­hjálms Breta­prins og eig­in­konu hans Katrínar munu gegna hlut­verki brúð­ar­meyja- og sveina. Þau George 4 ára og Charlotte 3 ára eru meðal tíu barna, öll yngri en 10 ára sem munu ganga með Meghan niður kirkju­gólfið. Hin börnin eru börn vina brúð­hjón­anna, frændur og frænkur. Díana prinsessa, móðir Harry, hafði sama hátt­inn á þegar hún gift­ist Karli föður Harry.

Upp­haf­lega þegar til­kynnt var um trú­lofun hennar og Harry voru fluttar af því fréttir að Meghan vildi helst að móðir hennar leiddi hana upp að alt­ar­inu.

Það varð hins vegar fljótt ljóst að hátt­ern­is­reglur kon­ungs­fjöl­skyld­unnar gerðu ekki ráð fyrir því að mæður leiði dætur sínar upp að alt­ar­inu og því var til­kynnt að faðir Meghan myndi sjá um það á brúð­kaups­dag­inn. Síðasta fimmtu­dag var hins vegar send út nokkuð óljós yfir­lýs­ing þar sem til­kynnt var að Thomas Markle myndi ekki mæta í brúð­kaupið í dag. „Mér hefur alltaf þótt vænt um föður minn og vona að hann fái rými til að huga að heils­unni,“ var haft eftir Meghan vegna máls­ins.

Hug­leið­ingar um hver muni sjá um að leiða Meghan upp alt­arið hafa helst snú­ist um að móðir hennar muni, hvað sem hátt­ern­is­reglum líður, taka að sér hlut­verkið og auk þess hefur Karl Breta­prins, verð­andi tengda­faðir hennar, einnig verið nefndur. Í gær var svo til­kynnt um að Meghan hafi beðið Karl um að sjá um þetta, sem hann mun hafa sam­þykkt með mik­illi ánægju.

Félagar Meghan úr sjón­varps­þátta­ser­í­unni Suits hafa verið að birta myndir af sér á leið til Englands und­an­farna daga og gert er ráð fyrir því að þau fjöl­menni í veislu­höldin í dag.

Mikar vanga­veltur hafa verið uppi um fatn­að­inn sem Meghan mun klæð­ast í dag. Tísku­tíma­ritið Glamour sagði frá því í vik­unni að flestir veðj­uðu á ástr­alska hönn­un­ar­dúóið Ralph&Russo, en merkið er í upp­há­haldi hjá Markle og klædd­ist hún kjól frá þeim þegar þau til­kynntu um trú­lof­un­ina.

Kjóll svil­konu hennar, Katrínar, vakti mikla athygli þegar hún gift­ist Vil­hjálmi árið 2011. Hennar kjól hann­aði breski fata­hönn­uð­ur­inn Sarah Burton, sem var list­rænn stjórn­andi tíku­húss­ins Alex­ander McQueen.

Hver er Meghan Markle?

Prinsessan til­von­andi heitir fullu nafni Rachel Meghan Markle og er fædd þann 4. ágúst 1981. Hún er fædd og upp­alin í Los Angeles í Kali­forn­íu­ríki í Banda­ríkj­unum og útskrif­að­ist úr leik­list og alþjóða­fræðum árið 2003 frá Northwestern háskóla.

Hún er hefur síðan þá leikið nokkur smá­hlut­verk hér og þar, meðal ann­ars í mynd­unum Remember Me og Horrible Bosses, en frá árinu 2011 þar til nú lék hún í lög­fræði­drama­ser­í­unni Suits og hlaut fyrir nokkra frægð. Meghan hefur frá því hún trú­lof­að­ist Harry lagt leik­list­ar­skó sína á hill­una - eins og kon­ung­legar hátt­ern­is­reglur gera ráð fyrir.

Fjöl­skylda Meghan hefur vakið nokkra athygli. Móðir hennar, Doria Loyce Ragland, er félags­fræð­ingur og jóga­kenn­ari og eru þau faðir hennar Meghan, Thomas Markle eldri, frá­skilin. Hann býr í Mexíkó og sér um lýs­ingar á kvik­mynda­settum. Þau skildu þegar Meghan var sex ára gömul en hún á tvö hálf­systk­ini föður megin.

Faðirinn hefur átt nokkuð undir högg að sækja frá því til­kynnt var um trú­lof­un­ina, enda lík­leg­ast und­ar­legt hlut­skipti fyrir hvern sem er að verða allt í einu hluti af bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni. Fluttar voru af því fréttir að hann hefði leigt papparazzi ljós­mynd­ara til að taka myndir af sjálfum sér við und­ir­bún­ing brúð­kaups­ins, meðal ann­ars í bóka­búðum að lesa um Bretland.

Hann hefur hins vegar verið veikur fyrir hjart­anu og mun fyrir stuttu hafa þurft að gang­ast undir aðgerð sem gerir honum ókleift að vera við­staddur brúð­kaupið.

Meghan er frá­skilin. Hún gift­ist leik­ar­anum og fram­leið­and­anum Trevor Engelson árið 2011, eftir 7 ára sam­band, en þau skildu árið 2013.

Harry og Meghan hófu sitt sam­and í júní árið 2016 á svoköll­uðu blindu stefnu­móti en kon­ung­dæmið til­kynnti form­lega að þau væru að rugla saman reitum í októ­ber sama ár. yfir­lýs­ingin var nokkuð harð­orð. Þar kom fram að Harry hefði skiln­ing á áhug­anum sem almenn­ingur hefði á lífi hans þrátt fyrir að honum hafi ávallt fund­ist hann óþægi­legur. Hann hafi reynt að koma sér upp þykkum skráp og halda góðu sam­bandi við þá fjöl­miðla sem um hann fjalla. Hins vegar hafi verið umfjöllun um Meghan Markle, þá kær­ustu hans, farið yfir öll vel­sæm­is­mörk. Hún hafi orðið fyrir ofbeldi og áreiti af hálfu fjöl­miðla, með rasískum und­ir­tóni sem og karl­rembu. Móðir hennar hafi orðið fyrir gríð­ar­legu áreiti fjöl­miðla­manna og ljós­mynd­ara og hafi ítrekað þurft að kalla til lög­reglu, auk þess sem fyrr­ver­andi kærastar og vinir hafi allir fengið til­boð um háar greiðslur fyrir að segja um hana sögur. Harry lýsti í þess­ari óvenju­legu yfir­lýs­ingu yfir miklum von­brigðum með landa sína, áhyggjum af öryggi Meghan og fjöl­skyldu hennar og bað um frið.

Í sept­em­ber 2017 sáust þau fyrst saman, á Invictus leik­unum í Torontó í Kanada, hvar Meghan bjó þar sem Suits þætt­irnir voru teknir upp í borg­inni. Í jan­úar á þessu ári, stuttu eftir að til­kynnt var um trú­lofun þeirra, lok­aði Markle öllum sam­fé­lags­miðlum sínum og þakk­aði fylgj­endum og aðdá­endum fyrir stuðn­ing­inn í gegnum árin.

Harry prins

Sjálfan prins­inn af Wales, brúð­gu­mann Harry, þarf lík­leg­ast lítið að kynna. Hann heitir fullu nafni Henry Charles Albert David og fædd­ist þann 15. sept­em­ber 1984. Hann er sjötti í erfða­röð­inni að breska hásæt­inu, sonur krón­prins­ins Charles og Díönu, eins ást­sælusta með­lims bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar á síð­ari tímum, sem lést árið 1997 í bílslysi.

Harry gekk í skóla í Bret­landi og gegndi her­skildu sem hann sinnti meðal ann­ars í Afghanistan á árunum 2007 og 2008, þar til að ástr­alskt tíma­rit kom upp um veru hans þar. Hann sneri aftur í 29 vikur á árunum 2012 til 2013 en yfir­gaf her­inn í júní árið 2015.

Harry hefur, eins og hátt­ern­is­reglur kon­ungs­fjöl­skyld­unnar gera ráð fyrir, sinnt ýmsum góð­gerð­ar­störfum í gegnum tíð­ina, þar á meðal er hann vernd­ari Invictus leik­anna áður­nefndu og hefur verið frá árinu 2014, en þar birist hann fyrst með Meghan Markle í fyrra.

Móðir hans Díana lagði frá upp­hafi mikla áherslu á að þeir bræð­urnir, Harry og William, fengju eins „venju­legt“ upp­eldi og æsku og mögu­legt var í þeim óvenju­legu aðstæðum sem breska kon­ungs­fjöl­skyldan býr við. Þeir bræð­urnir sáust ungir leika sér í Disney World, fá sér ham­borg­ara á McDonalds sem og að heim­sækja gisti­skýli fyrir heim­il­is­lausa.

Díana og Charles skyldu árið 1996 og móðir hans lést í bílslysi í París ári síðar.

Harry var alltaf mik­ill íþrótta­maður, spil­aði póló, skíðaði og stund­aði mótorcross. Þá er hann gall­harður stuðn­ings­maður Arsenal í ensku knatt­spyrn­unni auk þess að fylgj­ast náið með rúgbí deild­inni.

Hann var frá unga aldri álit­inn nokkuð upp­reisn­ar­gjarn og á ung­lings­árum sínum var hann tal­inn frekar villtur, sást reykja kanna­bis sautján ára gam­all og náð­ust myndir af honum fyrir utan næt­ur­klúbba löngu áður en hann hafði aldur til. Hann lenti einnig í miklu klandri þegar hann fór í nas­ista­bún­ing í bún­ingap­artý og þurfti í kjöl­farið að biðj­ast afsök­unar.

Harry hefur, rétt eins og bróðir hans og móðir þeirra áður, þurft að lifa lífi sínu fyrir allra augum frá því hann fædd­ist. Hann náð­ist á mynd í Las Vegas árið 2012, nak­inn inni á hót­el­her­bergi með óþekktri ungri konu og voru mynd­irnar birtar upp­haf­lega af slúð­ur­síð­unni TMZ.

Miklar sögu­sagnir hafa ávallt verið uppi um að Harry sé rang­feðr­aður og er hann sagður vera sonur bresks her­manns að nafni James Hewitt, sem átti í sam­bandi við Díönu prinsessu móður hans. Hewitt hefur ávallt haldið því fram að tíma­setn­ing­arnar geti ekki stað­ist og það sé með öllu ómögu­legt að hann sé faðir Harry. Einn af líf­vörðum Díönu hefur stað­fest það.

Harry sagði, í hjart­næmu við­tali í fyrra, að hann hafi leitað sér fag­legrar geð­rænnar aðstoðar vegna þess að hafa aldrei kom­ist almenni­lega yfir móð­ur­miss­inn.

Sagðist hann hafa eytt síð­ustu 20 árum í að hugsa ekki um dauða móður sinnar, hefði slökkt á öllum til­finn­ingum og glímt við mik­inn kvíða og reiði vegna þessa. Vonaðist hann til þess að með því að við­ur­kenna þetta gæti hann hjálpað öðrum sem glímdu við geð­rænan vanda. Harry, ásamt bróður sínum og mág­konu, stofn­uðu góð­gerð­ar­sam­tökin Heads Together sem kynnir góða and­lega heilsu og rækt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár