133,8 milljarðar komu inn undir bindiskyldu

Heild­ar­virði allra erlendra fjár­fest­inga á Íslandi nam 133,8 millj­örðum, en meiri­hluti þeirra var frá banda­rískum aðilum og vog­un­ar­sjóðum.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra við kynningu á losun gjaldeyrishaftanna í fyrra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra við kynn­ingu á losun gjald­eyr­is­haft­anna í fyrra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Inn­streymi erlends fjár­magns nam 133,8 millj­örðum í fyrra, þaðan af voru 83,9 þeirra frá Banda­ríkj­unum. Stærsti hluti inn­flæð­is­ins fór í skráð hluta­bréf eða aðrar fjár­fest­ingar, en erlendir fjár­festar hafa beint sjónum sínum þangað í auknum mæli eftir að sér­stök bindi­skylda var sett á inn­flæði fjár­magns árið 2016. Þetta kemur fram í nýbirtu svari fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­sonar á vef Alþingis.

Fyr­ir­spurn Þor­steins beind­ist að magni og sam­setn­ingu inn­streymis á erlendu áhættu­fjár­magni til Íslands á síð­ustu tveimur árum. Samkvæmt svari fjár­mála­ráð­herra námu erlendar fjár­fest­ingar 95,4 millj­örðum króna árið 2016 og 133,8 millj­örðum króna í fyrra.

Vogunarsjóðir í Arion fyrirferðamestir

[links]Bindi­skyldan, sem inn­leidd var um mitt ár 2016 og heim­ilar Seðla­bank­anum að binda allt að 75% erlendra nýfjár­fest­inga, virð­ist hafa haft ager­andi áhrif á fjár­magns­hreyf­ingar til Íslands. Þannig hafi engar erlendar fjár­fest­ingar komið til lands­ins á seinni hluta árs­ins 2016 og þrír fjórðu hlutar inn­streym­is­ins árið 2017 eru til­komnir vegna kaupa vog­un­ar­sjóða á hlut í Arion banka.

63% frá Bandaríkjunum

Fjár­magn­inu var skipt ójafnt milli landa, en alls festu erlendir fjár­festar frá 36 löndum pen­inga sína á Íslandi í fyrra og þar af komu 63% þeirra frá Banda­ríkj­unum. Næst stærsti hóp­ur­inn var svo frá Lúx­em­borg, en þaðan komu 18% allra erlendra fjár­fest­inga.[adspot]

Einnig breytt­ist sam­setn­ing erlends gjald­eyris nokkuð milli ára, en eftir að bindi­skyldan var inn­leidd jókst erlend fjár­fest­ing á skráðum hluta­bréfum hér­lendis til muna á meðan að fjár­fest­ing í íslenskum rík­is­skulda­bréfum féll um helm­ing. Bindi­skyldan virð­ist því fyrst og fremst hamla fjár­fest­unum að stunda vaxta­muna­við­skipti með skulda­bréf, en ann­ars­konar fjár­fest­ingar eru enn arð­bærar í augum þeirra.

Þó er bætt við í svari fjár­mála­ráð­herra að óvíst sé hversu mik­inn hluta inn­streym­is­ins í skráð hluta­bréf megi rekja til bindi­skyld­unnar þar fjár­fest­ingar í íslenskum hluta­bréfum eru nú álit­legri vegna bættra efna­hags­að­stæðna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár