„Skammarlisti“ hengdur upp á vegg

Fyrr í þessum mán­uði var Eflingu gert vart við að á einu af stóru hót­el­unum hangi uppi á töflu „skammar­listi“ yfir þá starfs­menn sem taka sér flesta veik­inda­daga.

„Skammarlistinn“
„Skammar­list­inn“ Mynd: Efling

Stétt­ar­fé­lagið Efling var látið vita fyrr í þessum mán­uði að á einu af stóru hót­el­unum hangi uppi á töflu „skammar­listi“ yfir þá starfs­menn sem taka sér flesta veik­inda­daga.

Frá þessu er greint á vef­síðu félags­ins.

Halldór Oddson, lög­fræð­ingur hjá ASÍ, segir í frétt Eflingar þetta vera alvar­legt brot gegn per­sónu­vernd og frið­helgi einka­lífs starfs­fólks­ins. „Við þessu gætu legið sektir. Við munum til­kynna Per­sónu­vernd um þetta mál.“

Varðandi stemn­ingu á stóru hót­el­unum segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, að hún sé ekki upp á marga fiska. „Við höfum verið að heim­sækja þessi hótel í vetur. Það er komið fram af rosa­legri van­virð­ingu við starfs­fólkið. Ég hef oft reynt að benda fólki á að stemn­ingin á íslenskum vinnu­mark­aði sé alger­lega fyrir neðan allar hellur, sér­stak­lega þegar kemur að okkar aðfluttu félögum í lág­launa­stör­f­unum,“ segir hún.

Hún segir jafn­framt að ekki sé nóg að atvinnu­rek­endur bendi á – til að upp­hefja sjálfa sig – að þeir borgi eftir kjara­samn­ingi. Í fyrsta lagi séu lág­marks­laun á Íslandi svo lág að þau dugi ekki fyrir nauð­synjum hér í Reykja­vík. Í öðru lagi sé þetta risa­vanda­mál, þessi gegn­um­gang­andi fyr­ir­litn­ing gagn­vart fólki í lág­launa­störfum. Atvinnu­rek­endur virð­ist því miður líta svo á að verka- og lág­launa­fólk, sér­stak­lega ef það kemur ann­ars­staðar frá, sé ein­fald­lega einnota drasl.

Í frétt Eflingar segir enn fremur að trún­að­ar­menn þeirra í stórum hót­el­keðjum hafi upp­lýst þau að yfir­menn skrái nöfn þeirra sem leiti til stétt­ar­fé­lags­ins. „Fólki eru gefin bein og óbein skila­boð að afleið­ingar fylgi því að tengj­ast stétt­ar­fé­lag­inu,“ segir Maxim Baru, yfir­maður félags­sviðs Eflingar. „Fólki er bók­staf­lega sagt að fara ekki til stétt­ar­fé­lags­ins. Mannauðs­deildir margra þess­ara fyr­ir­tækja hafa þá afstöðu að þau eigi starfs­fólkið – og að trún­að­ar­menn­irnir eigi að þjóna mannauðs­deild­inni, frekar en að vinna með starfs­fólki og stétt­ar­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár