„Við verðum að berj­ast“

Formaður Lands­sam­bands eldri borg­ara segir eldra fólk þekkja tím­ana tvenna. „Þegar ég var barn man ég eftir skömmt­un­ar­seðlum og ég man að mamma beið í bið­röð eftir að kaupa kjólefni. Við erum ekki í neinu slíku, þrátt fyrir kreppu.“

Þórunn Sveinbjörnsdóttir
Þórunn Svein­björns­dóttir Mynd: Almannavarnir

„Við verðum að berj­ast. Við verðum að halda áfram og við vitum það. Við þekkjum lífið, við erum lífs­reyndar mann­eskjur og við gef­umst ekki upp svo gletti­lega – en það tekur í.“

Þetta sagði Þórunn Svein­björns­dóttir, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara, á fundi almanna­varna í morgun.

Alls greindust 29 smit inn­an­lands í gær, þar af voru 20 í sótt­kví eða 71 pró­sent. Á landa­mær­unum greindust 9 smit.

Áfallið á Landakoti náði til eldra fólks

„Mig langar sér­stak­lega að tala til ykkar sem eldri eru. Þetta haust ætlar að reyn­ast okkur tölu­vert erfitt og þess vegna skiptir máli að fá að koma og hvetja ykkur til dáða og um sam­heldn­ina sem skiptir öllu máli.

Þessi hluti veirunnar ætlar að vera okkur líka mun erf­ið­ari. Það eru núna yfir 209 sem eru yfir 60 ára aldri – það er mun hærra en það var í vor sem segir okkur að áfallið á Landa­koti hefur náð veru­lega til eldra fólks,“ sagði Þórunn.

Hún benti á að margt væri hægt að gera til að létta lífið þessa dag­ana. „Það eru biðraðir í mörgum búðum. Þið þurfið að hugsa fyr­ir­fram. Fara helst snemma í mat­vöru­verslun og panta jafn­vel vörur á net­inu.“

Þekkja tímana tvenna

Þórunn skor­aði jafn­framt á eldra fólk að geyma þau erindi sem ekki skipta máli í bili. „Bara salta þau á blaði og eiga þau til góða þegar við förum að mega hreyfa okkur aðeins meira. En við megum ekki gleyma að fara út. Við megum ekki gleyma að fara og hreyfa okkur. Það skiptir alveg höf­uð­máli.“

„Þessi stóri hópur, þessi 45.000 manna hópur rúm­lega, sem er yfir sex­tugt, er sterkur hópur og dug­legur. Hann er ótrú­lega seigur og hann skiptir höf­uð­máli í okkar sam­fé­lagi.

Og við þekkjum tím­ana tvenna. Margt af okkar fólki lifði af og lifði í krepp­unni '30 og '31. Margir muna skömmt­un­ar­seðla. Þegar ég var barn man ég eftir skömmt­un­ar­seðlum og ég man að mamma beið í bið­röð eftir að kaupa kjólefni. Við erum ekki í neinu slíku, þrátt fyrir kreppu. Við þurfum þess vegna að vera sterk og við verðum sterk – og ég ætl­ast til þess að fjöl­skyldur standi saman og hlúi að sínu fólki.“

Hægt að gera kraftaverk í að rjúfa einmanaleika með því að vera virk í að hjálpa öðrum

Þórunn kall­aði eftir fleiri síma­vinum en hún sagði á fund­inum að þeir væru að gera ótrú­lega fína hluti. „Við getum gert krafta­verk í að rjúfa ein­mana­leika með því að vera virk í að hjálpa öðrum. Ég held að við þurfum að bretta upp ermar og fara í þetta. Það er gef­andi að vera sjálf­boða­liði.“

Hún hvatti fólk líka til að forð­ast leið­in­legar fréttir, sér­stak­lega fyrir svefn­inn. „Það er gott að fara í hug­leiðslu og reyna að anda djúpt,“ sagði hún. „Jákvæðnin kemur okkur yfir þetta fram yfir miðjan nóv­em­ber og þá tök­umst við á við hvað kemur næst. Við ætlum að vera sterk og leysa þetta saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár