Katrín: Það getur allt breyst, líka það sem virðist klappað í stein

For­sæt­is­ráð­herra fjall­aði meðal ann­ars um lofts­lags­mál í ávarpi sínu á Aust­ur­velli í dag.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands flytur ávarp 17. júní 2019.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands flytur ávarp 17. júní 2019. Mynd: Stjórnarráðið/Sigurjón

For­sæt­is­ráð­herra Íslands, Katrín Jak­obs­dóttir, ræddi um þær breyt­ingar sem orðið hafa á íslensku sam­fé­lagi síð­ast­liðin 75 ár í ávarpi sínu á Aust­ur­velli á 75 ára afmæli lýð­veld­is­ins í dag, 17. júní.

Í frétt Stjórn­ar­ráðs­ins um ávarpið kemur fram að hún hafi minnst á þá umbylt­ingu sem orðið hefði á öllum sviðum á Íslandi frá lýð­veld­is­stofnun og hafi hún nefnt í því sam­hengi að sam­fé­lagið væri meðal þeirra fremstu í heimi þegar kæmi að jöfn­uði og vel­sæld.

„Hugs­an­lega erum við stödd í öðrum slíkum straum­hvörfum nú þegar börn og ung­menni gera rík­ari kröfur en nokkru sinni fyrr til að skoð­anir þeirra séu teknar gildar í póli­tískri umræðu sam­tím­ans, eins og sést á viku­legum lofts­lags­verk­föllum hér á þessum bletti. Það getur nefni­lega allt breyst, líka það sem virð­ist klappað í stein. Nú hefur runnið upp fyrir flestum hvaða áhrif menn hafa á lofts­lagið, og það er það sem unga kyn­slóðin gerir nú skýra kröfu um: að eldri kyn­slóðir geri nú allt sem í mann­legu valdi stendur til að sporna gegn þessum ham­förum. Stjórn­völd hafa sett fram skýra sýn um að Ísland verði kolefn­is­hlut­laust ekki seinna en árið 2040 og Ísland standi við alþjóð­legar skuld­bind­ingar um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ sagði Katrín.

Hlutverk þingmanna að vera fulltrúar þjóðarinnar allrar

Þá ræddi for­sæt­is­ráð­herra hvernig ákvarð­anir stjórn­valda gætu haft áhrif á líf fjöld­ans og nefndi í því sam­hengi leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs, upp­bygg­ingu félags­lega hús­næð­is­kerf­is­ins og ákvarð­anir er varða umhverfið og lofts­lagið.

Hún sagði enn fremur að hlut­verk þing­manna væri að vera full­trúar þjóð­ar­innar allrar, ekki aðeins eigin kjós­enda, og standa vörð um og tryggja að und­ir­stöðu­stofn­anir hins frjáls­lynda lýð­ræðis virki sem skyldi í þágu alls almenn­ings og tryggi opið sam­fé­lag, vernd minni­hluta­hópa, mann­rétt­indi og þrí­skipt­ingu rík­is­valds.

Katrin sagði það mik­il­vægt að ræða reglu­lega stöðu Íslands í sam­fé­lagi þjóð­anna en eitt mætti læra af sög­unni. „Í senn er mik­il­vægt að standa með sjálfum sér og gæta að því sem við eigum: landi, tungu og menn­ingu. En líka að muna að við erum full­valda þjóð og getum sem slík átt sam­skipti við hvern sem er á jafn­ræð­is­grund­velli. Við varð­veitum ekki full­veldið með því að flýja undan öðrum því þá er hættan að fyrir okkur fari eins og Bjarti í Sum­ar­húsum sem fór úr einum næt­ur­stað í annan verri. Mætum öðrum þjóðum á jafn­ræð­is­grund­velli en tryggjum um leið hags­muni almenn­ings í land­inu.“

Hægt er að lesa ávarpið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár