Kreppan sem ekki var

Lækkunin á heims­mark­aðs­verði eru slæmar fréttir fyrir Stafangur, olíu­höf­uð­borg Noregs. Atvinnu­lífið í hér­að­inu telur að botn­inum sé ekki náð. Í fyrra voru 40 pró­sent allra starfa í fylk­inu Roga­landi tengd olíu­iðn­að­inum og í ein­stökum byggða­lögum náði hlut­fallið upp í 85 pró­sent.

Á lands­vísu voru um 330,000 störf á lands­vísu tengd olíu­iðn­að­inum árið 2014. Und­an­farið ár hafa hins vegar um 25,000 olíu­störf horfið, mörg þeirra í Stafangri og nágrenni. Nú síð­ast á fimmtu­dag­inn birti Stavan­ger Aften­blad for­síðu­frétt um að 5000 störf til við­bótar gætu tap­ast ef ekki finn­ast ný verk­efni fyrir 23 fær­an­lega bor­p­alla með verk­samn­inga sem renna út á næstu 12 mán­uðum.

Krísu­frétt frá Stafangri gæti litið svona út: Atvinnu­leysið hefur auk­ist um 67%, fast­eign­irnar ílend­ast á sölu­skránni og verðið hefur lækkað. Atvinnu­lífið er svart­sýnna. Olíu­verðið er ekki að fara að hækka vegna birgða­stöð­unnar á heims­vísu. Fleiri munu missa vinn­una og þeir sem þó halda starf­inu þurfa að búa sig undir þrengri kjör.

Ef nánar er að gáð eru samt sem áður fá merki um alvöru kreppu. Þetta er vænt­inga­kreppa í olíu­iðn­að­inum og vissu­lega per­sónu­leg kreppa fyrir þá sem missa vinn­una. En það er fátt sem minnir á hið kerf­is­læga, alltum­lykj­andi neyð­ar­á­stand sem Ísland lenti í.

Hrun? – eða aftur í jafnvægi?


Upp­sagnir í olíu­brans­anum hafa bitnað illa á ákveðnum hópum og stéttum. Verk­fræð­ingum á atvinnu­leys­is­skrá hefur fjölgað um 60 pró­sent. Ófag­lærðum atvinnu­lausum fjölgar um 20 pró­sent og sama gildir um fólk sem áður vann hjá ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækjum. Þeir sem hafa misst vinn­una í olíu­brans­anum keppa nú um fá störf við fjölda ann­arra atvinnu­lausra með sama bak­grunn og menntun. Margir eru ráða­lausir, því allan starfs­fer­il­inn hafa fyr­ir­tækin sleg­ist um starfs­krafta þeirra.

Atvinnu­leysið í Roga­landi hefur vissu­lega hækkað um tvo þriðju, en það er samt ekki nema 3,5 pró­sent. Það er ennþá lágt í sögu­legu sam­hengi, lægra en á árunum 2001-2006, og enn undir lands­með­al­tal­inu í Noregi, sem er 4,3 pró­sent.


5000 rigg­ansatte på norsk sokkel kan miste jobben. http://t.co/IZ9xPKNc43


— Aften­bla­det.no (@StvAftenblad) October 1, 2015


Hjaðnandi fasteignabóla


Í Roga­landi hefur fast­eigna­verðið fallið um 0,9 pró­sent frá því í fyrra. Annars staðar í land­inu heldur það áfram að hækka. Þetta á sér hins vegar flókn­ari skýr­ingar. Verð­þró­unin í Stafangri und­an­farin ár hefur verið sú brattasta í Noregi. Með­al­verðið á fast­eign í Stafangri hefur hækkað um 111,4 pró­sent á tíu árum og var þegar hæst lét í námunda við fast­eigna­verðið í höf­uð­borg­inni Osló.

Margir olíu­starfs­menn sem áttu heima ann­ars staðar áttu sér auka­heim­ili, pendler­leilig­het, í Stafangri. Þeir voru kannski á tíðum fundum í Stafangri eða gistu í íbúð­inni á milli vinnu­ferða út á bor­p­all­ana. Í sumum til­fellum borg­aði fyr­ir­tækið íbúð­ina. Þetta var einn af skýr­ing­ar­þátt­unum á bak við miklar hús­bygg­ingar und­an­far­inna ára.

Fast­eigna­bólan var þó byrjuð að hjaðna árið 2013, áður en olíu­verðið fór að falla. Leigu­verð hafði einnig verið him­in­hátt en hafði lækkað all­nokkuð síðan 2013 eftir að fram­boðið marg­fald­að­ist, og hefur lækkað enn frekar síðan í árs­byrjun eftir að eft­ir­spurnin fór að drag­ast saman að auki.

Lækkunin á fast­eigna­verði er því frekar leið­rétt­ing en hrun. Loksins hafa stúd­entar og fólk “í venju­legri vinnu” aftur efni á að leigja og geta látið sig dreyma um að kaupa fast­eign.

Dómsdagsspár og upphrópanastíll


Það vantar samt ekki dóms­dags­spá­menn­ina eða upp­hrópun­ar­merkin. „Í ár var það Detroit, á næsta ári Stafangur”, sagði Øystein Dørum, aðal­hag­fræð­ingur DNB Markets, við Dagens Nær­ingsliv fyrir tveimur vikum. Sam­an­burð­ur­inn er ekki frá­leitur.

Detroit var ein af mið­stöðvum vel­meg­unar í Banda­ríkj­unum, þar sem allir gátu fengið störf í bíla­iðn­að­inum – og “allir” unnu í bíla­iðn­að­inum eða við störf tengd honum. Þegar banda­rískir bíl­fram­leið­endur misstu fót­anna eftir 2008 fór Detroit sömu leið. „Þetta er aug­ljós­lega ekki sagt í fullri alvöru”, segir Dørum, „en hér eru engu að síður atriði sem hægt er að líkja við Noreg.”

“Blóðið rennur um götur Stafang­urs”, sagði hót­el­kóng­ur­inn Petter Storda­len í mik­illi æsifrétt VG í júní. Þar var meðal ann­ars sagt frá því að einka­neyslan hefði dreg­ist svo mikið saman að í miðbæ Stafang­urs hafi hver búðin á fætur annarri lagt upp laupana.

Ef rýnt er í frétt­ina á bak við fyr­ir­sagn­irnar eru þar sögur á borð við þessa frá skart­gripa­búð­inni Diam­ant­hu­set: „Fólk heldur áfram að gifta sig og trú­lofa sig en hvat­vísin er næstum horfin. Áður fyrr kom fólk inn og keypti eyrna­lokka fyrir 30,000 [norskar] krónur af því það lang­aði í þá.” Já, við erum að tala um hvat­vís skart­gripa­kaup upp á rúma hálfa milljón íslenskra króna, á gengi júní­mán­aðar.

Veltan eykst í verslunum


Gangi maður um götur mið­bæj­ar­ins í Stafangri ber fátt þess merki að hér hafi nokkuð mark­vert gerst eða stórar breyt­ingar átt sér stað. Í öllu falli ekki með augum blaða­manns sem bjó við Lauga­veg­inn þegar hver búð­ar­glugg­inn á fætur öðrum var vegg­fóðr­aður með mask­ínu­pappír haustið 2008.

Þó að sumir versl­un­ar­eig­endur sem rætt er við finn­ist kaupæðið vera renna af heima­mönnum, þá er töl­fræðin á öðru máli. Kathrine Sørnes hjá sam­tökum eig­enda versl­un­ar­hús­næðis í mið­bænum segir velt­una hjá 130 búðum hafa auk­ist um 3,8 pró­sent frá því í fyrra. Stórir versl­un­ar­kjarnar á borð við Tasta­senteret og AMFI Madla hafa séð aukn­ingu upp á 13,7 pró­sent og 5,6 pró­sent, eftir því sem kemur fram í Ros­enk­ilden, riti Samtaka atvinnu­lífs­ins í Stafangri.

Þegar á heild­ina er litið ber allt að sama marki, nokkurn veg­inn á þessa leið: Gullöld­inni er kannski að ljúka. Loftið að síga úr bólunni. Núver­andi ástand er eig­in­lega ekki svo slæmt, eig­in­lega bara frekar eðli­legt, en ef við berum það saman við brjál­æð­is­lega upp­gang­inn sem er búinn að vera hér síð­ustu árin, þá virð­ist þetta eðli­lega ástand geta jafn­ast á við kreppu.

Traustur efnahagur Noregs


Þó er mik­il­væg­ast að hafa í huga að þó að Stafangur og Rogaland verði fyrir áfalli, þá eru þessir staðir samt sem áður hluti af einu rík­asta landi í heimi. Já, ef ekki bara rík­asta landi í heimi, allt eftir því hvaða mæli­kvarðar eru skoð­aðir. Vel­ferð­ar­kerfið mýkir lend­ing­una fyrir þá sem missa vinn­una og norska ríkið hefur bol­magn til að aðstoða við­skipta­lífið við að þreyja þorr­ann eða end­ur­nýja sig.

Þó að norska hag­kerfið eigi mikið undir olí­unni komið, þá er hún ekki eina stoðin sem Norðmenn reiða sig á. Norðmenn hafa verið stór­tækir í að virkja fall­vötn og aðra end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa. Stóriðja á borð við ál og járn­blendi hefur byggst upp víða í fjörðum og dölum með gnægð af raf­orku.

Sem von er fær Noregur einnig miklar tekjur af fisk­veiðum og fisk­eldi, auk þess að reka einn stærsta far­skipa­flota í heimi. Lækkandi gengi norsku krón­unnar upp á síðkastið eru góðar fréttir fyrir þessar útflutn­ings­greinar.

[caption id="attachment_36344" align="alignnone" width="1024"] Olían er und­ir­staða atvinnu­lífs­ins í Roga­landi, beint og óbeint. Mynd: EPA.[/caption]

 

Handlingsregelen – hin heilaga kýr


Í stað þess að nýta olíu­tekj­urnar í þjóð­ar­bú­skap­inn hafa Norðmenn lagt fyrir í öll þessi ár, í gríð­ar­mik­inn olíu­sjóð sem er í dag einn af stærstu fjár­fest­ing­ar­sjóðum í heimi. Síðan 2001 hefur verið nokkuð góð póli­tísk sátt um svo­kall­aða fjár­laga­reglu, eða hand­lings­regelen, sem gengur út á að nýta ekki nema að hámarki fjögur pró­sent af áætl­uðum eignum sjóðs­ins við rík­is­rekst­ur­inn á ári hverju.

Það má líkja þessu við að maður eigi feita banka­inni­stæðu en nýti samt bara vext­ina til að drýgja launa­tekj­urnar og leyfa sér aðeins betra líf. Mark­miðið er vita­skuld að tryggja sterkan efna­hag um ókomna tíð, líka eftir að olían er upp­urin eða komin úr tísku í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár