ESB segir bless við hrúgur af hleðslusnúrum

Haustið 2024 verður skylda að hlaða helstu raf­tæki innan ESB-ríkj­anna með eins snúru. Með reglu­gerð­inni vill sam­bandið auka sjálf­bærni, minnka raf­rænan úrgang og auð­velda íbúum ESB-ríkj­anna lífið. Sam­eig­in­lega hleðslu­snúran gæti reynst Apple mikið högg.

USB-C hleðslusnúra. Eina hleðslusnúran sem íbúar aðildarríkja ESB geta notað til að hlaða snjalltækin sín og smærri raftæki frá og með haustinu 2024.
USB-C hleðslu­snúra. Eina hleðslu­snúran sem íbúar aðild­ar­ríkja ESB geta notað til að hlaða snjall­tækin sín og smærri raf­tæki frá og með haustinu 2024. Mynd: EPA

Evr­ópu­þingið og aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) komust í vik­unni að sam­komu­lagi um inn­leið­ingu reglu­gerðar sem skyldar fram­leið­endur síma, spjald­tölva og mynda­véla að nota sams konar hleðslu­snúrur. Reglu­gerðin nær yfir tæki sem seld eru í aðild­ar­ríkjum ESB og tekur gildi í skrefum frá haustinu 2024.

Reglu­gerðin nær einnig til tölvu­leikja­fjar­stýr­inga, heyrn­ar­tóla, hand­frjáls bún­aðs, ferða­há­tal­ara, lest­ölva, lykla­borða og ölvumúsa, auk ann­arra smærri snjall­tækja. Áætlað er að inn­leið­ing sam­eig­in­legrar hleðslu­snúru muni spara neyt­endur um 250 millj­ónir evra árlega, eða sem nemur tæp­lega 35 millj­örðum króna.

Til­gang­ur­inn er að auka sjálf­bærni vara innan ESB, minnka raf­rænan úrgang og auð­velda líf neyt­enda, að því er segir í til­kynn­ingu frá Evr­ópu­þing­inu.

Thierry Breton, fram­kvæmda­stjóri innri mark­aðar ESB, er him­in­lif­andi með að reglu­gerðin sé í höfn. „Afsakið, rangt hleðslu­tæki.“ Breton bendir á í færslu á Twitter að þessi setn­ing heyri brátt sög­unni til og muni aðeins vekja upp slæmar minn­ingar.

USB-C snúran það sem koma skal

Samkvæmt reglu­gerð­inni verður skylda í lok árs 2024 að hlaða síma, spjald­tölvur og mynda­vélar með USB-C snúru. Snúrur af eldri gerð, svo sem micro-USB snúrur og Lightn­ing-snúrur frá Apple verða því ekki heim­il­aðar lengur. Þá verða allar far­tölvur að vera með eins hleðslu­snúrur árið 2026. Fram­kvæmda­stjórnin mun end­ur­meta reglu­gerð­ina reglu­lega og því geta fleiri tæki bæst í hóp­inn.

Reglu­gerðin tryggir einnig að neyt­endur þurfa ekki að kaupa nýja hleðslu­snúru við kaup á nýjum raf­tækjum. Þannig megi fækka óþarfa hleðslu­snúrum sem engin not eru fyrir. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá ESB eyddu neyt­endur innan sam­bands­ins um það bil 2,4 millj­örðum evra, and­virði um 334 millj­arða króna, í auka hleðslu­snúrur árið 2020. Með reglu­gerð­inni er von­ast til að koma í veg fyrir slík kaup og minnka raf­rænan úrgang. Árið 2020 var raf­rænn úrgangur í formi hleðslu­snúra í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins alls ell­efu þús­und tonn.

Skiptar skoðanir um áhrif reglugerðarinnar á nýsköpun

Fram­kvæmda­stjórn ESB hefur talað fyrir sam­eig­in­legri hleðslu­snúru fyrir raf­tæki í meira en ára­tug. Fram­kvæmda­stjórnin fagnar því reglu­gerð­inni en til­gangur hennar er meðal ann­ars að draga úr hversu mörg hleðslu­tæki og hleðslu­snúrur enda í rusl­inu. Í til­kynn­ingu fram­kvæmda­stjórn­ar­innar segir að með því að nýta mátt innri mark­að­ar­ins hafi tek­ist að koma þess­ari lang­þráðu reglu­gerð í fram­kvæmd. Reglu­gerð sem mun minnka kolefn­is­sporið og skapa tæki­færi til nýsköp­unar.

„Engar fleiri hrúgur af mis­mun­andi hleðslu­snúrum í skúff­unum okkar. Ein sam­eig­in­leg hleðslu­snúra bætir hag okkar sem neyt­enda og mun einnig koma sér vel fyrir umhverfið,“ segir Marg­ar­ethe Vestager, vara­fram­kvæmda­stjóri und­ir­nefndar fram­kvæmda­stjórn­ar­innar sem vinnur að því að gera Evrópu til­búna fyrir staf­rænu öld­ina (e. Europe fit for the Digital Age).

Raf­tækja­fram­leið­endur eru flestir á öðru máli og það ætti ekki að koma á óvart að Apple hefur lýst yfir andúð á reglu­gerð­inni. Fyr­ir­tækið segir hana bitna á neyt­endum þar sem hún dragi úr tæki­færum til nýsköp­unar, þvert á það sem segir í til­kynn­ingu fram­kvæmda­stjórnar ESB.

Högg fyrir Apple

Reglu­gerðin mun reyn­ast mikil áskorun fyrir Apple, sem mun þurfa að aðlaga hleðslu­snúrur sínar að öðrum snjall­síma­fram­leið­endum sem hafa margir hverjir not­ast við USB-C snúrur, til að mynda Samsung. Nýjasta teg­und i-Pad og nokkrar gerðir MacBook far­tölva hafa USB-C tengi en helsta hleðslu­snúra Apple, svokölluð „Lighting-snúra“, sem hleður i-Phone og þráð­laus heyrn­ar­tól Apple, verður ekki gjald­geng innan ESB-ríkja haustið 2024.

Mark­aðs­hlut­deild Apple er gríð­ar­stór í Þýska­landi, stærsta hag­kerfi innan ESB, þar sem þrír vin­sæl­ustu snjall­sím­arnir eru iPhone. Þar á eftir kemur Samsung, sem hefur nú þegar USB-C tengi. Í Frakk­landi er staðan svipuð þar sem fjórar teg­undir iPhone verma fjögur efstu sætin, sam­kvæmt sam­an­tekt rann­sókn­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Counterpoint.

Síðasta haust kynnti ESB áform sín um eina sam­eig­in­lega hleðslu­snúru og hefur tækniris­inn verið að und­ir­búa sig undir reglu­gerð líkt og þessa. Bloomberg-frétta­stofan greindi frá því í síð­ast mán­uði að Apple sé að gera til­raunir með USB-C hleðslu­snúrur fyrir iPhone.

Bretland ætlar ekki að fylgja fordæmi ESB

Gagn­rýnendur í tækni­geir­anum hafa í áraraðir lýst óánægju sinni yfir sér­visku þegar kemur að hleðslu­snúrum á meðan önnur tækni­fyr­ir­tæki virð­ast hafa tekið USB-C snúr­una í sátt. Á sama tíma hefur Apple fjölgað snúrum sem þó eiga aðeins við tæki frá fyr­ir­tæk­inu. Það virð­ist nú vera að líða undir lok, að minnsta kosti í stórum hluta Evrópu.

Bretar, sem sögðu skilið við Evr­ópu­sam­bandið fyrir rúmum tveimur árum eftir nærri fjög­urra ára samn­inga­við­ræður við sam­bandið um útgöng­una, ætla ekki að fara að for­dæmi ESB og inn­leiða sam­eig­in­lega hleðslu­snúru. Reglu­gerðin mun hins vegar ná til Norður-Írlands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

löggjöf

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár