Unnur Valborg verður formaður ferðamálaráðs

Ráðherra ferða­mála skipar for­mann og vara­for­mann ferða­mála­ráðs.

Unnur Valborg Hilmarsdóttir er nýr formaður ferðamálaráðs.
Unnur Valborg Hilm­ars­dóttir er nýr for­maður ferða­mála­ráðs.

Unnur Valborg Hilm­ars­dóttir hefur verið skip­aður for­maður ferða­mála­ráðs af Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ráð­herra ferða­mála. Eva Björk Harð­ar­dóttir, verður vara­for­maður ráðs­ins. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Ferða­mála­ráð er skipað til fjög­urra ára í senn en skip­un­ar­tími for­manns og vara­for­manns er tak­mark­aður við emb­ætt­is­tíma ráð­herra. Þær Unnur Valborg og Eva Björk taka við af Þórey Vil­hjálms­dóttur og Páli Marvin Jónssyni sem skip­aðar voru af Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, for­vera Þórdísar Kol­brúnar í emb­ætti.

Unnur Valborg var skip­aði átt­unda sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar í haust. Þórdís Kolbrún skip­aði annað sæti fram­boðs­list­ans.

Unnur Valborg er odd­viti sveit­ar­stjórnar Húna­þings vestra rekur íbúða­gist­ing­una Sólgarð á Hvamms­tanga og á og rekur fyr­ir­tækið Aðstoð­ar­maður ehf. Hún er með B.Ed. gráðu frá Kenn­ara­há­skóla Íslands og Diploma í við­skipta- og rekstr­ar­fræðum frá End­ur­menntun Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið prófi í stjórn­enda­mark­þjálfun frá Opna Háskól­anum og Coach U.

[adspot]

Eva Björk er odd­viti sveit­ar­stjórnar Skaft­ár­hrepps og hót­el­stjóri Hótels Laka í Efri-Vík skammt frá Kirkju­bæj­ar­klaustri, þar sem hún hefur um ára­bil rekið umsvifa­mikla ferða­þjón­ustu. Hún er með B.Ed. gráðu frá Kenn­ara­há­skóla Íslands.

Hlutverk ferða­mála­ráðs er að gera til­lögur til ráð­herra um mark­aðs- og kynn­ing­ar­mál ferða­þjón­ust­unnar og vera ráð­herra til ráð­gjafar um áætl­anir í ferða­málum. Þá er ætl­ast til að ráðið vieti umsagnir um breyt­ingar á lögum og reglum sem varða ferða­mál.

Ráðið var síð­ast skipað í febr­úar 2015 og hefur skip­un­ar­tíma til árs­ins 2018. Í ferða­mála­ráði eiga eft­ir­far­andi sæti auk nýs for­manns og vara­for­manns: Halldór Benjamín Þor­bergs­son, Ingi­björg Guð­jóns­dóttir og Þórir Garð­ars­son, til­nefnd af Samtökum ferða­þjón­ust­unnar. Aldís Haf­steins­dóttir og Hjálmar Sveins­son, til­nefnd af Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga. Ásbjörn Björg­vins­son og Díana Mjöll Sveins­dóttir, til­nefnd af Ferða­mála­sam­tökum Íslands og Jón Ásbergs­son, til­nefndur af Íslands­stofu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár