Nonnabiti lokar eftir 27 ár

„Allt á baconbát?“ hefur heyrst í síð­asta sinn í Hafn­ar­stræt­inu. Nonna­bita hefur verið lokað og svangir næt­ur­lífs­farar verða að finna sér nýjan stað til að takast á við svengd­ina í fram­tíð­inni.

Mat­sölu­stað­ur­inn Nonna­biti, sem hefur verið starf­ræktur í mið­borg Reykja­víkur í 27 ár, hefur lokað stað sínum í Hafn­ar­stæti 9.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook kemur fram að rekstr­ar­að­il­arnir hafi selt fast­eign­ina sem hýst hefur starf­sem­ina frá því að hún flutti sig úr öðru hús­næði í Hafna­stræði fyrir nokkrum árum og að veit­inga­staðnum hafi þegar verið lokað. „Af því til­efni viljum við þakka ykkur við­skiptin og komurnar síð­ast­liðin 27 ár.“

Nonna­biti verður áfram starf­rækja einn veit­inga­stað í Bæj­ar­lind í Kópavogi.

Stað­ur­inn hefur notið mik­illa vin­sælda um ára­bil, sér­stak­lega hjá þeim sem stunda næt­ur­líf Reykja­víkur hverju sinni, enda var hann iðu­lega opinn langt fram eftir nóttu. Eða hjá þeim sem voru að takast á við afleið­ingar næt­ur­lífs­ins dag­inn eftir.

[adspot]Nonna­biti bauð upp á ýmis konar báta, sam­lokur og ham­borg­ara og var þekktur fyrir sér­staka sósu.

Vin­sæl­asti bát­ur­inn á Nonna­bita, sam­kvæmt heima­síðu hans, var Baconbátur og þeir sem hafa lagt leið sína á stað­inn í gegnum tíð­ina þekkja það að heyra kall eig­and­ans, eða ann­arra starfs­manna, um hvort við­skipta­vin­ur­inn vilji allt með­læti á bát­inn sinn eða sér­sníða hann með ein­hverjum hætti. „Allt á baconbát,“ hefur heyrst í síð­asta sinn í mið­borg Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

veitingar

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár