Aðgerðirnar skipti mestu – en ekki bara markmiðin

Umhverf­is­ráð­herra segir að hann sem umhverf­is­sinni verði aldrei sáttur við hversu hægt gengur að bregð­ast við í lofts­lags­málum en seg­ist þó vera ánægður með margar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í þessum mála­flokki. Þó verði Íslend­ingar að ganga enn lengra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra seg­ist vera sáttur við aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum síð­ustu fjögur ár en telur þó að gera þurfi enn betur.

Þing Norð­ur­landa­ráðs stóð yfir í vik­unni í Kaup­manna­höfn og mætti Guð­mundur Ingi á fund umhverf­is­ráð­herra Norð­ur­land­anna í gær við það til­efni.

Hann segir í sam­tali við Kjarnann að ráð­herr­arnir hafi ann­ars vegar rætt lofts­lags­málin og hvernig Norð­ur­löndin geti unnið saman að því að ná meiri árangri á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í Glasgow, sem nú stendur yfir, meðal ann­ars með því að styðja hvert annað og að hvetja til meiri metn­aðar hjá öðrum ríkjum – bæði hvað varðar sam­drátt í losun, lang­tíma­mark­mið og aukin fjár­fram­lög til þró­un­ar­landa.

Hins vegar sendu þeir frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir hvöttu til þess að á umhverf­is­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem haldið verður í febr­úar á næsta ári í Nairobi í Kenya, verði sett í gang form­leg vinna við að semja um nýjan alþjóð­legan samn­ing sem tekur á plast­mengun.

„Þetta er eitt­hvað sem við höfum verið að vinna að á þessum vett­vangi mjög lengi og við höfum verið að ýta mjög á þetta Norð­ur­löndin. Við erum í lyk­il­stöðu með Norðmenn í for­mennsku umhverf­is­þings­ins til að koma á form­legum samn­inga­við­ræður um þetta atriði.“

Hefurðu til­finn­ingu fyrir því hvernig það muni ganga?

„Hófleg bjart­sýni í alþjóð­legu sam­starfi er senni­lega eina rétta svarið í þessu en það hafa farið fram heil­miklar umræður á fyrri stigum. Norð­ur­löndin hafa til dæmis haft for­ystu um það að vinna skýrslur um hver gætu verið efn­is­at­riði um slíkan samn­ing. Og það er verið að vinna skýrslu núna um hvernig mætti fjár­magna samn­ing sem þennan og hvert ætti að beina því fjár­magni.“

Þannig sé und­ir­bún­ings­vinna búin að vera mikil hjá Norð­ur­lönd­unum – sem og hjá Þýska­landi, Japan, Ghana, Ekvador, Víetnam og fleiri ríkjum. „Þannig að ég er sæmi­lega bjart­sýnn að við náum að stíga mik­il­væg skref í Nairobi í febr­úar.“

Guð­mundur Ingi segir að samn­ing­arnir snú­ist um aðgerðir til að draga úr plast­mengun, hvaða leiðir séu færar til að ná því mark­miði og hvernig sé hægt að styðja ríki sem ekki hafa sterka inn­viði í þessum mál­efnum, til að mynda þró­un­ar­ríkin þar sem mikið plast berst í hafið.

Stíga skref í átt að 1,5 gráðu markmiðinu

Guð­mundur Ingi mun fara til Glasgow í næstu viku þar sem hann mun sækja fyrr­nefnda lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna.

„Það leggst bara ágæt­lega í mig. Það mik­il­væg­asta er að við fáum nægi­lega mikið út úr þess­ari ráð­stefnu til að halda mark­mið­inu að halda hlýn­un­inni innan við 1,5 gráður lif­andi. Ég er ekki viss um að við náum lof­orðum sem munu halda hlýn­un­inni þar en von­góður um að við stígum ákveðin skref í þá átt og getum þá haldið áfram að ná því mark­miði með frek­ari lof­orðum ríkja.

En síðan eru það aðgerð­irnar sem mestu máli skipta en ekki bara mark­miðin. Þau eru vissu­lega til alls fyrst. Við erum að sjá gríð­ar­lega mikla fram­þróun í þessum mála­flokki,“ segir hann.

Af hverju gengur erf­ið­lega að ná þessum mark­miðum með aðgerðum?

„Það er kannski vegna þess að kerfin okkar eru svo­lítið eins og síróp, seig­fljót­andi og bregð­ast ekki öll mjög hratt við breyt­ingum. Til dæmis allt okkar vel­ferð­ar­sam­fé­lag byggir á orku­notkun sem er ekki sjálf­bær – svona í grund­vall­ar­at­riðum. Við erum að nota kol, olíu og gas að stórum hluta ennþá og það er þar sem þarf að breyta og fara að nota end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa. Það er að ger­ast en það ger­ist ekki yfir nótt. Mætti það ger­ast hraðar? Já, sann­ar­lega.“

Guð­mundur Ingi segir að tæknin sé komin mis­langt eftir því hvaða geira um ræðir. „Við á Íslandi erum nátt­úru­lega mjög heppin með okkar auð­lindir; með vatns­aflið og jarð­hit­ann sem hefur gert okkur kleift að vera með næstum því 100 pró­sent end­ur­nýj­an­lega orku þegar kemur að hús­hitun og raf­magns­fram­leiðslu. En það er ekki þannig þegar kemur að vega­sam­göngum, skipum og flugi.

Sum ríki eru enn að vinna í því að skipta út kolum, olíu og gasi þegar kemur að hús­hitun og raf­magns­fram­leiðslu sem er ekki hjá okkur en gefur okkur þá tæki­færi til að ná meiri árangri í öðrum geirum eins og í sam­göngum.“

Ísland verði að nýta nýja tækni

Guð­mundur Ingi segir að það sé mik­il­vægt að nýta tím­ann vel til þess að setja í gang aðgerðir sem leiða til þess að Íslend­ingar verði í far­ar­broddi þeirra sem taka nýja tækni inn og fara að nota hana. „Við fram­leiðum ekki vélar í skip eða bíla á Íslandi en við getum verið land sem nýtir sér tækn­ina hratt og örugg­lega. Þar höfum við dæmi eins og raf­bíla­væð­ing­una en þar eru hvatar og skatta­af­slættir til að ýta undir það. Þar erum við í öðru sæti á eftir Norð­mönnum í þeim orku­skiptum og það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að við getum tekið þá reynslu og heim­fært hana á aðra geira, ekki síst í þunga­flutn­ingum, á skip og flug­vélar.“

Ertu sáttur við hraða þess­ara aðgerða?

„Ég held að umhverf­is­sinni sé aldrei sáttur við þann hraða sem er í gangi í dag þegar kemur að umhverf­is­málum. Ég er aftur á móti sáttur við margar af þeim aðgerðum sem við höfum sett í gang,“ segir hann og á þá við aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum síð­ustu fjögur ár. Hann bætir því þó við að hann sé fyrstur til að við­ur­kenna að Íslend­ingar verði að gera enn meira.

„Þessir hlutir þurfa að ger­ast hraðar,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nrsession

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár