Clinton fylltist viðbjóði þegar Trump elti hana í kappræðunum

„Back off, you creep“ eru orðin sem Clinton hefði viljað segja við Donald Trump í kapp­ræð­unum.

Það þótti skrýtið þegar Donald Trump elti Hillary Clinton um sviðið í öðrum kappræðum þeirra í fyrra. Clinton lýsir tilfinningum sínum í nýrri bók.
Það þótti skrýtið þegar Donald Trump elti Hillary Clinton um sviðið í öðrum kapp­ræðum þeirra í fyrra. Clinton lýsir til­finn­ingum sínum í nýrri bók. Mynd: EPA

Hillary Clinton, fyrr­ver­andi fram­bjóð­andi demókrata í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum í fyrra, seg­ist hafa fyllst við­bjóði þegar Donald Trump stillti sér ítrekað upp fyrir aftan hana þegar hún svar­aði spurn­ingum í kapp­ræðum þeirra á milli í októ­ber í fyrra.

Hún greinir frá þessu í nýrri bók sem kemur út í næsta mán­uði. Í bók­inni, sem kall­ast What Happened, fjallar Clinton um kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum gegn and­stæð­ingi sínum Donald Trump. Clinton tap­aði kosn­ing­unum jafn­vel þó hún hafi fengið fleiri atkvæði, en Trump hlaut fleiri kjör­menn.

Hljóð­brot úr bók­inni hafa verið birt á vef NBC-frétta­stof­unnar.

Í kapp­ræð­unum sátu fram­bjóð­endur fyrir svörum frá almenn­ingi úr sal. Um mun frjáls­ara fyr­ir­komu­lag var að ræða en í hinum kapp­ræð­unum sem þau Clinton og Trump háðu, og fram­bjóð­end­urnir gengu um sviðið og ávörp­uðu fyr­ir­spyrj­endur. Nokkrum sinnum á meðan Clinton hafði orðið virt­ist sem Trump elti hana og stillti sér óþægi­lega nálægt fyrir aftan hana. Clinton seg­ist hafa velt fyrir sér eftir á hvort hún hafi átt að snúa sér við og segja honum: „back up, you creep“.

Þetta voru aðrar kapp­ræður þeirra af þremur í kosn­inga­bar­átt­unni og Clinton mæld­ist með ágætt for­skot í skoð­ana­könn­unum. Umræddar kapp­ræður fóru fram í Missouri 9. októ­ber í fyrra, aðeins tveimur dögum eftir að hljóð­upp­taka var gerð opin­ber þar sem Trump heyr­ist grobba sig af kyn­ferð­is­áreiti.

[adspot]

„Þetta er ekki í lagi, hugs­aði ég,“ skrifar Clinton í bók­inni. „Þetta voru aðrar kapp­ræð­urnar og Donald Trump vofði yfir mér. Þetta var lítið svið og hvert sem ég gekk um það elti hann mig, starði á mig og gretti sig. Það var mjög óþægi­legt. Hann and­aði bók­staf­lega ofan í háls­málið á mér. Ég fyllt­ist við­bjóði,“ skrifar Clinton.

[links]„Þetta var þess konar augna­blik þar sem þú óskaðir þess að geta stöðvað sýn­ing­una og spurt alla sem horfðu: „Jæja, hvað myndir þú gera?“ Myndir þú halda ró þinni, halda áfram að brosa og sinna þínu eins og ef hann væri ekki ítrekað að ráð­ast að þínu per­sónu­lega rými? Eða myndir þú snúa þér við, horfast í haugi við hann og segja hátt og skýrt: Færðu þig, ógeð. Farðu í burtu frá mér. Ég veit að þú hefur gaman af því að kúga konur en þú kúgar mig ekki.“

Clinton seg­ist hafa valið fyrsta kost­inn. „Ég hélt ró minni, studd­ist þar við langa reynslu af því að eiga við erf­iða karla sem kapp­kosta við að koma mér úr jafn­vægi,“ segir hún en veltir þó fyrir sér hvort hún hafi átt að velja seinni kost­inn. „Það hefði sann­ar­lega gert betra sjón­varp. Kannski treysti ég of mikið á reynslu mína af því að halda ró minni, bíta í tung­una og grafa negl­urnar í lóf­ana – á sama tíma brosa, stað­ráðin í að halda stilltu and­liti gagn­vart heim­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár