Vill ekki að það verði spekileki frá landinu

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, vill fá upp­lýs­ingar um hver menntun þeirra Íslend­inga sem flytja frá land­inu sé til að meta það hvort að þar sé um að ræða fólk sem sam­fé­lagið hefur fjár­fest í menntun hjá.

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, kynnti nýverið fyrir rík­is­stjórn áform um nýtt stuðn­ings­kerfi fyrir náms­menn.

Hún segir að leið­ar­ljósið í því sé í fyrsta lagi að fólk geti sótt sér nám óháð efna­hag og búsetu og í öðru lagi að Ísland sé með þannig stuðn­ings­kerfi að það sé sam­an­burð­ar­hæft við hin Norð­ur­löndin. „Við viljum ekki að það verði hérna speki­leki frá land­inu.“

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Lilju í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan

.Fleiri Íslend­ingar fluttu frá Íslandi á síð­asta ári en komu aftur heim. Brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­arar voru 75 fleiri en þeir sem fluttu til lands­ins, sam­kvæmt tölum frá Hag­stofu Íslands. Það gerð­ist þrátt fyrir gott árferði, nær ekk­ert atvinnu­leysi, stór­auk­inn kaup­mátt og for­dæma­lausa efna­hags­lega stöðu þjóð­ar­bús­ins.

[adspot]Frá árinu 1961 hafa verið átta tíma­bil þar sem brott­­flutn­ingur á hverju ári hefur verið yfir með­­al­tali áranna 1961 til­ 2015. Sjö þeirra tíma­bila hafa verið í tengslum við öfgar í efna­hags­líf­i ­þjóð­­ar­innar á borð við brott­hvarf síld­­ar­inn­­ar, mikla verð­­bólgu eða hátt atvinn­u­­leysi.

Eina tíma­bilið af þessum átta sem sker sig úr er 2014 til 2015 þar sem eng­ar hefð­bundnar efna­hags­­legar for­­sendur eru fyrir auknum brott­­flutn­ingi. Fólk flutti frá Íslandi þrátt fyrir efna­hags­­legan upp­­­gang.

Þessi þróun hélt áfram á árinu 2016 þegar brott­fluttir Íslend­ingar voru 190 fleiri en aðflutt­ir.

Hvorki Hagstofa Íslands né Þjóðskrá Íslands safna saman upp­lýs­ingum um mennt­un­ar­stig þeirra Íslend­inga sem kjósa að flytja af landi brott. Því liggur ekki fyrir svart á hvítu hvort um sé að ræða lang­skóla­gengið fólk eða ekki.

Lilja segir að verið sé að vinna í því að meta hver staðan sé á aðfluttum og brott­fluttum frá land­inu út frá mennt­un­ar­stigi. „Ég hef kallað eftir þessu meðal ann­ars til þess að byggja grunn­inn að þessu nýja kerfi sem við erum að fara að kynna.“

Það þurfi að liggja fyrir hvort að það sé flótti ákveð­innar teg­undar fólks frá land­inu eða ekki. „Mark­miðið er að við séum þekk­ing­ar­sam­fé­lag og við höfum allt i það.“

Hún bætti við að frum­varp um nýja náms­lána­kerfið, sem mun verða kynnt í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda í júní, yrði lagt fram á haust­þingi. Þær breyt­ingar sem frum­varp­inu er ætlað að inn­leiða fel­ast meðal ann­ars í því að náms­styrkur rík­is­ins verði gagn­særri og meira jafn­ræði verði meðal náms­manna og mun nýju kerfi þannig svipa meira til nor­rænna náms­styrkja­kerfa. Stefnt er að því að nýtt stuðn­ings­kerfi taki gildi frá og með haustinu 2020.

Í frétta­til­kynn­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu vegna frum­varps­ins, sem send var út í gær, segir náms­að­stoðin sem lána­sjóð­ur­inn mun veita yrði áfram í formi lána á hag­stæðum kjörum eftir breyt­ing­arnar en til við­bótar verði beinar styrkja­greiðslur vegna fram­færslu barna og 30 pró­sent nið­ur­fell­ing á hluta af náms­lánum við lok próf­gráðu innan skil­greinds tíma. „Stefnt er að því að bæta fjár­hags­stöðu nem­enda, ekki síst þeirra sem hafa börn á fram­færi, og hvetja nem­endur til að klára nám sitt á til­settum tíma. Í því felst ávinn­ingur fyrir náms­menn sem og þjóð­hags­legur ávinn­ingur fyrir sam­fé­lagið allt sem útreikn­ingar gera ráð fyrir að geti numið allt að 1,2 millj­örðum kr. á ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár