Allir drengirnir komnir út úr hellinum

Ótrúlegu björg­un­ara­freki í Tælandi er að mestu lokið og drengj­unum tólf ásamt þjálf­ara þeirra hefur verið komið út úr helli þar sem þeir hafa setið fastir í átján daga.

Öllum tólf drengj­unum og þjálf­ara þeirra hefur verið bjargað og komið út úr hell­inum í Tælandi sem þeir hafa setið fastir í í átján daga.

[links]Þeir verða allir undir eft­ir­liti lækna næstu daga og jafn­vel vikur. Allir eru þeir þó í mun betra ásig­komu­lagi en búist var við. Þeim er haldið í ein­angrun vegna hættu á smiti frá vinum og ætt­ingjum, en ónæm­is­kerfi þeirra er veik­burða eftir dvöl­ina í hell­inum. For­eldrar þeirra hafa aðeins fengið að sjá syni sína í gegnum gler á sjúkra­húsi.

Fremstu kaf­arar og björg­un­ar­sveit­ar­menn heims komu að björg­un­ar­að­gerðum í Tælandi. Ekki allir þeirra eru komnir úr hell­inum, enn er beðið eftir fjórum björg­un­ar­mönnum, þar af einum lækni og þrír kaf­arar sem kenndu drengj­unum og þjálf­ara þeirra að kafa, en end­ur­koma þeirra er síð­asti angi aðgerð­anna.

Björg­un­ar­að­gerð­irnar, sem hófust að fullu síð­asta sunnu­dag, hafa gengið framar björt­ustu vonum. Fjórum drengjum var bjargað úr hell­inum á sunnu­dag og fjórum til við­bótar í gær.

Tveir kaf­arar fylgdu hverjum dreng út. Allir þrír báru súr­efn­is­grímur og fikruðu þeir sig áfram eftir köðlum til að kom­ast í gegnum þröngt rýmið. Talið var að hver ferð tæki um sex klukku­stundir og þurftu drengirnir að kafa, synda, vaða og klifra til að kom­ast út. Ekki liggja fyrir nán­ari upp­lýs­ingar um hvernig gekk að koma hverjum og einum út.

Stefnt var á að klára björg­un­ina í dag sem síðan tókst.

Einn tælenskur kaf­ari lést við björg­un­ar­að­gerð­irnar í síð­ustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

björgunaraðgerðir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár