Forsætisráðherra Íslands sendir tælensku drengjunum kveðju

„Til hug­rökku drengj­anna og þjálf­ara þeirra sem fastir eru í Tham Luang-hell­inum í Tælandi og fjöl­skyldna þeirra: Fólk er að hugsa til ykkar víða um heim og það gerum við einnig hér á Íslandi.“

Björgunaraðgerðir undirbúnar í Tham Luang-hellinum í Tælandi.
Björg­un­ar­að­gerðir und­ir­búnar í Tham Luang-hell­inum í Tælandi. Mynd: EPA

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sendir drengj­unum og þjálf­ara þeirra, sem fastir eru í Tham Luang-hell­inum í Tælandi, og fjöl­skyldum kveðju á Twitter og segir að fólk sé að hugsa til þeirra víða um heim og að það geri Íslend­ingar einnig.

Tólf drengir og knatt­spyrnu­þjálf­ari þeirra hafa fastir í hell­inum und­an­farna fimmtán daga. RÚV greinir frá því í dag að tveir þeirra séu nú komnir út. Sky frétta­stofan hafi þetta eftir yfir­völdum.

Umfangs­miklar björg­un­ar­að­gerðir standa nú yfir en þær hófust í nótt. Samkvæmt RÚV segir yfir­maður björg­un­ar­að­gerða að þrettán fær­ustu hellakaf­arar heims hafi verið fengnir til verks­ins, auk fimm taí­lenskra kaf­ara.

„Tveir kaf­arar fylgja hverjum dreng út. Allir þrír bera súr­efn­is­grímur og fikra sig áfram eftir köðlum til að kom­ast í gegnum þröngt rýmið. Talið er að hver ferð taki um sex klukku­stundir og drengirnir þurfa að kafa, synda, vaða og klifra til að kom­ast út. Læknir vitj­aði þeirra í gær og segir þá alla vera við góða heilsu svo þær ættu að ráða við verk­efnið. Ferðin er engu að síður mikil hættu­för, vatns­yf­ir­borðið hækkar sífellt og skemmst að minn­ast þess að kaf­ari lést við björg­un­ar­störf þar í vik­unni.

Mikill við­bún­aður er á staðnum, fjöl­mennt lið lækna og hjúkr­un­ar­fólks er til taks og fjöl­miðlar hafa verið beðnir um að veita björg­un­ar­fólki svig­rúm,“ segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

björgunaraðgerðir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár