Plastið í sjónum og táningurinn sem ákvað að veiða það

Brátt verður meira plast en fiskar í sjónum en Hol­lend­ingur sem er rétt af tán­ings­aldri seg­ist vera með lausn­ina. Og fólk er farið að trúa honum.

Hring­straumar Kyrra­hafs­ins bera með sér ógrynnin öll af plast­rusli sem marar í hálfu kafi um mið­bik stærsta úthafs í heimi. Undir yfir­borð­inu og uppi í loft­inu berst líf­ríkið í bökkum. Plast­þekjan birgir úti ljós sem átan þarfn­ast til ljóstil­líf­unar; átan sem er und­ir­staðan í líf­ríki sjávar. Í stað­inn fyrir að gagn­ast átunni, brýtur sól­ar­ljósið plastið niður í örsnifsi sem rata ofan í maga fiska og fugla og inn í melt­ing­ar­kerfi marglytta og allra handa sjáv­ar­dýra. Ef þau eru óheppin, eru plast­eind­irnar einnig búnar að drekka í sig eit­ur­efni á borð við PCB eða skor­dýra­eitrið DDT.

Það er erfitt að meta stærð plast­flák­ans í Kyrra­haf­inu. Var­kárasta matið er 700.000 fer­kíló­metrar, sjö sinnum stærð Íslands, en stór­yrt­ustu full­yrð­ing­arnar hljóða upp á 15 millj­ónir fer­kíló­metra. Það er rétt aðeins minna en Rússland. Í öllu falli er víst að ruslaflák­inn á skilið enska nafnið, the great pacific gar­bage patch, nafn­gift sem minnir að vissu leyti á mik­il­mennsku­brjál­æði nýlendu­tím­ans.

Viljiði fá vondu frétt­irnar núna? Ruslaflák­arnir eru ekki einn, heldur fimm. Sá stærsti er í norð­ur­hluta Kyrra­hafs­ins, annar í suð­ur­hlut­anum, einn í Suður- og annar í Norður-Atl­ants­hafi og sá fimmti í Ind­lands­hafi. Þá er ótalið allt vega­laust og óskipu­lagt rusl sem er bara í rugl­inu ein­hvers staðar úti á reg­in­hafi. Ný skýrsla Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins um plast í höf­unum býður upp á skugga­legar lýs­ingar sem ræna mann næt­ur­svefn­inum.

Getur ekki einhver tekið þetta rusl úr sjónum?

Ruslaflák­inn upp­götv­að­ist árið 1997. Æ síðan hefur fólk leitað að lausnum á vand­anum. Er ekki bara hægt að ná þessu í eina góða hringnót og fara með þetta í end­ur­vinnsl­una? Nei, það er flókn­ara en svo af því að a) þetta er svo langt úti á hafi og b) þetta er svo mikið magn plasts sem þyrfti að sigla með aftur í land að það yrði dýr og lang­vinn hreins­un­ar­að­gerð. Þetta myndi taka hund­ruð ef ekki þús­undir ára, og þó varla ná að anna því plast­magni sem berst í hafið á hverjum degi. Þar að auki er megnið svo litlar plast­eindir að þær verða ekki fang­aðar með neinu neti.

Í stuttu máli hafði engum tek­ist að finna góða lausn á vand­anum. Ekki fyrr en hol­lenski verk­fræði­nem­inn Boyan Slat fékk svo góða hug­mynd að hann ákvað að hætta í skól­anum og bjarga heim­inum í stað­inn.

18 ára stráklingur til bjargar

Fyrstu við­brögðin voru ekki hvetj­andi. Í stuttu máli trúði eng­inn á hann. Hann kynnti hug­mynd­ina á TedX ráð­stefnu í heima­bænum Delft en hún féll í grýttan jarð­veg. Hann stofn­aði samt sem áður sam­tökin The Ocean Cleanup til að þróa hug­mynd­ina áfram. Hann sendi út mörg hund­ruð styrk­um­sóknir en fékk ekk­ert svar. Hann var 18 ára. Hver gat trúað á ein­hvern strákling sem hafði ekki einu sinni lokið fyrsta árinu í verk­fræði? Evrurnar runnu út úr spari­bauknum án þess að neitt kæmi inn í stað­inn.

Svo kvikn­aði ljósið í enda gang­anna. Eða, öll ljósin í göng­unum kvikn­uðu í einni hend­ingu. Banda­rískt umhverf­is­frétta­blogg skrif­aði um TedX fyr­ir­lest­ur­inn hans og birti mynd­bandið. Þar með sner­ist gæfan Boyan í vil.

Hundruð þús­unda sáu mynd­bandið. Inn streymdu tölvu­póstar frá fólki sem spurði hvernig það gæti hjálpað. Boyan skráði sig á hóp­fjár­mögn­un­ar­síðu og safn­aði inn 80.000 Banda­ríkja­dölum á tveimur vikum. Hjólin byrj­uðu að snú­ast. Nú er ekki lengur neinn hörgull á fjár­magni, sam­starfs­að­ilum eða sér­fræð­ingum sem kepp­ast um að fá að vinna að verk­efn­inu með honum.

Hvernig? Já, hvernig í ósköpunum?

Boyan seg­ist geta hreinsað upp hálfan Kyrra­hafs­ruslaflák­ann á tíu árum. Allir fimm ruslaflák­arnir munu taka 25 ár. Tæknin er í þróun en á að vera komin í gagnið 2020.

Núna, tæpum þremur árum eftir að Boyan kynnti hug­mynd­ina fyrst, er komið annað hljóð í strokk­inn. Hann hefur fengið verð­laun og við­ur­kenn­ingar, m.a. frá Sam­ein­uðu þjóð­unum, og hefur lent á allra handa listum yfir klárt hug­sjóna­fólk. Tæknin sem Ocean Cleanup er að þróa þykir lofa svo góðu að hún lenti á lista tíma­rits­ins Time yfir 25 bestu upp­finn­ingar 2015 og var til­nefnd í flokknum hönnun árs­ins hjá London Design Museum.

Kjarninn í hug­mynd­inni er þessi: til hvers að sigla um og fanga ruslið, þegar þú getur látið haf­straumana koma með ruslið til þín? Hug­myndin gengur í raun út á að setja hund­rað kíló­metra langa fljót­andi ruslasíu út í höfin. Prufu­mód­elin líkj­ast gulum mið­garðsormi sem flýtur á yfir­borð­inu. Niður úr þessum flot­belgjum hangir jafn­löng ruslasía. Hún er sér­hönnuð til þess að valda ekki skaða á líf­rík­inu. Fiskar geta auð­veld­lega synt undir hana og eiga ekki að geta fest í henni.

Hug­myndin er að haf­straum­arnir renni sér undir ruslasí­una, ruslið verði eftir þar og öld­urnar haldi áfram án þess. Fyrir hvern hring sem haf­straum­arnir fara verða þeir hreinni og hreinni. Auðvitað verður eftir sem áður að ná í ruslið út á reg­in­haf og fara með það í land en þó er mikið sparað við að sleppa við að elt­ast við það á bátum um höfin breið. Ef þetta gengur eftir verður bara hægt að sækja það í síuna og fara með það í end­ur­vinnsl­una.

Kostn­að­ur­inn við verk­efnið greið­ist að hluta til af end­ur­sölu­virði plast­s­ins til end­ur­vinnslu. Þegar fram líða stundir getur það orðið tísku­fyr­ir­bæri að selja hluti úr sjáv­ar­plasti. Hol­lenski tísku­vöru­fram­leið­and­inn G-Star Raw hefur þegar sett á mark­að­inn galla­buxur sem eru fram­leiddar úr end­urunnu plasti sem var safnað upp í kali­fornískum fjörum. Ryksugu­fram­leið­and­inn Electrolux setti á markað ryksugu fram­leidda úr sama hrá­efni og hefur lagt ríka áherslu á að fræða fólk um mengun í höf­unum.

Ein af stærstu áskor­un­unum er að sjálf­sögðu hvernig hægt er að byggja 100 kíló­metra flot­bauju sem þolir ógn­ar­krafta Kyrra­hafs­ins, með allt að 27 öldu­hæð. Þeir sem vilja kynna sér tækni­lausn­irnar í þaula geta gert það á síðu The Ocean Cleanup.

Nú er sem fyrr segir verið að prófa prótótýpur með þetta í huga. Innan skamms verður kíló­metra prufusía sett út í Norð­ur­sjó­inn, út af ströndum Hollands. Síðar á árinu á að leggja út aðra, tvö­falt lengri, í hafið út af Japan.

Fylgist með og krossið fingur. Þetta gæti verið lausnin á einu af stóru umverf­is­vanda­málum heims­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár