Bjart yfir - Verðbólgudraugurinn lætur bíða eftir sér

Mikill upp­gangur er nú i efna­hags­lífi Íslands, á nær alla mæli­kvarða. Seðla­banki Íslands telur þó að verð­bólga geti auk­ist hratt ef hrá­vöru­verð erlendis tekur að hækka á nýjan leik.

Tölu­verður upp­gangur er í íslenska hag­kerf­inu í augna­blik­inu og útlit fyrir að sú staða hald­ist áfram næstu mán­uði. Laun eru að hækka hratt, verð­bólga er lág, 2,1 pró­sent, fast­eigna­verð á hraðri upp­leið og einka­neysla sömu­leiðis. Helsta ástæða þess að hag­vöxtur var 4,1 pró­sent í fyrra, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum, en ekki 4,6 pró­sent eins og spá Seðla­banka Íslands gerði ráð fyrir, var mikil aukn­ing í einka­neyslu og inn­flutn­ings henni sam­hliða. Almenn­ingur virð­ist því vera að njóta þess að vera með meira milli hand­anna nú en fyrir ári síðan. Þrátt fyrir að einka­neyslan hafi auk­ist mikið, þá sýna tölur að skuldir heim­il­anna hafa lækkað og sparn­aður þannig auk­ist.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrsta hefti Pen­inga­mála á þessu ári, sem kom út í dag, sam­hliða vaxta­á­kvörðun Seðla­banka Íslands. Þá var stýri­vöxtum haldið óbreyttum í 5,75 pró­sentum.

Lágt olíuverð hjálpar Íslandi

Það sem helst hefur haldið verð­bólgu niðri á Íslandi að und­an­förnu, að mati Seðla­banka Íslands, er mikil lækkun á olíu­verði, og hrá­vöru­verði almennt, á alþjóða­mörk­uðum. Þá hafa launa­hækk­anir ekki þrýst verði upp ennþá að neinu ráði, en Seðla­bank­inn gerir þó ráð fyrir að verð­bólga fari hækk­andi og verði komin yfir þrjú pró­sent síðar á árinu. Í Pen­inga­málum kemur enn fremur fram að gert sé ráð fyrir að hrá­ol­íu­verð muni hækka í hægum skrefum á þessu ári og verði á bil­inu 44 til 58 Banda­ríka­dalir á tunnu í byrjun næsta árs. Að und­an­förnu hefur það sveifl­ast í kringum 30 Banda­ríkja­dali á tunnu, en þegar þetta er skrifað er það tæp­lega 28 Banda­ríkja­dalir á mark­aði í Banda­ríkj­unum og rúm­lega 30 þegar horft er til Norð­ursjáv­ar­ol­í­unnar.

Vinnumarkaður stækkar

Það er til marks um kraft í efna­hags­líf­inu um þessar mundir að fólki á vinnu­mark­aði fjölg­aði um 5.300 í fyrra. Á fjórða árs­fjórð­ungi 2015 voru 189.200 manns á aldr­inum 16–74 ára á vinnu­mark­aði, sam­kvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í síð­ustu viku. Af þeim voru 183.300 starf­andi og 5.900 án vinnu og í atvinnu­leit. Atvinnu­þátt­taka mæld­ist 81,6 pró­sent, hlut­fall starf­andi mæld­ist 79 pró­sent og atvinnu­leysi var 3,1 pró­sent.

Aðhald þarf að auka

Þrátt fyrir að bjart sé yfir hag­kerf­inu þessi miss­erin, nán­ast á alla mæli­kvarða, þá segir Pen­inga­stefnu­nefndin að auka þurfi aðhald pen­inga­stefn­unnar, þá vænt­an­lega með vaxta­hækk­unum, vegna vax­andi inn­lends verð­bólgu­þrýst­ings. Þar skipta umsamdar launa­hækk­anir einna mestu máli, miðað við kjara­samn­inga á vinnu­mark­aði má gera ráð fyrir að laun hækki, hjá nær öllum stéttum, um 20 til 30 pró­sent á næstu tveimur til þremur árum. Hversu hratt þetta um ger­ast ræðst af því hvernig fram­vindan verður í hag­kerf­inu.

Áframhaldandi hækkanir

Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 9,4 pró­sent á árinu 2015 og kaup­samn­ingum fjölg­aði um 17 og hálft pró­sent. Á sama tíma hækk­aði leigu­verð um 6 pró­sent. Mikil hækkun fast­eigna­verðs á síð­asta ári virð­ist í „ágætu sam­ræmi við þróun bygg­ing­ar­kostn­aðar og tekna“, segir í Pen­inga­málum, og horfur eru á áfram­hald­andi kröft­ugri hækkun hús­næð­is­verðs á næstu miss­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár