Fiskar sem gerast loftslagsflóttamenn

Ný rann­sókn vís­inda­manna við Háskóla Íslands og Haf­rann­sókna­stofnun sýnir að stór hluti fisk­teg­unda á Íslands­miðum er við­kvæmur fyrir hækk­andi hita­stigi sjávar. Hækkun sjáv­ar­hita um 2-3 gráður virð­ist lík­leg til að valda stór­felldum útbreiðslu­breyt­ingum.

Makríllinn er dæmi um fisk sem hefur komið í miklum mæli inn í íslenska lögsögu á þessari öld. Hitabreytingar í hafinu snerta fiskana mismikið og sumir myndu sennilega láta sig hverfa héðan ef hitastigið hækkaði mjög.
Mak­ríll­inn er dæmi um fisk sem hefur komið í miklum mæli inn í íslenska lög­sögu á þess­ari öld. Hita­breyt­ingar í haf­inu snerta fisk­ana mis­mikið og sumir myndu senni­lega láta sig hverfa héðan ef hita­stigið hækk­aði mjög. Mynd: Wikicommons

Hækkun á hita­stigi sjávar um 2-3 gráður virð­ist lík­leg til að valda stór­felldum breyt­ingum á útbreiðslu fiski­stofna á Íslands­miðum, sam­kvæmt nýrri rann­sókn vís­inda­fólks við Háskóla Íslands og Haf­rann­sókna­stofnun sem birt­ist í vís­inda­rit­inu Scientific Reports 5. októ­ber.

Mik­il­vægar nytja­teg­undir sem eru við­kvæmar fyrir hita­stigs­breyt­ingum gætu hrein­lega látið sig hverfa af Íslands­miðum, segir Ragn­hildur Birna Stef­áns­dóttir líf­fræð­ingur og einn höf­unda grein­ar­innar, í sam­tali við Kjarnann.

Það er þó margt á huldu um það hvernig hita­stig sjávar umhverfis Íslands mun breyt­ast á næstu árum og ára­tugum. Breyt­ing­arnar á Íslands­miðum eru nefni­lega óút­reikn­an­legri en víða ann­ars­staðar, vegna þeirra köldu og hlýju haf­strauma sem mæt­ast nærri land­inu, segir Ragn­hildur.

[adspot]

Í tíma­rits­grein­inni, sem ber heitið „Shifting fish distributions in warming sub-Arctic oceans“, voru áhrif umhverf­is­breyt­inga í haf­inu umhverfis Ísland á árunum 1996-2018 á útbreiðslu fisk­teg­unda metin. Í ljós kom að einnar gráðu hita­stigs­hækkun við haf­botn­inn leiddi til þess að 72 pró­sent þeirra 82 fisk­teg­unda sem skoð­aðar voru í rann­sókn­inni færðu sig tals­vert til.

Breyt­ing­arnar á útbreiðsl­unni voru mest áber­andi hjá teg­undum grunn­slóð­ar­innar og þá sér­stak­lega hlýsjáv­ar­teg­undum og þeim sem lifa við þröngt hita­stigs­bil. Dæmi var um að til­færsla teg­undar næmi 326 kíló­metrum og 7 pró­sent teg­und­anna færðu sig um meira en 100 kíló­metra, en með­al­talstil­færslan var 38 kíló­metrar.

Rann­sóknin byggir á BS-verk­efni Ragn­hildar í líf­fræði, sem unnið var undir hand­leiðslu Stevens E. Campana, sem er pró­fessor í sjáv­ar­líf­fræði við Háskóla Íslands. Þau þró­uð­uðu hug­mynd­ina lengra í sam­ein­ingu. „Við fengum svo til liðs við okkur Klöru [Jak­obs­dóttur] og Jón [Sól­munds­son] hjá Haf­rann­sókna­stofnun og fengum þeirra „input“ í þetta sam­starfs­verk­efni,“ segir Ragn­hildur.

Það er þekkt stað­reynd að fiski­stofnar færi sig til með breyt­ingum á sjáv­ar­hita, en Ragn­hildur segir að lagt hafi verið upp með að skoða hvaða áhrif breyt­ing­arnar væru að hafa á stofna á Íslands­miðum og hvort það væru hita­breyt­ingar eða mögu­lega breyt­ingar á stofn­stærð eða eitt­hvað annað sem hefði áhrif. Einnig lang­aði rann­sak­end­unum að skoða hvaða stefnu teg­und­irnar myndu taka.

„Við vorum búin að reikna með að margar teg­undir myndu færa sig norðar í kald­ari sjó þegar sjór­inn færi að hlýna sunnar,“ segir Ragn­hildur, en nið­ur­stöð­urnar sýndu að lang­flestar teg­undir sem á annað borð færð­ust þok­uð­ust til vest­urs, norð­vest­urs eða norð­urs.

Líklegt er að hita­stig sjávar muni halda áfram að hækka á næstu árum og ára­tugum, en vegna land­fræði­legrar legu Íslands og síbreyti­legra haf­fræði­legra skil­yrða hér gætu áhrifin á Íslands­miðum orðið hæg­ari, breyti­legri og síður fyr­ir­sjá­an­legri en á öðrum svæðum, þar sem hita­stigs­breyt­ing­arnar hafa verið línu­legri en hér.

„Ef við erum að horfa á eina gráðu eru 72 pró­sent teg­unda að færa sig að með­al­tali um 38 kíló­metra, en hækkun um 2-3 gráður myndi breyta mjög miklu,“ segir Ragn­hildur, en slíkar breyt­ingar myndu senni­lega leiða til þess að nýir land­nemar kæmu að Íslands­miðum og einnig er mögu­leiki á að mik­il­vægar nytja­teg­undir myndu láta sig hverfa.

Ragn­hildur nefnir sem dæmi að teg­undir á borð við löngu, ýsu, keilu, urr­ara, tví­ráku og mjóra séu með mjög greini­lega til­færslu. Þetta er því eitt­hvað sem þarf að hafa augun á til fram­tíðar, en Ragn­hildur segir þróun sjáv­ar­hit­ans hér mjög óút­reikn­an­lega, vegna þeirra köldu og hlýju haf­strauma sem hafa áhrif.

Ekki endilega neikvætt fyrir sjávarútveginn

En myndu slíkar breyt­ingar ekki hafa áhrif á sjáv­ar­út­veg­inn til fram­tíðar, spyr blaða­maður, ef til vill í smá áhyggju­tóni. „Algjör­lega,“ svarar Ragn­hildur, en bendir á að afleið­ingar af til­færslu stofna þurfi ekki endi­lega að vera nei­kvæðar.

„Á móti gætu komið aðrar nytja­teg­undir sem núna veið­ast annar staðar. Við gætum fengið ein­hverjar frá­bærar teg­undir sem gætu skapað verð­mæti,“ segir Ragn­hildur og bætir við að mak­ríll­inn sé frá­bært dæmi um slíkan land­nema – flökku­fisk úr suð­austri sem nú er orð­inn mik­il­vægur hluti af heild­ar­verð­mæti sjáv­ar­afl­ans á Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fiskveiðar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár