Helgi segir að sé valdaöflum ógnað þá sé brugðist við af hörku

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR og Helgi Gunn­laugs­son, pró­fessor við félags­fræði­deild Háskóla Íslands, eru gestir Stóru mál­anna þessa vik­una. Í þætt­inum ræða þeir það ofbeldi sem getur fylgt póli­tískri umræðu, hvort sem í netheimi eða raun­heimi.

Í Stóru mál­unum þessa vik­una verður rætt það ofbeldi sem getur fylgt póli­tískri umræðu, hvort sem í netheimi eða raun­heimi. Bjartmar og Valur fengu til sín þá Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mann VR og Helga Gunn­laugs­son, afbrota­fræð­ing og pró­fessor við félags­fræði­deild Háskóla Íslands, til að ræða málið. Mikil umræða skap­að­ist, þegar skotið var bíl Dags B. Egg­erts­sonar, borg­ar­stjóra Reykja­vík­ur­borgar, um þá hörðu póli­tísku umræðu sem á sér stað í íslensku sam­fé­lagi. 

Helgi Gunn­laugs­son segir að sé valda­öflum í sam­fé­lag­inu ógnað, þá sé iðu­lega brugð­ist við að hörku. Sú harka geti bæði verið dulin og opin. Hörkunni sé beitt jafnt gegn ein­stak­lingur eða hópum sem ögra þeim sem hafa völdin. 

„Það sem Ragnar er að koma inn á varð­andi valda­öflin í sam­fé­lag­inu og ef þeim er ógnað á ein­hvern hátt þá er iðu­lega brugð­ist við af hörku. Það getur verið dulið, það getur líka verið opið. Þetta höfum við séð á öllum tímum og þetta er ein myndin af því. Þegar það koma fram ein­stak­lingar, jafn­vel hópar sem, sem eru að ein­hverju leiti að ögra eða ógna valda­öfl­unum þá er farið af stað. Það getur verið ófræg­ing­ar­her­ferð eða eitt­hvað annað. Það þarf að taka þessa umræðu í sam­fé­lag­inu okkar þar sem hún birt­ist með marg­vís­legum hætti.“

Helgi segir að umræðan á Íslandi sé almennt kurt­eis en að inn á milli gangi menn of langt.

„Það er alltaf inn á milli þar sem menn ganga dálítið langt og verða hat­urs­fullir. Það getur verið hættu­legt þegar það fer á vett­vang, þá taka margir þessu alvar­lega, eins og ein­stak­lingar sem geta verið við­kvæmir. Kannski erum við að sjá dæmi um það í dag að ein­hverju leiti, að menn fari að fram­kvæma ein­hverjar hót­anir. En ég held að umræðan almennt sé hóf­stillt, en það eru til­brigði sem magn­ast upp við ákveðnar þjóð­fé­lags­legar kring­um­stæður, eins og hrunið eða Covid, eða ein­hver áföll sem sam­fé­lagið verður fyrir, þá verður þetta oft árás­ar­gjarn­ara og þá vakna upp ákveðnir ein­stak­lingar, sem eru jafn­vel illir, með hót­anir og fleira. Þetta er tengt með ein­hverjum hætti, en ekki alltaf beint.“  

Þáttinn í heild sinni má sjá hér að ofan. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár