Engin stjórn hefur verið á fjölgun ferðamanna

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, skrifar um stöðu hag­kerf­is­ins útgáfu Vís­bend­ingar sem kemur til áskrif­enda á föstu­dag­inn.

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, skrifa ítar­lega grein um stöðu efna­hags­mála í útgáfu Vís­bend­ingar, sem kemur til áskrif­enda á föstu­dag­inn.

Í grein­inni fjallar hann meðal ann­ars um hvaða áhrif það kynni að hafa, ef það yrði sam­dráttur í ferða­þjón­ustu. Hann segir stöðu hag­kerf­is­ins mun heil­brigð­ari og betri nú, en fyrir rúmum ára­tug, þegar hag­kerfið var skuldum vafið áður en bank­arnir hrundu svo í októ­ber 2008.

Gylgi gerir sterkt gengi krón­unnar meðal ann­ars að umtals­efni, og þá í sam­hengi við stöðu ferða­þjón­ust­unnar.

„Það eru þannig útflutn­ings­grein­arnar sjálfar sem hafa valdið styrk­ingu krón­unnar og hækkun raun­gengis. En hærra raun­gengi þýðir að hagn­aður í ferða­þjón­ustu af hverjum ferða­manni fer þá lækk­andi. Hvert fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu sem verður til þess að fjölga ferða­mönnum hér á landi með mark­aðs­setn­ingu, aug­lýs­ingum eða auknu sæta fram­boði í flugi stuðlar að hærra hlut­falls­legu verð­lagi sem skerðir sam­keppn­is­að­stöðu ann­arra aðila í grein­inni. Greinin sem heild vex þá of hratt í þeim skiln­ingi að hagn­aður gæti verið meiri við hæg­ari vöxt. En eitt fyr­ir­tæki tapar á því að draga umsvif sín saman á meðan önnur hagn­ast. Þess vegna hefur eng­inn hags­muni af því að gera það sem gæti verið ferða­þjón­ust­unni í heild í hag. Við slíkar aðstæður er þörf á afskiptum hins opin­bera. Þannig hefði verið unnt að fjölga lend­inga­stæðum á Kefla­vík­ur­flug­velli hægar, leggja á komu­gjöld eða hækka gistin­átta­gjöld en slíkt hefur ekki verið gert. Engin stjórn hefur þannig verið á fjölgun erlendra ferða­manna og þá hægir ein­ungis á henni þegar landið er orðið of dýrt fyrir marga ferða­menn,“ segir meðal ann­ars í grein hans.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár