Hagkvæmast að reisa margra milljarða sorpbrennslustöð í Álfsnesi

Urðun almenns sorps verður hætt í Álfsnesi árið 2023. Brennsla er talin betri kostur og hag­kvæm­ast væri að stað­setja slíka stöð í Álfsnesi. Kostn­aður við bygg­ing­una yrði á bil­inu 20-35 millj­arðar.

Gríðarlegt magn af almennu sorpi er fargað með urðun í Álfsnesi.
Gríð­ar­legt magn af almennu sorpi er fargað með urðun í Álfsnesi. Mynd: Úr ársskýrslu Sorpu

Hag­kvæm­ast væri að byggja brennslu­stöð fyrir almennt sorp í Álfsnesi að mati starfs­hóps um fram­tíð­ar­lausnir fyrir brenn­an­legan úrgang. Talið er að verk­efnið muni kosta um 27 millj­arða króna. Urð­un­ar­stað Sorpu í Álfsnesi verður lokað árið 2023. Allri urðun verður því hætt eftir tvö ár í mesta lagi. Mörg ár tekur að reisa brennslu­stöð, hvar sem henni verður að lokum fund­inn staður, og flytja verður almennt sorp út til förg­unar í milli­tíð­inni.

[adspot]

Skýrsla starfs­hóps um for­verk­efni til und­ir­bún­ings að inn­leið­ingu fram­tíð­ar­lausnar til með­höndl­unar á brenn­an­legum úrgangi í stað urð­unar var kynnt í dag. Að verk­efn­inu standa í sam­ein­ingu Kalka sorp­eyð­ing­ar­stöð sf., SORPA bs., Sorpstöð Suð­ur­lands bs., Sorp­urðun Vest­ur­lands hf. og umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið. Til­gangur verk­efnis er að skoða hvers konar brennslu­stöð þyrfti að byggja til að brenna þetta efni og vinna úr því orku.

Í skýrsl­unni kemur fram að brennsla á úrgangi sé álitin betri kostur við með­höndlun úrgangs en urðun. Þetta eigi meðal ann­ars við um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda við með­höndlun úrgangs. Útflutn­ingur á brenn­an­legum úrgangi er sem stendur fær en stefnu­breyt­ingar Evr­ópu­sam­bands­ins leiða af sér að miklar líkur eru á að sá far­vegur lok­ist á næstu árum.

Notast verður við bestu fáan­legu tækni í brennslu og hreinsun á afgasi. Gert er ráð fyrir einni vinnslu­línu sem afkastar rúm­lega 16 tonnum á klukku­stund. Í skýrsl­unni er bent á að nýlegar hátækni­úr­gangs­brennslur séu oft nálægt íbúa­byggð og að engar rann­sóknir hafi komið fram sem sýni fram á skað­leg áhrif af rekstri þeirra á heilsu fólks eða líf­ríki.

Sorp­brennslan yrði reist á suð­vest­ur­horni lands­ins þar sem meira en 80 pró­sent af úrgang­inum falla til. Gert er ráð fyrir að árið 2030 muni falla til á Íslandi allt að 130 þús­und tonn af almennu sorpi sem er brenn­an­legt. Brennslu­stöðin sem reist verður þarf að hafa slíka afkasta­getu þótt áætl­anir geri einnig ráð fyrir að með bættri flokkun og end­ur­vinnslu muni draga úr almennu sorpi, þessu sem fólk hendir í gráu tunn­urnar. Liður í því er að fólk fari að flokka sér­stak­lega líf­rænan úrgang sem úr verður svo hægt að fram­leiða moltu til jarð­vegs­gerðar. Áætlað er að vinnslan í brennslu­stöð­inni muni skila 10 MW af raf­orku og 28 MW af varma.

Til að setja þetta magn, 130 þús­und tonn af almennu sorpi, í sam­hengi má nefna að bíll af gerð­inni Toyota Auris, sem er frekar hefð­bund­inn fólks­bíll, er í kringum 1.200 kíló. Þyngd almenna sorps­ins sem falla mun til nemur því rúm­lega 108 þús­und slíkum bílum á ári. Magnið jafn­ast einnig á við um 23 pró­sent þyngdar alls bíla­flota lands­ins.

Fimm staðir skoðaðir

Starfs­hóp­ur­inn skoð­aði stað­ar­val frá ýmsum sjón­ar­hornum. Til grund­vallar voru lagðir fimm staðir sem til­greindir voru í skýrslu sem gerð var fyrir umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið 2020. Þetta eru Helguvík, Álfsnes, Straums­vík, Þor­láks­höfn og Grund­ar­tangi.

Á grunni flutn­inga­hag­kvæmni liggur bein­ast við að stað­setja vinnsl­una í Álfsnesi að mati starfs­hóps­ins og auka­legur kostn­aður á ári hverju við að stað­setja hana á öðrum stað er frá 23 (Straums­vík) og upp í 73 millj­ónir króna (Helguvík og Þor­láks­höfn).

Stað­ar­valið byggir á fleiri þáttum en hag­rænum. Auk kostn­aðar við flutn­inga má nefna sölu­mögu­leika á orku, jákvæða afstöðu sam­fé­lags­ins, að nægt land­rými sé til upp­bygg­ingar og hæfi­lega fjar­lægð frá íbúa­byggð. Einnig að gott aðgengi sé að vinnu­afli, að mögu­leikar séu til staðar á föngun CO2 og að ekki sé mikil hætta á nátt­úruvá.

Nið­ur­staðan er að Álfsnes sé hag­stæð­asti kost­ur­inn þegar litið er til þess­ara þátta, lítið eitt hag­stæð­ari en Helguvík og Straums­vík. Mat hóps­ins leiddi í ljós að bygg­ing hátækni­brennsl­unnar í Álfsnesi myndi fela í sér minnstan rekstr­ar­kostnað þar sem kostn­aður við flutn­ing úrgangs til stöðv­ar­innar væri lægstur.

Kostar 20-35 milljarða

Stofn­kostn­aður hefur verið met­inn með grófum hætti, sem og rekstr­ar­kostn­aður. Kostn­aður við bygg­ingu brennsl­unnar er áætl­aður á bil­inu 20 – 35 millj­arðar króna.

Fyrir liggur að hlið­gjöldin munu ráð­ast fyrst og fremst af því eign­ar­formi sem verður fyrir val­inu. Verði brennslan alfarið í opin­berri eigu er lík­legt að hlið­gjald þyrfti að vera 20 krónur á kíló en verði hún alfarið í einka­eigu er lík­legt að hlið­gjald yrði 40 krónur, segir í skýrsl­unni.

Í næsta áfanga verk­efn­is­ins þarf að stofna félag sem fær það hlut­verk að halda áfram und­ir­bún­ings­vinnu og þróa ítar­lega við­skipta­á­ætlun um verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár