Sérfræðingar ofmátu samdráttinn

Síðasta ár fór ekki nákvæm­lega eins og sér­fræð­ingar þriggja stærstu bank­anna, Seðla­bank­ans, Við­skipta­ráðs, ASÍ eða rík­is­stjórn­ar­innar spáðu fyrir um í þeim 15 hag­spám sem gerðar hafa verið frá síð­ustu apr­íll­okum.

Einkaneysla Íslendinga í fyrra var mun meiri en helstu greiningaraðilar gerðu ráð fyrir
Einka­neysla Íslend­inga í fyrra var mun meiri en helstu grein­ing­ar­að­ilar gerðu ráð fyrir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Allar hag­spár sem gerðar hafa verið af rík­is­stjórn­inni, bönkum og hags­muna­sam­tökum eftir að far­ald­ur­inn skall á af fullum þunga ofmátu sam­drátt í lands­fram­leiðslu í fyrra, miðað við bráða­birgð­ar­tölur Hagstofu. Sömu­leiðis ofmátu þau sam­drátt­inn í einka­neyslu og íbúða­fjár­fest­ingu, en van­mátu sam­drátt­inn í opin­berum fjár­fest­ingum.

Frá apr­íll­okum á síð­asta ári hafa Íslands­banki, Lands­bank­inn, Arion banki, Seðla­bank­inn, Hagstofa, fjár­mála­ráðu­neytið, Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) og Við­skipta­ráð gefið út sam­tals 15 hag­spár sem reynt hafa að meta efna­hags­leg áhrif heims­far­ald­urs­ins í fyrra. Þar af voru sex þeirra gefnar út stuttu eftir að fyrsta bylgja far­ald­urs­ins hafði skollið á, en níu þeirra komu út eftir að ljóst var að bylgj­urnar yrðu fleiri en ein.

Tölu­verður munur er á hag­spánum eftir því hvenær þær voru gerðar. Í fyrra­vor og byrjun sum­ars gerðu flestir grein­ing­ar­að­ilar ráð fyrir mjög snar­pri kreppu vegna far­ald­urs­ins, en töldu þó að efna­hags­lífið myndi taka fljótt við sér í ár. Enginn þeirra gerði ráð fyrir að veiran myndi blossa upp aftur í lík­leg­ustu spám sínum, en sumir bættu þó við þeim mögu­leika í dekkri sviðs­myndum sínum.

Síðasta haust höfðu svo for­sendur breyst nokkuð, þar sem ljóst var fáir ferða­menn myndu heim­sækja landið á seinni hluta árs­ins. Hins vegar bentu hag­tölur þá til þess að áhrif vaxta­lækk­ana á neyslu og íbúða­fjár­fest­ingu væru nokkuð umfram vænt­ingar og voru grein­ing­ar­að­ilar því bjart­sýnni á þróun þeirra und­ir­flokka eftir því sem leið á árið.

Viðskiptaráð sker sig úr

Samkvæmt haglík­ani Við­skipta­ráðs, sem birt var 27. apríl í fyrra, hefði mátt búast við 13 pró­senta sam­drætti í lands­fram­leiðslu í fyrra, gengi grunn­s­viðs­mynd þeirra upp. Vegna mik­illar óvissu um horfur í efna­hags­málum bætti ráðið þó við bjart­ari sviðs­mynd,sem gerði ráð fyrir 8 pró­senta sam­drætti, og dekkri sviðs­mynd, sem gerði ráð fyrir 18 pró­senta sam­drætti. Við­skipta­ráð hefur nú fjar­lægt dökku sviðs­mynd­ina af vef sínum, en enn er hægt að nálg­ast hinar tvær hér.

Á mynd hér að ofan má sjá sam­an­burð á spáðri breyt­ingu í lands­fram­leiðslu, einka­neyslu og verð­bólgu í fyrra í grunn­s­viðs­myndum allra grein­ing­ar­að­ila, miðað við bráða­birgð­ar­tölur Hagstofu sem birt­ust fyrr í vik­unni. Á henni sést að hag­spá Við­skipta­ráðs sker sig úr í væntum breyt­ingum í einka­neyslu og hag­vexti, en eng­inn annar grein­ing­ar­að­ili var nálægt því að spá svona miklum sam­drætti.

Verðbólga og útflutningur í samræmi við spár

Lang­flestar hag­spárnar inni­héldu þann fyr­ir­vara að þær gætu verið óná­kvæmar þar sem vænt efna­hags­þróun færi fyrst og fremst eftir fram­vindu heims­far­ald­urs­ins, sem mikil óvissa hefur ríkt um.

Hins vegar var þróun ýmissa hag­stærða í góðu sam­ræmi við flestar spárnar. Mest var nákvæmnin í verð­bólgu­spám, þar sem allar 15 hag­spárnar gerðu ráð fyrir því að verð­lag myndi að með­al­tali hækka um 2,2 til 2,9 pró­sent á árinu. Samkvæmt Hagstofu var verð­bólgan í fyrra innan þeirra marka, eða um 2,8 pró­sent.

Einnig var sam­drátt­ur­inn í útflutn­ingi í ágætu sam­ræmi við flestar spárnar. Ef frá eru taldar tvær spár var gert ráð fyrir því að útflutn­ingur vöru og þjón­ustu myndi drag­ast saman um 28 til 32 pró­sent. Samkvæmt bráða­birgð­ar­tölum Hagstofu nam sam­drátt­ur­inn 30,5 pró­sent, sem er nokkurn veg­inn í miðj­unni á því spá­bili. Sam­an­burð­inn á væntum breyt­ingum á verð­bólgu og útflutn­ingi má sjá á mynd hér að ofan.

Íbúðafjárfesting vanmetin

Aftur á móti áttu grein­ing­ar­að­il­arnir erf­ið­ara með að spá fyrir um íbúða­fjár­fest­ingu og fjár­fest­ingu hins opin­bera, líkt og sjá má á mynd hér að neðan. Búist var við 7 til 25 pró­senta sam­drætti í íbúða­fjár­fest­ingu, en nýj­ustu tölur benda til þess að hún hafi aðeins dreg­ist saman um eitt pró­sent. Eftir sem áður spáði Við­skipta­ráð mesta sam­drætt­inum.

Fjárfesting hins opinbera ofmetin

Einnig var mikið mis­ræmi milli spá- og raun­gilda í opin­berri fjár­fest­ingu. Í fyrstu spám sem birtar voru í vor var búist við „mynd­ar­legri“ aukn­ingu í virði fjár­fest­inga hins opin­bera, líkt og rík­is­stjórnin sagð­ist ætla að ráð­ast í í fjár­mála­á­ætlun sinni. Hins vegar kom í ljós eftir því sem leið á árið að minna myndi verða af fjár­fest­ing­unum heldur en yfir­völd höfðu lofað og gerðu nýj­ustu hag­spárnar sem gerðar voru í byrjun þessa árs fyrir 6 til 7 pró­senta sam­drætti í mála­flokknum. Samkvæmt nýj­ustu tölum Hagstofu dróst þó opin­ber fjár­fest­ing enn meira en talið var.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kenndi sveit­ar­fé­lögum um sam­drátt í opin­berri fjár­fest­ingu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma í síð­ustu viku. Hins vegar sýnir grein­ing frá Samtökum iðn­að­ar­ins að mesta mis­ræmi milli fram­kvæmda­á­ætl­ana og raun­veru­legra fram­kvæmda hafi verið hjá Vega­gerð­inni, ISAVIA og Orku nátt­úr­unnar, auk þess sem aðgerðir Land­spít­al­ans, Faxa­flóa­hafna og Lands­virkj­unar voru tölu­vert undir áætl­unum.

Uppfært kl. 16:04: Í upp­haf­legri útgáfu frétt­ar­innar stóð að mesta mis­ræmið á milli yfir­lýs­inga og fram­kvæmda hafi verið hjá Vega­gerð­inni, ISAVIA og Land­spít­al­anum. Misræmið var þó meira hjá Orku nátt­úr­unnar en hjá Land­spít­al­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár