Fámenn en afkastamikil

Langstærstur hluti íslenskra fyr­ir­tækja er með færri en 10 starfs­menn eða um 94 pró­sent þeirra. Lands­fram­leiðsla á mann á Íslandi var 30 pró­sent yfir með­al­tali ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins árið 2017. Lands­fram­leiðsla á mann er sú fimmta mesta í Evrópu.

Lang­flest fyr­ir­tæki lands­ins eru með færri en tíu starfs­menn í vinnu eða um 94 pró­sent þeirra. Yfir 30 þús­und virk fyr­ir­tæki starfa hér á landi með rúm­lega 134 þús­und starfs­menn. Rekstr­ar­tekjur þess­ara fyr­ir­tækja hafa numið rúm­lega 4.000 millj­örðum króna árið 2018. Þetta kemur fram í nýrri sam­an­tekt Hag­stof­unn­ar.

Rúm­lega 28 þús­und fyr­ir­tæki hér á landi eru með innan við tíu starfs­menn, sem gerir alls um 94 pró­sent. Rekstr­ar­tekjur þess­ara fyr­ir­tækja námu um 908 millj­örðum rkóna og skil­uðu þau 188 millj­örðum í vergan rekstr­ar­af­gang, EBITDA. Til sam­an­burðar voru ein­ungis 179 fyr­ir­tæki með 100 starfs­menn eða fleiri, en hjá þeim störf­uðu 51 þús­und starfs­menn og rekstr­ar­tekjur námu 1.800 millj­örðum króna og vergur rekstr­ar­af­gangur var 210 millj­arðar. [adspot]

Innflytjendur tæp 40 prósent annarra stærstu atvinnugreinar Íslands

[links]Flestir starfs­menn íslenskra fyr­ir­tækja starfa innan við­skipta­hag­kerfs­ins, að und­an­skil­inni fjár­mála- og vátrygg­ing­ar­starf­semi, eða alls 134.117 starfs­menn. Næst stærsta atvinnu­greinin eru ein­kenn­andi greinar ferða­þjón­ustu með 27.945 starfs­menn. Inn­flytj­endur eru tæp 40 pró­sent þeirra starfs­manna en 10.888 þús­und inn­flytj­endur starfa við ferða­þjón­ustu hér á landi. Af þeim starfa 7694 inn­flytj­endur við rekstur veit­inga­staða og gisti­húsa.

Landsframleiðsla á mann á Íslandi 30 prósent yfir meðaltali

Lands­fram­leiðsla á mann á Íslandi var þrjá­tíu pró­sent yfir með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ríkja árið 2017. Ísland var í fimmta sæti líkt og árið á undan en fyrir þremur árum var Ísland í átt­unda sæti og 26 pró­sent yfir með­al­tali.

Lúx­em­borg mestu lands­fram­leiðslu á mann árið 2017 þar sem lands­fram­leiðsla á mann var 153 pró­sent yfir með­al­tali og Írland í öðru sæti 81 pró­sent yfir með­al­tali. Lúx­em­borg sker sig úr þar sem fjöldi fólks starfar í land­inu og leggur því til lands­fram­leiðsl­unnar án þess þó að búa þar. Noregur er í sæt­inu fyrir ofan Ísland, Danmörk í sjö­unda sæti og Svíþjóð í því tíunda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár