Landsbankinn ætlar í mál vegna Borgunarsölunnar

Lands­bank­inn hefur falið lög­mönnum að und­ir­búa mál­sókn vegna söl­unnar á eign­ar­hlut bank­ans í Borgun.

Lands­bank­inn ætlar að fara í mál vegna söl­unnar á eign­ar­hlut bank­ans í Borgun hf. Bankinn hefur falið lög­mönnum að und­ir­búa mál­sókn „til þess að end­ur­heimta þá fjár­muni sem bank­inn fór á mis við í við­skipt­unum.“ Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá bank­anum hefur athugun innan hans gefið til kynna að til­efni sé til þess að und­ir­búa mál­sókn. Þessi vinna hafi staðið yfir um nokk­urt skeið. Steinþór Pálsson banka­stjóri Lands­bank­ans greindi fyrst frá því í Kast­ljósi á Rúv um miðjan febr­úar að Lands­bank­inn væri að kanna hvort kæra ætti stjórn­endur Borgunar vegna máls­ins.

Þá strax vís­uðu stjórn­endur Borgunar því á bug og sögðu „alvar­legar ásak­anir banka­stjór­ans um meint lög­brot ann­arra í þessu máli má sjálf­sagt skoða í ljósi þeirrar erf­iðu stöðu sem Lands­bank­inn er kom­inn í. Stjórn­endur Borgunar frá­biðja sér með öllu að vera gerðir að blóra­bögglum í þessu máli.“

Eins og Kjarninn hefur ítrekað fjallað um var 31,2 pró­senta hlutur í Borgun seldur bak við luktar dyr til val­inna fjár­festa, meðal ann­ars stjórn­enda Borgunar, undir lok árs­ins 2014. Hlut­ur­inn var seldur á 2,2 millj­arða króna og heild­ar­virði félags­ins var metið á um sjö millj­arða. Í febr­úar var virði fyr­ir­tæk­is­ins talið allt að 26 millj­arðar króna. Eftir á hefur komið í ljós að Borgun ætti rétt til greiðslna vegna val­réttar í tengslum við sam­runa Visa Inc. og Visa Europe ef hann yrði virkj­aður. Lands­bank­inn hefur sagt að hann hafi ekki verið upp­lýstur um þennan val­rétt. Því hefur Borgun hins vegar vísað á bug.

Borgun býst við því að fá 33,9 millj­ónir evra, um 4,8 millj­arða króna, í pen­ingum þegar Visa Inc. greiðir fyrir Visa Europe. Auk þess fær Borgun, líkt og aðrir leyf­is­hafar innan Visa Europe, afhent for­gangs­hluta­bréf í Visa Inc. að verð­mæti 11,6 millj­ónir evra, eða um 1,7 millj­arðar króna. Auk þess mun Visa Inc. greiða leyf­is­höfum afkomu­tengda greiðslu árið 2020 sem mun taka mið af afkomu starf­semi Visa í Evrópu á næstu fjórum árum, en hlut­deild Borgunar af þeirri fjár­hæð mun ráð­ast af við­skiptaum­svifum Borgunar sem hlut­fall af heild­ar­við­skiptaum­svifum allra selj­enda hluta­bréf­anna á þessum 4 árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár