Ísland þarf 2000 vinnandi útlendinga á ári næstu 15 ár

Íslenskt atvinnu­líf mun þurfa 2000 vinn­andi ein­stak­linga til lands­ins á hverju ári næstu fimmtán árin ef vöxt­ur­inn í atvinnu­líf­inu verður áfram eins og spáð er. „Við þurfum á erlendu vinnu­afli að halda, jafnt ófag­lærðu sem sér­mennt­uðu,“ sagði Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins, á Iðnþingi í dag.

„Ald­urs­sam­setn­ing þjóð­ar­innar er að gjör­breyt­ast og við þurfum fleiri vinn­andi hendur,“ segir Guðrún. Hin stóra kyn­slóð eft­ir­stríðs­ár­anna er á leið út af vinnu­mark­aði. „Í dag eru um sex vinn­andi á bak við hvern einn líf­eyr­is­þega. Eftir 25 ár er talið að ein­ungis þrír vinn­andi verði á bak við hvern líf­eyr­is­þega. Aukin útgjöld hins opin­bera sam­fara því kalla á aukin umsvif í hag­kerf­inu og þar gegnir atvinnu­lífið veiga­mesta hlut­verk­inu.“ Þessar stað­reyndir eigi ekki að koma á óvart.

„Við höfum á und­an­förnum árum misst þús­undir Íslend­inga til ann­arra landa, fólk sem leitar að betri lífs­gæðum, fólk sem vill auðga líf sitt og kynn­ast heim­inum betur. Okkur finnst sjálf­sagt að við getum ferð­ast út um allan heim en setjum okkur síðan í stell­ingar gagn­vart fólki sem hingað vill koma. Ísland er orðið fjöl­menn­ing­ar­legt sam­fé­lag og við eigum að fagna því að hingað kemur fólk sem sér tæki­færi í því að setj­ast hér að, stunda hér vinnu og byggja sér hér heim­ili. Það er engin ógn í því heldur nauð­syn­legur fjöl­breyti­leiki fyrir fámenna og eins­leita þjóð,“ sagði Guðrún meðal ann­ars. 

Áhyggjur af of fáum iðnaðarmönnum og íbúðum

Með­al­aldur iðn­að­ar­manna er mun hærri en með­al­aldur ann­arra starfs­stétta og það segir Guðrún vera áhyggju­efni og sýni að nýliðun sé ábóta­vant. „Síðasta haust völdu aðeins 14% grunn­skóla­nema starfs­menntun að loknu grunn­skóla­prófi en hefðu þurft að vera 25-30%. Nú ber svo við að mik­ill skortur er á nemum í húsa­smíði sem hingað til hefur verið fjöl­menn­asta iðn­greinin.“ Nú þurfi að taka höndum saman og gera nám og störf í iðn­greinum meira aðlað­andi.

Guðrún gerði hús­næð­is­mál einnig að umtals­efni. Það sé kraftur í íslenskum iðn­aði og bygg­inga­geir­inn sé að rétta úr kútnum eftir mörg mögur ár. „En betur má ef duga skal. Það er ekki byggt nóg því okkur vantar sár­lega fleiri íbúðir inn á mark­að­inn. Á síð­ustu sex árum hefur verið lokið við um 950 íbúðir árlega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þær hefðu þurft að vera um 2000 árlega til anna eft­ir­spurn.“

Á að verða til svigrúm fyrir lækkun tryggingagjalds

Batnandi staða rík­is­sjóðs ætti að gefa fjár­mála­ráð­herra svig­rúm til þess að efna lof­orð sín um að lækka trygg­inga­gjald fyr­ir­tækja um 1,5 pró­sent. „Þar með yrði trygg­ing­ar­gjaldið komið í svipað hlut­fall og það var árið 2008. Það myndi hjálpa fyr­ir­tækj­unum okkar mikið til að mæta þeim kostn­að­ar­auka sem kjara­samn­ing­arnir höfðu í för með sér.“ Vissu­lega séu kjara­samn­ing­arnir kostn­að­ar­samir og fram­hlaðnir, en ef mark­mið SALEK sam­komu­lags­ins eftir skap­ist grunnur að lang­þráðum stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði. „Stöð­ug­leiki eykur sam­keppn­is­hæfni okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár