Lífeyrissjóðirnir kaupa stóran hlut í Domino‘s Pizzum

Fram­taks­sjóð­ur­inn EDDA, sem er rek­inn af Virðingu en er í eigu líf­eyr­is­sjóða og ann­arra fag­fjár­festa, hefur keypt fjórð­ungs­hlut í Domíno‘s Pizza á Íslandi. Eða rétt­ara sagt í Pizza-Pizza ehf., sér­leyf­is­hafa Domino‘s Pizza International á Íslandi.

EDDA er fimm millj­arða króna fram­taks­sjóður sem fjár­festir í óskráðum félögum með trausta rekstr­ar­sögu. Sjóð­ur­inn var stofn­aður árið 2013 og á einnig 40 pró­sent hlut í örygg­is­fyr­ir­tæk­inu Securitas. Samkvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Eddu eru Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna (17,5 pró­sent) og Gildi líf­eyr­is­sjóður (13,2 pró­sent) tveir stærstu eig­endur sjóðs­ins.

Aðrir eig­endur Pizza-Pizza ehf. eru Birgir Þ. Bielt­vedt stjórn­ar­for­maður félags­ins og eig­in­kona hans Eygló Björk Kjart­ans­dóttir, sem einnig situr í stjórn Pizza-Pizza ehf., Högni Sig­urðs­son, Birgir Ö. Birg­is­son fram­kvæmda­stjóri og nokkrir aðrir lyk­il­stjórn­endur Domino‘s á Íslandi. Kaupin eru gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og sér­leyf­is­veit­anda Domino´s.

Kaup­verðið er ekki gefið upp.

Notað til að fjármagna útrás í Noregi og Svíþjóð


Í til­kynn­ingu vegna þessa kemur fram að rekstur Domino´s hafi gengið mjög vel á und­an­frönum árum, en fyr­ir­tækið rekur í dag 19 versl­anir á Íslandi. Um 600 starfs­menn starfa hjá Domino‘s hér á landi, ríf­lega helm­ingur þeirra í hluta­starfi. "Fyr­ir­tækið hefur verið fram­ar­lega í nýt­ingu tækni og náð að fjölga mjög pönt­unum í gegnum netið og Domino‘s far­síma-appið. Þá hafa nýj­ungar á mat­seðli fyr­ir­tæk­is­ins notið mik­illa vin­sælda og hefur mark­aðs­hlut­deild Domino´s hér á landi stór­auk­ist í tíð núver­andi stjórn­enda. Til marks um þennan góða árangur eru fjöl­mörg verð­laun sem fyr­ir­tækið hefur hlotið frá Domino’s í Banda­ríkj­unum fyrir góðan rekstur og sölu­met. Einnig hefur fyr­ir­tækið hlotið ýmsar inn­lendar við­ur­kenn­ingar fyrir mark­aðs­starf og var m.a. útnefnt mark­aðs­fyr­ir­tæki árs­ins fyrir árið 2013.

Domino‘s á Íslandi á meiri­hluta í sér­leyf­is­hafa Domino‘s í Noregi en þar hafa á und­an­förnum mán­uðum verið opn­aðir þrír staðir í sam­starfi við norska með­eig­endur sem notið hafa mik­illa vin­sælda. Aðkoma EDDU verður m.a. nýtt til að fjár­magna frek­ari vöxt í Noregi auk þess að und­ir­búa opnun Domino‘s staða í Svíþjóð en félagið er einnig með sér­leyfi fyrir Domino‘s í Svíþjóð."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár