Áhrif Seðlabankans á gengi krónunnar

Seðla­bank­inn hefur haft tölu­verð áhrif á gengi íslensku krón­unnar eftir afnám gjald­eyr­is­hafta, að sögn aðila á fjár­mála­mark­aði.

Seðlabanki Íslands.
Seðla­banki Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Gengi krón­unnar hefur sveifl­ast umtals­vert und­an­farnar vikur, en hún styrkt­ist mikið rétt eftir aflétt­ingu haft­anna. Síðustu sex viku hefur gengið þó veikst nær sam­fellt, en grein­ing­ar­að­ilar hafa bent á að inn­flæð­is­höft Seðla­bank­ans ættu lík­lega þátt í geng­is­veik­ing­unni. Und­an­farna daga hefur borið nokkuð á styrk­ingu, en aðal­hag­fræð­ingur Íslands­banka telur lík­legt að Seðla­bank­inn hafi unnið gegn henni með því að kaupa erlendan gjald­eyri.

Gagnrýna innflæðishöft

Á þriðju­dag­inn ítrek­uðu Samtök atvinnu­lífs­ins gagn­rýni sína á inn­flæð­is­höftum Seðla­bank­ans, en sam­tökin sögðu höftin vera skað­leg og þeim bæri að aflétta. Því til rök­stuðn­ings benda þau á umsögn Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins um Ísland, en í henni segir að engin rök séu fyrir inn­flæð­is­höftum vegna lækk­andi nafn­vaxta hér­lendis og hækk­andi vaxta erlendis. Í því sam­hengi megi minna á að fjár­fest­ingar erlendra aðila í rík­is­skulda­bréfum námu um þriðj­ungi af lands­fram­leiðslu þegar mest lét á árunum fyrir 2008, en nú sé hlutur þeirra 4%.

Agnar Tómas Möller, fram­kvæmda­stjóri sjóða hjá Gamma, sagði sömu­leiðis í við­tali við Við­skipta­mogg­ann á fimmtu­dag­inn að höft á inn­flæði erlends fjár­magns leiði til þess að krónan sveiflist meira en efni standa til. Með þeim eigi erlent fjár­magn ekki greiða leið inn á meðan inn­lendir aðilar horfa í auknum mæli til erlendra fjár­fest­inga.

Styrking og mögulegt inngrip SÍ

Mynd hér að neðan er skjá­skot af Keldunni, en hún sýnir um 2% geng­is­veik­ingu allra helstu gjald­miðla á tíma­bil­inu 13:00-14:00 á fimmtu­dag­inn. Í gær átti sér stað svipuð hreyf­ing á gjald­miðl­unum, en þá veikt­ust þeir allir gagn­vart krón­unni um 2% milli 13:00 og 15:00.

Samkvæmt Jóni Bjarka Bents­syni, aðal­hag­fræð­ingi Íslands­banka, er lík­legt að Seðla­bank­inn hafi gripið inn í gjald­eyr­is­mark­að­inn á fimmtu­dag­inn til þess að sporna við styrk­ingu krón­unnar. Seðla­bank­inn hafi gefið það út að hann myndi kaupa eða selja erlendan gjald­eyri ef hætta væri á svo­kall­aðri „spíral­myndun“ á mark­aðnum.

Upp­lýs­ingar um gjald­eyr­is­við­skipti Seðla­bank­ans birt­ast með nokk­urra daga töf, en Stefán Jóhann Stef­áns­son, upp­lýs­inga­full­trúi Seðla­bank­ans, vildi ekki gefa upp­lýs­ingar um við­skipti fimmtu­dags­ins þegar Kjarninn bað um þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár