Bankaskattur rýri eignir skattborgara

Ef banka­skattur er lagður á áfram geta eignir skatt­borg­ara rýrnað, það mun hafa áhrif á arð­greiðslur og virði eigna sem eru í eigu rík­is­ins. Þetta segir Katrín Júl­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Sjónvarpsþáttur Kjarnans er á Hringbraut.
Sjón­varps­þáttur Kjarnans er á Hring­braut. Mynd: Hringbraut

Íslenska banka­kerfið hrundi í októ­ber 2008, en hvað svo og hver er staðan á banka­kerf­inu núna? Fyrir hvern er banka­kerfið og hvern þjón­ustar það?

Þessum spurn­ingum og fleirum er velt upp í Kjarn­anum á Hring­braut þessa vik­una. Þórður Snær Júl­í­us­son og Þórunn Elísabet Boga­dóttir eru sem fyrr stjórn­endur þátt­ar­ins, en Katrín Júl­í­us­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra og núver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja, er gestur þátt­ar­ins í þess­ari viku.

Meðal þess sem Katrín ræðir er afstaða fjár­mála­fyr­ir­tækja til banka­skatts­ins. Fjár­mála­kerfið á Íslandi hafi breyst mjög mikið, ekki síst með til­komu mik­illa lán­veit­inga líf­eyr­is­sjóða. Bank­arnir standi ekki jafn­fætis líf­eyr­is­sjóð­unum þar sem banka­skatt­ur­inn sé bara lagður á banka. Það sama eigi við gagn­vart erlendum lán­veit­endum, sem séu aftur orðnir mjög sterkir hjá stóru fyr­ir­tækj­unum á Íslandi.

[adspot]

„Þannig að sam­keppn­is­staða bank­anna hefur skekkst mjög mikið og þetta getur til lengri tíma haft mjög alvar­leg áhrif á eigna­söfn þess­ara banka og við skulum þá ekki gleyma því að bank­arnir eru í eigu rík­is­ins og skatt­borgar­anna að tveimur þriðju hluta til. Þannig að virði eigna skatt­borgar­anna í þessu til­viki eru og geta rýrnað þegar til lengri tíma lætur ef þessi skattur heldur áfram vegna þess að sam­keppn­is­staðan er ekki sú sama,“ segir Katrín. Þetta muni hafa áhrif á arð­greiðslur og á virði þess­ara eigna sem séu í eigna rík­is­ins í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár