Atvinnuleysi ekki minna síðan fyrir hrun

Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í júní síðan árið 2008.
Atvinnu­leysi hefur ekki mælst minna í júní síðan árið 2008. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Atvinnu­leysi á Íslandi í júní­mán­uði hefur ekki mælst jafn lágt síð­ast­liðin átta ár eða síðan í júní árið 2008. Atvinnu­leysið var 2,3 pró­sent, sam­kvæmt frétt á vef Hag­stof­unnar og atvinnu­þátt­takan 85,3 pró­sent sem er örlítið minna en í sama mán­uði í fyrra.

Atvinnu­leysi mælist alla jafna lægst í júní, júlí og ágúst þegar atvinnu­rek­endur ráða fólk í sum­ar­afleys­ingar vegna sum­ar­fría. Atvinnu­leysið er hins vegar yfir­leitt mest í apríl og maí vegna nýrrar eft­ir­spurnar ungs fólks á aldr­inum 16 til 24 ára eftir bæði sum­ar­störfum og fram­tíð­ar­störfum.

[adspot]

Sé leið­rétt fyrir þessum árs­tíða­bundnu sveiflum þá mælist atvinnu­leysið 2,6 pró­sent, örlítið meira en það var í maí þegar það mæld­ist 2,2 pró­sent. Sé leitni gagn­anna síð­ustu ár skoðuð sést ber­sýni­lega að atvinnu­leysi fer minnk­andi á Íslandi. Sé aðeins horft til síð­ustu sex mán­aða sést að atvinnu­leysi hefur minnkað um 0,4 pró­sentu­stig. Sé hins vegar horft til alls síð­asta árs, eða síð­ustu 12 mán­aða, sést að atvinnu­leysið hefur minnkað um 1,2 pró­sentu­stig.

Í sund­ur­liðun talna Hag­stof­unnar sést að fleiri konur eru atvinnu­lausar en karlar. Alls er atvinnu­leysið 2,3 pró­sent. Meðal kvenna er það 2,5 pró­sent en 2,1 pró­sent meðal karla. Mun fleiri konur eru utan vinnu­mark­aðar en karlar. Þeir sem eru utan vinnu­mark­aðar eru um það bil 34.800 manns, eða 14,7 pró­sent af áætl­uðum fjölda fólks á aldr­inum 16 til 74 ára. Tveir þriðju þess hóps eru konur.

Vinnumarkaður 16 til 74 ára í júní 2016

Mæling Hag­stof­unnar á atvinnu­leysi er gert með hefð­bund­inni könnun. Fyrir mæl­ing­arnar í júní var haft sam­band við 1.517 ein­stak­linga á aldr­inum 16 til 74 ára sem valdir voru af handa­hófi úr þjóð­skrá. Þessi hópur minnk­aði í 1.481 þegar frá voru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis. Enn fækk­aði í hópnum þegar aðeins not­hæf svör voru talin til. Nothæf svör feng­ust frá 1.049 ein­stak­lingum og svör­un­ar­hlut­fallið því 70,8 pró­sent. Nið­ur­stöð­urnar eru vegnar eftir kyni og aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár