Hagsmunasamtök í atvinnulífinu styðja þriðja orkupakkann

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um þriðja orku­pakk­ann er nú til með­ferðar á Alþingi og hefur utan­rík­is­mála­nefnd sent út umsagn­ar­beiðnir um til­lög­una. Hags­muna­sam­tökin SVS, FA, VÍ, SA og SI segj­ast öll styðja sam­þykkt til­lög­unnar á Alþingi í umsögnum sínum.

Samtök verslunar og þjónustu, Viðskiptaráð Íslands, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins styðja öll að Alþingi samþykki þingsályktunartillögu um þriðja orkupakkann. Þetta kemur fram í umsögnum samtakanna á vef Alþingis. Tillagan er nú til umfjöllunar í utanríkismálanefnd en ljóst er að þriðji orku­­pakk­inn er orðin að heitu póli­­tísku máli hér á landi.

Sammála um mikilvægi EES-samningsins fyrir Ísland

[links] Guðlaugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um ­þriðja orku­pakk­ann á Alþingi þann 8. apríl síðastliðinn. Málið gekk síðan til utanríkismálanefndar þann 9. apríl og sendi nefndin út 131 umsagnarbeiðni og 41 umsögn var skilað en fresturinn rann út þann 6. maí síðastliðinn.

Samtök verslunar og þjónustu, Viðskiptaráð Íslands, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins voru á meðal þeirra sem skiluðu inn umsögn til utanríkismálanefndar. Öll fimm samtökin eru sammála um að Alþingi eigi að samþykki þingsályktunartillöguna um þriðja orkupakkann. Í umsögnunum samtakanna er fjallað um mikilvægi EES-samningsins fyrir íslenskt atvinnulíf og íslenskt samfélag. Auk þess er ítrekað í umsögnum samtakanna að þriðji orkupakkinn skyldi ekki íslensk stjórnvöld til að leggja sæstreng og haggi ekki yfirráðum Íslands yfir orkuauðlindum.

Ítarleg umsögn í ljós umræðunnar

Í umsögn Viðskiptaráðs Íslands segir að ráðið telji það rétt að samþykkja tillöguna, enda styðji hún skilvirkni og samkeppni á raforku án þess að skaða að neinu leyti hagsmuni lands og þjóðar. Að mati ráðsins byggjast einu verulegu álitamálin varðandi pakkann á sæstreng til Evrópu, sem ekki er fyrir að fara hér á landi og verður ekki án samþykkis Alþingis líkt og kveðið er á um í þingsályktunartillögunni.

Jafnframt segir í umsögninni að þrátt fyrir að Ísland hafi lagalegan rétt til að hafna innleiðingu EES-gerða eru pólitískar afleiðingar þess hins vegar óljósar og gætu skaðað hagsmuni Íslands. Þá ítrekar ráðið að hagsmunir íslensku þjóðarinnar af EES-samningnum vega mun þyngra en óskilgreindir og hugsanlegir annmarkar við innleiðingu orkupakkans.

Í umsögninni segir jafnframt að undir eðlilegum kringumstæðum kalli innleiðing þessarar EES-gerðar ekki á ítarlega umsögn Viðskiptaráðs en í ljósi þess hvert umræðan um málið sé komin geti ráðið ekki annað en fjallað ítarlega um málið. Ráðið fer því yfir lögfræðileg og hagfræðileg álitaefni þingsályktunartillögunnar í 15 blaðsíðna umsögn sinni.

Alþjóðleg samvinna í orkumálum mun auðvelda viðureignina við loftslagsbreytingar

Samtök atvinnulífsins greina frá því í umsögn sinni að löggjöf um orku- og loftslagsmál muni halda áfram að þróast og auk löggjafar sem nú er til meðhöndlunar á Alþingi séu á döfinni enn frekari breytingar á lögum og reglum sem þessu sviði tengjast. „Það er því mikilvægt fyrir hagsmuni Íslands, atvinnulífsins og fólksins í landinu að halda áfram samstarfinu við ESB um orku- og loftslagsmál. Alþjóðleg samvinna á þessu sviði mun auðvelda viðureignina við loftslagsbreytingar,“ segir í umsögn SA.

Þá segj­ast Samtök atvinnu­lífs­ins styðja sam­þykkt þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar og inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans. Jafn­framt segir í umsögn­inni að í því felist líka stuðn­ingur við þing­mál nr. 782, 791 og 792. Í þeim þing­málum eru lagðar til ein­staka breyt­ingar á raf­orku­lögum og þings­á­lyktun um stefnu stjórn­valda um upp­bygg­ingu flutn­ings­kerfis raf­orku sem sækja stoðir sínar í þær EES-gerðir sem undir áður­nefndan orku­pakka falla, þar með talið hlut­verk og sjálf­stæði Orku­stofn­unar sem eft­ir­lits­að­ila með sér­leyf­is­hluta hins íslenska orku­mark­aðar.

Kalla eftir skýrara eftirliti með raforkufyrirtækjum

Samtök iðn­að­ar­ins benda á í sinni umsögn að EES-samn­ing­ur­inn hefur síð­asta ald­ar­fjórð­ung­inn átt ríkan þátt í auk­inni hag­sæld þjóð­ar­innar og búið bæði atvinnu­lífi og almenn­ingi traust­ara rétt­ar­um­hverfi. Samtökin telja því engin efn­is­leg rök standa til þess að hér­lend starf­semi og hags­munir sem grund­vall­ast á því hag­ræði sem EES-samn­ing­ur­inn felur í sér sé sett í upp­nám vegna þessa máls.

Jafn­framt segir í umsögn­inni að þær til­lögur sem getið er um í þriðja orku­pakk­anum séu í raun ekki nýmæli heldur ein­göngu verið að skerpa á þeim reglum sem þegar gilda, þar með talið kröfum um eft­ir­lit, neyt­enda­vernd, orku­ör­yggi og virk­ari sam­keppni. Í umsögn­inni segir að öðru máli gildir um fjórða orku­pakk­ann og segja sam­tökin það brýnt íslensk stjórn­völd haldi á lofti sér­stöðu Íslands sér í lagi hvað varðar end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa og þarf sú hags­muna­gæsla að hefj­ast nú þegar.

Að lokum mælist Samtök Iðn­að­ar­ins með því að umrædd þing­mál verði sam­þykkt og að þriðji orku­pakk­inn verði þar af leið­andi sam­þykktur hér á landi. Samtökin ítreka þó mik­il­vægi þess að stjórn­völd stuðla að enn skýr­ari eft­ir­liti með raf­orku­fyr­ir­tækjum en sam­tökin telja að eft­ir­lit með þessum þáttum sé ekki enn full­nægj­andi.

Annmarkar orkupakkans illa skilgreindir í almennri umræðu

Í umsögn Félags atvinnu­rek­enda segir að það sé hagur félags­manna FA og atvinnu­lífs­ins í heild að rekstur EES-samn­ings­ins gangi sem greið­ast fyrir og að íslensk stjórn­völd standi við skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt samn­ingnum.

„Félag atvinnu­rek­enda telja það algjör­lega til­efn­is­laust og raunar ábyrgð­ar­laust að setja EES sam­starfið í upp­nám vegna máls, sem felur í sér minni­háttar breyt­ingar á íslenzkri lög­gjöf og mark­aðs­að­stæðum,“ segir í umsögn­inni.

Félag atvinnu­rek­anda segj­ast því mæla ein­dregið með því að þings­á­lykt­un­ar­til­lagan ásamt tengdum málum nái óbreytt fram að ganga.

Í umsögn Samtök versl­unar og þjón­ustu um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una segir að þeir ann­markar á inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans sem teflt hefur verið fram í almennri umræðu að und­an­förnu séu illa skil­greindir og óljósir að mati sam­tak­anna. „Verði ákvörð­un­ar­taka um sam­þykkt til­lög­unnar byggð á til­vist þeirra er ekki ein­ungis hætt við að meiri hags­munum verði fórnað fyrir minni heldur einnig að ríkum og skýrum hags­munum verði fórnað fyrir óljósa, illa skil­greinda og í öllu falli tak­mark­aða hags­muni. Þar með yrði skýrum heild­ar­á­bata fórnað af þarf­leysu.“

Að mati sam­tak­anna eru þeir hags­munir sem Ísland og íslenskt sam­fé­lag hefur af inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans­verði í öllu til­liti mun rík­ari, enda taki orku­pakk­inn ekki yfir­ráð yfir orku­auð­lind­unum úr höndum íslensku þjóð­ar­innar. Því leggja SVÞ ein­dregið til að þings­á­lykt­un­ar­til­lagan verði sam­þykkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár