SÍN í stað LÍN

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur birt drög að nýjum lögum um LÍN í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Með frum­varp­inu er lagt til að inn­leitt verði nýtt náms­styrkja­kerfi sam­hliða náms­lána­kerfi.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur birt drög að nýjum lögum um náms­lána­kerfið LÍN í sam­ráðs­gátt. Með frum­varp­inu er lagt til að inn­leitt verði nýtt náms­styrkja­kerfi sam­hliða náms­lána­kerf­inu og nafni sjóðs­ins í kjöl­farið breytt í SÍN, stuðn­ings­sjóður íslenskra náms­manna.

Helstu breyt­ing­arnar sem lagðar eru til með frum­varp­inu eru að þeir sem ljúka próf­gráðu innan til­greinds tíma geti fengið náms­styrk sem nemur 30 pró­sentum af höf­uð­stól náms­láns, auk þess sem náms­styrkur verður veittur vegna fram­færslu barna lán­þega.

Þriðja atlagan að breyttu lánakerfi

[links]Í des­em­ber í fyrra skip­aði mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra starfs­hóp um lána­kjör Lána­sjóðs íslenskra náms­manna. Frum­varpið er samið út frá til­lögum starfs­hóps­ins og er mark­miðið með frum­varp­inu að ganga skref­inu lengri í átt að því að tryggja hags­munum náms­manna á Íslandi betur en gert hefur verið.

Frum­varpi er þriðju atlagan að breyt­ingu á náms­lána­kerf­inu en tæp 30 ár eru liðin frá setn­ingu núgild­andi laga um Lánasjóð íslenskra náms­manna. Námsmenn hafa á und­an­förnum árum kallað eftir bættu náms­lána­kerfi og auknum fjár­hags­legum stuðn­ingi við nám sitt frá íslenska rík­inu.

Félagslegur jöfnunarsjóður

Í fyrra tók Ísland þátt í sam­an­burð­ar­könnun á högum evr­ópska háskóla­nema í 28 ríkjum í Evrópu. Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar sýndu að íslenskir náms­menn hafi almennt miklar fjár­hags­legar áhyggjur og meta fjár­hags­stöðu sína slæma. Samkvæmt könn­un­inni meta 34 pró­sent íslenskra háskóla­nema fjár­hags­stöðu sína annað hvort alvar­lega eða mjög alvar­lega. Þetta hlut­fall er þó nokkuð yfir með­al­tali, en í Evrópu er með­al­talið 26 pró­sent. [adspot]

Að sama skapi hafa kann­anir sem gerðar hafa verið á vegum Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ina, OECD, sýnt fram á að háskóla­nemar hér á landi eru almennt eldri en gengur og ger­ist ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. Hvergi er jafn lágt hlut­fall í yngsta ald­urs­hópnum, 24 ára og yngri, og að sama skapi er hvergi jafn hátt hlut­fall nema í elstu ald­urs­hóp­unum, 30 ára og eldri.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að frum­varp­inu er ætlað að tryggja jafn­rétti til náms á Íslandi og að hér sé kerfi sem dragi úr aðstöðumun í sam­fé­lag­inu og tryggi eftir því sem kostur er öllum sem í hlut eiga jafna mögu­leika og jöfn tæki­færi. Þannig á mögu­leiki á menntun að vera án til­lits til land­fræði­legra aðstæðna, kyns eða efna­hags­legra og félags­legra aðstæðna.

Með frum­varp­inu er því lagt til til að nafni Lána­sjóðs íslenskra náms­manna verði breytt í Stuðn­ings­sjóð íslenskra náms­manna og að hann verði rek­inn sem félags­legur jöfn­un­ar­sjóður.

30 prósent niðurfærsla af höfuðstól

Í frum­varp­inu má finna nýmæli sem snýr að styrkjum til lán­þega náms­lána. Almenna beina styrki til lán­þega náms­lána er ekki að finna í núgild­andi náms­lána­kerfi á Íslandi en slík styrkja­kerfi eru hins vegar við lýði á öðrum Norð­ur­löndum. Í frum­varpi er lagt til að náms­menn geti áunnið sér styrki ljúki þeir próf­gráðu innan til­greinds tíma. Fjárhæð náms­styrks­ins verður 30 pró­sent nið­ur­færsla af höf­uð­stól náms­láns­ins að námi loknu. Styrkirnir eru því ekki ætl­aðir til fram­færslu meðan á námi stendur enda falla þeir ekki til fyrr en að námi loknu.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að ástæða þess að þessi leið sé valin sé vegna þess að hún sé „langtum ein­fald­ari og skil­virk­ari“ en til dæmis það styrkja­kerfi sem þekk­ist í Danmörku þar sem styrkirnir eru greiddir út líkt og náms­lán hér­lendis. „Með þessu kerfi verið að hvetja náms­menn til að ljúka námi á til­skildum tíma. Þetta er nauð­syn­legt til að ná því mark­miði sem styrkirnir eiga m.a. að stuðla að, þ.e. að sporna við þeirri þróun að náms­menn íleng­ist að óþörfu í námi.“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Í grein­ar­gerð­inni segir jafn­framt að náms­menn á Ísland eru lík­legri til að hafa fjöl­skyldu á fram­færi en náms­menn í öðrum Evr­ópu­ríkjum. Samkvæmt fyrr­nefndri sam­an­burð­ar­könnun á högum háskóla­nema átti þriðj­ungur svar­enda á Íslandi eitt barn eða fleiri, sem er hæsta hlut­fall meðal þátt­töku­ríkj­anna, og 41,2 pró­sent yngstu barna voru yngri en þriggja ára.

Í ljósi þess­ara aðstæðna náms­manna og til að styrkja SÍN sem félags­legan jöfn­un­ar­sjóð var ákveðið að veita beinan styrk á meðan námi stendur vegna barna lán­þega náms­lána. Í frum­varp­inu er tekið fram að lagt sé til að náms­styrkirnir verða und­an­skildir skatt­i.

Námslán greidd út mánaðarlega

Enn fremur er lagt til í frum­varp­inu að heim­ilt verði að greiða náms­lán út mán­að­ar­lega en náms­menn hafa allt frá setn­ingu núgild­andi laga barist fyrir því að sam­tíma greiðslur yrðu settar á að nýju.

Auk þess er gert ráð fyrir því að meg­in­reglan verði að náms­lán skulu greidd með mán­að­ar­legum afborg­unum og að fullu end­ur­greidd á því ári þegar lán­þegi nær 65 ára aldri. Lán­þegar geta einnig valið hvort þeir þrepa­skipti end­ur­greiðslum náms­lána sinna eða end­ur­greiði með tekju­tengdum afborg­unum séu náms­lok hans áður eða á 35 ald­ursári. Auk er lögð til sú breyt­ing að við náms­lok geti lán­þegi valið um hvort hann end­ur­greiði náms­lán sín með verð­tryggðu eða óverð­tryggðu skulda­bréfi.

Með frum­varpi eru einnig lagðar til heim­ildir handa ráð­herra að veita tíma­bundna ívilnun við end­ur­greiðslur náms­lána vegna til­tek­inna náms­greina og handa lán­þegum sem eru búsettir og starfa í brot­hættum byggð­um. Heim­ild­irnar eru ætl­aðar til þess að gefa ráð­herra tæki­færi til þess að bregð­ast við ástandi þar sem skortur er við­var­andi eða fyr­ir­sjá­an­legur á fólki með til­tekna menntun með því að skapa sér­stakan hvata til þess að sækja þá menntun eða starfa í til­tek­inni starfs­grein og/eða til þess að bregð­ast við ástandi þar sem vöntun er á mennt­uðum ein­stak­lingum í brot­hættum byggð­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár