Ekki gengið nógu langt í átt að afnámi hafta

Hag­fræði­stofnun HÍ segir löngu tíma­bært að afnema höftin alveg, en gagn­rýnir að frum­varp fjár­mála­ráð­herra gangi ekki nógu langt í átt þess. Stofn­unin segir fram­komu íslenskra yfir­valda gagn­vart erlendum fjár­festum skaða orð­spor Íslend­inga erlendis.

Frumvarp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra um losun fjár­magns­hafta gengur ekki nógu langt í þá átt að afnema höft á við­skipti með íslenskar krónur, sem þó er löngu tíma­bært. Þetta segir Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands. Ráða megi af frum­varp­inu að höftin muni áfram um all­langa fram­tíð tor­velda við­skipti með íslenskar krónur.

„Erfitt er að sjá rök fyrir því að setja strang­ari reglur um við­skipti með íslenskar krónur en tíðkast um gjald­miðla grann­ríkja,“ segir meðal ann­ars í umsögn Hag­fræði­stofn­unar um frum­varpið.

Voru óvirk þar til Már tók við

Hag­fræði­stofnun segir að höftin hafi að miklu leyti verið óvirk strax sum­arið 2009 og allt hefði stefnt í að örlög þeirra yrðu svipuð og ann­ars staðar þar sem höft hafi verið sett á af svip­uðu til­efni á nýliðnum árum, það er að þau yrðu afnumin án þess að margir tækju eftir því og án þess að þess sæj­ust veru­leg merki á mörk­uðum. Þetta hafi breyst þegar Már Guð­munds­son tók við sem Seðla­banka­stjóri haustið 2009 og höftin voru hert. Frá þeim tíma hafi útlend­ingar sem eigi fé á Íslandi fengið mörg færi á að flytja fé sitt héðan í upp­boðum, en minni áhugi hafi verið á því en Seðla­bank­inn hafi búist við. „Þeir töldu gengi krón­unnar í útboð­inu of lágt. Með öðrum orðum höfðu útlend­ing­arnir meiri trú á krón­unni en bank­inn. Erfitt er að sjá að krónu­eign þeirra skapi mikla hættu fyrir krón­una.“

Höft á gjald­eyr­is­við­skipti geti valdið stór­tjóni, til dæmis fyrir líf­eyr­is­sjóði sem þurfi að eiga stóran hlut af eignum sínum erlendis ef vel eigi að vera. „Það dregur úr áhættu sjóð­fé­laga og vænt ávöxtun að gef­inni áhættu vex. Þvinguð eign í íslenskum verð­bréfum skapar hættu á að bólur verði til á inn­lendum mark­aði.“

Þegar bank­arnir hrundu hafi erlend verð­bréfa­eign líf­eyr­is­sjóða dregið úr tapi þeirra. „Þegar eigna­verð hrapar næst hér á landi, þegar bakslag verður í hag­kerf­inu, verður erlend verð­bréfa­eign ekki sami bak­hjarl og 2008.“

Framganga yfirvalda skaði orðspor Íslendinga

Þá segir Hag­fræði­stofnun að höftin hafi leitt til óþæg­inda í dag­legu lífi fólks, það hafi átt erfitt með að flytj­ast úr landi, ekki fengið arf fluttan til útlanda og útlend­ingar á Íslandi hafi ekki getað greitt vexti og afborg­anir af lánum í heima­landi sínu. „Á frjálsum mark­aði ræðst gengi gjald­miðla ekki síst af almennri trú á hag­stjórn landa sem gefa gjald­miðl­ana út. Fjár­magns­höft koma í veg fyrir að gengi krón­unnar sé nýti­legur mæli­kvarði á gæði hag­stjórnar hér á landi. Enn er ótalið að höftin og fram­ganga yfir­valda gagn­vart erlendum fjár­festum skaða orð­spor Íslend­inga í öðrum löndum.“

Hag­fræði­stofnun fjallar einnig um að í upp­hafi frum­varps­ins segi að allar fjár­magns­hreyf­ingar séu óheim­ilar, en svo séu taldar upp und­an­tekn­ingar. Stofn­unin segir að sér­reglur sem ráð­ist af til­efni gjald­eyr­is­við­skipta, þjóð­erni þeirra sem eigi við­skiptin eða félags­legri stöðu þeirra séu þung­lama­legar og hamli gegn skil­virkni í hag­kerf­inu.

„Ekki má gleyma því að óheft milli­landa­við­skipti eru miklu mik­il­væg­ari fyrir smá­þjóðir en þær sem stærri eru. Ef ætl­unin er að draga úr hættu á skyndi­legum geng­is­hreyf­ingum má gera það með reglum sem gilda fyrir alla - til dæmis tíma­bundnum útgöngu­skatti. Óvíst er þó að ástæða sé til þess að setja slíkar reglur núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár