Ný tilgáta horfir á kynhneigð út frá nýju sjónarhorni

Sam­kyn­hneigð er bæði eðli­leg og algeng í dýra­rík­inu. Í stað þess að spyrja af hverju dýr sýni sam­kyn­hneigða hegðun ætti spurn­ingin fremur að vera „af hverju ekki?“

Af hverju ekki?
Af hverju ekki? Í stað þess að spyrja af hverju dýr sýni sam­kyn­hneigða hegðun ætti að spyrja af hverju ekki? Mynd: Shutterstock

Vís­inda­menn hafa lengi klórað sér í höfð­inu yfir því af hverju sam­kyn­hneigð hegðun hefur þró­ast í eins mörgum og ólíkum dýra­teg­undum og raun ber vitni. Ný til­gáta horfir á málið frá öðru sjón­ar­horni en áður. Lagt er til að sam­kyn­hneigð hegðun hafi í raun verið lengur til staðar en áður var talið, fremur en að hafa þró­ast sjálf­stætt hjá mis­mun­andi teg­undum.

Samkynhneigð hegðun skráð hjá yfir 1.500 tegundum

Sam­kyn­hneigð hegðun kall­ast það þegar dýr sýna kyn­hegðun gagn­vart dýri af sama líf­fræði­lega kyni og það sjálft. Þessi hegðun þýðir þó ekki endi­lega að við­kom­andi dýr sýni alltaf kyn­hegðun gagn­vart dýrum af sama kyni. Sam­kyn­hneigð hegðun hefur í dag verið skráð hjá vel yfir 1.500 dýra­teg­undum og er ljóst að slík hegðun er bæði eðli­leg sem og töl­vert algeng innan dýra­rík­is­ins.

Það er aug­ljóst mál að þegar kemur að því að fjölga ein­stak­lingum af ákveð­inni teg­und kemur sam­kyn­hneigð hegðun …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Þekking

Alheim­ur­inn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stór­virki mann­kyns­ins, James Webb geim­sjón­auk­inn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetr­ar­brauta alheims­ins. Hvar og hvenær kvikn­aði fyrsta ljósið í alheim­inum? Hvernig verða stjörnur og sól­kerfi til? Hvernig mynd­uð­ust vetr­ar­braut­irnar? Hvaða eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika þurfa plánetur og sól­kerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýr­ari, skarp­ari og glæsi­legri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár