Kvika banki sektaður um 18 milljónir af Fjármálaeftirlitinu

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur lokið skoðun sinni á útgáfu skulda­bréfa­flokks­ins OSF II 18 01, sem Kvika banki bauð fjár­festum upp á árin 2018 og 2019. Bankinn hefur fall­ist á að greiða 18 millj­óna króna sekt­ar­greiðslu.

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands og Kvika banki gerðu í lok apríl með sér sam­komu­lag um að bank­inn greiddi 18 milljón króna sekt, fyrir að hafa brotið gegn ákvæðum ákvæðum laga um verð­bréfa­við­skipti. Brotin áttu sér stað í tengslum við sölu og mark­aðs­setn­ingu á skulda­bréfa­flokknum OSF II 18 01, sem bank­inn bauð upp á sem fjár­fest­ing­ar­kost árin 2018 og 2019.

Alls var um það bil fimm millj­arða skulda­bréfa­út­gáfu að ræða, sem Fjár­mála­eft­ir­litið segir að hafi brotið gegn lögum um verð­bréfa­við­skipti í nokkrum liðum. Brotin telj­ast gróf, að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, en sáttin var opin­beruð á vef Seðla­banka Íslands í dag.

Í sátt­inni kemur fram að bank­inn hafi ekki sinnt skyldum sínum um grein­ingu hags­muna­á­rekstra áður en til við­skipta almennra fjár­festa með skulda­bréfið var stofnað. Þá hafi upp­lýs­inga­gjöf um fjár­fest­ing­ar­kost­inn til við­skipta­vina ekki verið nógu ítar­leg eða grein­ar­góð og að upp­lýs­ingar og umfjöllun um fjár­fest­ing­ar­kost­inn sem og aðila tengdum honum hafi ekki upp­fyllt kröfur um að vera skýr, sann­gjörn og ekki vill­andi.

Einnig hafi bank­inn ekki sinnt skyldum sínum um mat á hæfi í til­vikum 30 við­skipta­vina og um flokkun við­skipta­vina í fimm til­vikum.

Þetta er í fjórða sinn á síð­ustu fimm árum sem Kvika banki brýtur gegn ákvæðum laga á fjár­mála­mark­aði og segir í sátt­inni að sú stað­reynd hafi orðið til hækk­unar á sekt­ar­fjár­hæð­inni.

Hins vegar segir að sam­starfsvilji bank­ans og sú úrbóta­vinna sem bank­inn hafi ráð­ist í síðan málið kom upp komi til lækk­unar á sekt­inni, en öllum almennum fjár­festum sem fjár­festu í skulda­bréf­inu stóð til boða að fá bréfin seld til Kviku á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbréf

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár