Lög til að dansa berfættur við á dimmum miðvikudagskvöldum

Símon Vestarr, sem ólst upp í Efra-Breið­holti, safnar fyrir útgáfu sóló­plöt­unnar Fever Dream á Karolina Fund. Hún á að vera eftir háum hljóm­gæða­staðli.

Símon Vestarr
Símon Vestarr Mynd: Karolina Fund

Símon Vestarr er söngv­ari, hljóð­færa­leik­ari og laga­höf­undur sem ólst upp í Efra-Breið­holti. Faðir hans vígði hann inn í hljóð­færa­leik þegar hann var tólf ára og hlaut hann upp­runa­lega tón­list­ar­þjálfun sína að miklu leyti í kirkju­starfi, sem hann hefur síðar fjar­lægst. Hann hefur verið lengi að í músík og tekið þátt í ýmsum gjörn­ingum en að mestu leyti hefur hann flögrað undir rad­arnum í hinni íslensku tón­list­ar­senu í gegnum árin og lítið gefið út af eigin efni.

Á síð­ari árum hefur hann haft sig meir í frammi, sér­stak­lega með rokktríó­inu sínu, King­k­iller. Sú sveit hefur gefið út lög sem hafa hlotið mikla stúdíó-með­ferð á meðan sól­ó­efni Símonar hefur verið í örlítið hrárri hljóm­gæðum.

[adspot]

Nú þótti honum hins vegar kom­inn tími til að gera sóló­plötu eftir háum hljóm­gæða­staðli og því hafði hann sam­band við Karolina Fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Allt frá því að ég var ung­lingur að stel­ast í diska hjá frænd­fólki og kunn­ingjum með hljóm­sveitum eins Led Zeppelin, Trúbrot og Santana hefur mig langað að gefa út plötu sem er að mestu leyti tekin upp á óraf­mögnuð hljóð­færi og vísar í tíð­ar­and­ann sem var í tón­list í kringum 1970. Tolkien-inn­blásnar ball­öður Led Zeppelin, seið­andi slag­verk Santana og stóru radd­an­irnar hjá Trúbrot og CSNY sendu mig alltaf á fram­andi staði í hug­anum og ég vildi búa til mínar eigin hug­ar­lendur í tónum og textum. Að gefa þá tón­list út á vínyl skipti líka miklu máli.

Eyvindur Karlsson, spila­fé­lagi minn til margra ára, lét verða af þessu á síð­asta ári. Hann gaf út sitt efni á disk og plötu undir lista­manns­nafni sínu, One Bad Day, eftir að hafa
safnað fyrir fram­kvæmd­inni á Karolina Fund. Og eftir að hafa fylgst nokkrum sinnum með stúd­íó­vinnu Ása Jó (trymbils­ins í King­k­iller) small hug­myndin saman. Ég átti lög sem ég vildi að sem flestir fengju að heyra; sum ný af nál­inni, önnur sem voru örlítið eldri á demó- upp­tökum og eitt eða tvö sem höfðu verið samin fyrir lif­andis löngu. Mér fannst þau öll verð­skulda vand­aðan flutn­ing og hljóð­blöndun og spilun í útvarpi.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Fever Dream er heiti tit­il­lags­ins en líka heild­ar­stef allrar plöt­unnar. Text­arnir í lög­unum fjalla allir á einn eða annan hátt um að elt­ast við eitt­hvað sem gufar upp um leið og hönd á festir.

Hug­myndin um veru­leika­skynjun okkar sem óráðs­martröð er eitt helsta við­fangs­efni aust­rænna heim­speki­hefða og varð ég fyrst almenni­lega hug­fang­inn af henni eftir að hafa séð mexíkósku kvik­mynd­ina La Montaña Sagrada. Ljóð plöt­unnar fjalla á ská um guð­dóm og róm­an­tík og fleira sem við teljum okkur skilja en sjáum í gegnum kámugan glugga sjálfs­með­vit­aðrar hugs­unar.

Platan er mjög inni­leg í eðli sínu og mark­mið mitt er að hún hreyfi við hlust­and­anum. Svo eru mörg lögin líka ryþmísk og vel til þess fallin að dansa ber­fættur við innan um kerti og reyk­elsi í stof­unni á dimmum mið­viku­dags­kvöldum.“

Verður haldið upp á það þegar söfn­un­inni lýkur?

„Svo sann­ar­lega. Útgáfu­tón­leikar verða haldnir í Hann­es­ar­holti og hægt er að kaupa sér miða á þá með áheiti, auk þess sem hlust­un­arpartí verður haldið þegar mixi og master er lokið. Hægt er að ger­ast þátt­tak­andi í þeim gleð­skap, þar sem hlustað verður á plöt­una í fyrsta sinn og sungið og trallað á óguð­legum tíma heima hjá mér, með áheiti. Einnig er hægt að bóka mig til að halda lengri eða styttri tón­leika með því að leggja í púkk. Ég hlakka til að hitta sem allra flesta á þessum við­burðum. Að deila lög­unum mínum með fólki sem elskar tón­list er eitt það skemmti­leg­asta sem ég geri.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár