Skýrsla um neyðarlánið til Kaupþings birt í lok apríl

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, segir að skýrsla um neyð­ar­lánið sem veitt var Kaup­þingi haustið 2008 og sölu­ferlið á FIH bank­anum verði birt opin­ber­lega þann 30. apríl næst­kom­andi.

Már Guðmundsson
Már Guð­munds­son Mynd: Hringbraut

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, segir að skýrsla bank­ans um neyð­ar­lánið sem veitt var Kaup­þingi í októ­ber 2008 og sölu­ferlið á danska bank­anum FIH sem tek­inn var að veði fyrir lán­veit­ing­unni verði birt þann 30. apríl næst­kom­andi. Þetta kemur fram í við­tali við Má í Við­skipta­mogganum í dag. Skýrslan verður fyrst kynnt á fundi banka­ráðs þann 26. apríl en fjórum dögum síðar verður hún kynnt opin­ber­lega.

Skýrslugerðin boðuð fyrir fjórum árum

[links]Seðla­bank­inn hefur árum saman unnið að skýrslu um til­drög þess að Kaup­þing fékk 500 millj­óna evra neyð­ar­lán þann 6. októ­ber 2008. Upp­haf­lega var skýrslu­gerðin boðuð í febr­úar 2015 en nú, fjórum árum síð­ar, hefur hún enn ekki verið birt. Skýrslan nær einnig yfir sölu­ferlið á danska bank­anum FIH, sem var tek­inn að veði fyrir lán­veit­ing­unni. Mun minna fékkst fyrir það veð en lagt var upp með og áætlað er að tap íslenskra skatt­greið­enda vegna neyð­ar­láns­ins hafi numið 35 millj­örðum króna.

Í svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Jóns Stein­dórs Valdi­mars­son­ar, þing­manns Við­reisn­ar, um neyð­ar­lán­veit­ing­una, sem birt var á vef Alþingis 14. nóv­em­ber 2018, kom fram að hún ætl­aði að óska eftir því að Seðla­banki Íslands myndi óska svara frá Kaup­þingi ehf. um ráð­stöfun umræddra fjár­muna og að bank­inn myndi greina frá nið­ur­stöðum þeirra umleit­ana í skýrslu.

Í við­tali í sjón­varps­þætt­inum 21 þann 6. mars síð­ast­lið­inn sagði Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, að Seðla­bank­inn væri kom­inn með svar frá Kaupþing um hvað hafi orðið um neyð­ar­lánið sem bank­inn fékk frá Seðla­bank­anum. Már sagði í við­tal­inu að skýrslan yrði kláruð í nán­ustu fram­tíð en stað­festir nú í Við­skipta­mogg­anum að hún verði birt opin­ber­lega í lok apríl.

Ekki til nein lánabeiðni frá Kaupþingi í Seðlabankanum

Í bók­inni Kaupt­hink­ing: Bank­inn sem átti sig sjálf­ur, sem kom út í nóv­em­ber 2018, er aðdrag­and­inn að veit­ingu neyð­­ar­láns­ins rak­inn ítar­­lega og ýmsar áður óbirtar upp­­lýs­ingar birtar um þann aðdrag­anda. Þar voru einnig birtar nýjar upp­­lýs­ingar um hvernig neyð­­ar­lán­inu var ráð­staf­að. Á meðal þess sem þar er greint frá er að þann 21. apríl 2008 var sam­­þykkt sér­­­stök banka­­stjórn­­­ar­­sam­­þykkt, nr. 1167, um hver við­brögð Seðla­­banka Íslands við lausa­­fjár­­­vanda banka ætti að vera. Í regl­unum var sér­­stak­­lega kveðið á um að skipa ætti starfs­hóp innan bank­ans til að takast á við slíkar aðstæður og gilda ætti ákveðið verk­lag ef aðstæður sem köll­uðu á þraut­­ar­vara­lán kæmu upp. Verk­lag­inu var skipt í alls sex þætti. Í sam­­þykkt­inni var líka fjallað um við hvaða skil­yrði lán til þrauta­vara kæmu til greina og í henni var settur fram ákveð­inn gát­listi vegna mög­u­­legra aðgerða Seðla­­bank­ans við slíkar aðstæð­­ur.

Þegar Kaup­­þing fékk 500 millj­­ónir evra lán­aðar 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi, var ekki farið eftir þeirri banka­­stjórn­­­ar­­sam­­þykkt. Þá er ekki til nein lána­beiðni frá Kaup­­þingi í Seðla­­bank­­anum og fyrir liggur að Kaup­­þingi var frjálst að ráð­stafa lán­inu að vild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár