Skatturinn og skattrannsóknarstjóri sameinast

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra mun sam­ein­ast Skatt­inum, verði nýtt frum­varp fjár­mál­ara­ráð­herra að lögum.

Húsnæði embættis ríkisskattstjóra
Húsnæði emb­ættis rík­is­skatt­stjóra Mynd: Rsk.is

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kynnti fyr­ir­hug­aða sam­ein­ingu Skatts­ins og skatt­rann­sókn­ar­stjóra í með nýju frum­varpi á sam­ráðs­gátt stjórn­valda í dag. Samkvæmt til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins um málið á frum­varpið að styrkja bar­áttu hins opin­bera gegn skattsvikum, en það byggir á fyrri dómum mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu gegn íslenska rík­inu.

Frum­varpið byggir á skýrslu sem nefnd, sem skipuð var um rann­sókn og sak­sókn skatta­laga­brota, skil­aði til ráð­herra í sept­em­ber í fyrra. Nefndin var skipuð í kjöl­far þess að mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hafði dæmt íslenska ríkið brot­legt í slíkum málum.

Eitt þeirra mála snýr að Bjarna Ármanns­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Glitnis, sem dæmdur var fyrir skatta­laga­brot af Hæsta­rétti. Bjarni áfrýj­aði málið til mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að ríkið hafði brotið á mann­rétt­indi hans með því að gera honum að greiða skatta­á­lag og síðar ákæra hann og dæma hann fyrir skatta­laga­brot, þrátt fyrir að Bjarni hefði þegar greitt skuld sína við skatt­inn.

Í frétt Stjórn­ar­ráðs­ins segir að skýrsla nefnd­ar­innar í fyrra hafi leitt til bráða­birgða­á­kvæða í skatta­lögum, auk þess sem vinnu­hópi var komið á fót sem ætlað var að smíða drög að frum­varpi á grund­velli þess­arar skýrslu. Vinnu­hóp­ur­inn hefur nú lokið störfum og skilað frum­varpi til ráð­herra.

Í frum­varp­inu er lagt til að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins verði sér­stök ein­ing innan Skatts­ins, sem sam­ein­ist emb­ætti rík­is­skatt­stjóra. Einnig eru þar aðrar til­lögur, t.a.m. um að gera rann­sóknir í kjöl­far skatta­laga­brota gagn­særri og skil­virk­ari, auk þess sem máls­með­ferð­ar­tími er styttur og máls­með­ferð ein­földuð. Þar að auki er lagt til að álagi verði ekki beitt sam­hliða stjórn­valds­sektum eða refs­ingum vegna skatta­laga­brota.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár