Gamla fréttin: Málið kostaði tvo biskupa embættin

Árið 1996 lýsti Sigrún Pálína Ingv­ars­dóttir því að Ólafur Skúlason, þáver­andi biskup, hefði beitt hana kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Fleiri konur stigu fram í kjöl­farið. Áratugir liðu frá meintum brotum og þar til Þjóð­kirkjan greiddi kon­unum bætur. Þá hafði Guðrún Ebba Ólafs­dóttir sagt sögu af ofbeldi föður síns. Tveir bisk­upar hrökt­ust úr emb­ætti.

Biskupar
Biskupar Karl Sig­ur­björns­son var sak­aður um þöggun í bisk­ups­mál­inu. Hér er hann ásamt arf­taka sínum. Mynd: Pressphotos

Fyrri part árs 1996 varð eitt mesta fjöl­miðla­fár síð­ari tíma þegar biskup Íslands, Ólafur Skúlason, var bor­inn þeim sökum að hafa áreitt nokkrar konur þegar hann var prestur í Bústaða­kirkju. Í for­síðu­við­tali við DV í mars 1996 sagði ein þeirra, Sigrún Pálína Ingv­ars­dóttir, sögu sína í fyrsta sinn undir nafni.

Upphaf umfjöll­un­ar­innar má rekja til þess að Sigrún Pálína kærði séra Vigfús Þór Árnason, sókn­ar­prest í Graf­ar­vogi, til siða­nefndar Presta­fé­lags Íslands fyrir að hafa brugð­ist. Sigrún Pálína hafði trúað bisk­upi fyrir því að séra Ólafur Skúlason hefði áreitt sig. Vildi hún að Vigfús tæki málið upp við aðra presta. Það gerði hann ekki. DV komst á snoðir um kæruna. Gísli Krist­jáns­son blaða­maður fjall­aði um hana í blað­inu. Þar með fór af stað umfjöllun sem átti eftir að standa til árs­ins 2010 með stuttum hléum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár