Rannsókn héraðssaksóknara á máli Júlíusar Vífils lokið

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur lokið rann­sókn sinni á meintum skattsvikum og pen­inga­þvætti Júlíusar Vífils Ingv­ars­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks. Júlíus Vífill átti félag á Panama sem opin­berað var í Panama­skjala­lek­anum.

Rannsókn hér­að­sak­sókn­ara á meintum skattsvikum og pen­inga­þvætti Júlíusar Vífils Ingv­ars­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa, er lokið. Þetta stað­festir Ólafur Þór Hauksson í hér­aðs­sak­sókn­ari, í sam­tali við Vísi.

Málið fer nú í ákæru­með­ferð þar sem tekin verður ákvörðun um hugs­an­lega sak­sókn. Greint var frá því í sept­em­ber 2017 að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara væri að rann­saka hvort Júlíus Vífill hefði gerst sekur um stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti.

Júl­íus Vífil var einn þeirra stjórn­mála­manna sem voru opin­beraðir í Panama­skjöl­unum og greint var frá í sér­stökum Kast­ljós­þætti sem sýndur var 3. apríl í 2016. Þar kom fram að hann hefði í árs­byrjun 2014 stofnað félagið Silwood Foundation á Panama. Rík áhersla var lögð á það við stofnun félags­ins að nafn Júl­í­usar Víf­ils kæmi hvergi fram í tengslum við félag­ið.

Júl­íus Víf­ill sendi frá sér yfir­lýs­ingu tveimur dögum áður en þátt­ur­inn var sýndur þar sem stóð m.a.: „Allt sem við kemur þessum sjóði er í sam­ræmi við íslensk lög og regl­ur, enda naut ég sér­fræði­ráð­gjafar til að tryggja að rétti­lega og lög­lega væri að málum stað­ið. Mér var ráð­lagt að skrá stofnun sjóðs­ins í Panama. Ég hef hvorki fengið neitt greitt úr sjóðnum né haft af honum ann­ars konar tekjur og hef ekki heim­ild til að ráð­stafa fjár­munum úr hon­um.“ Hann sagði enn fremur að um væri að ræða „eft­ir­launa­sjóð“.

Júl­íus Víf­ill sagði af sér sem borg­ar­full­trúi tveimur dögum eftir að Kast­ljós­þátt­ur­inn var sýnd­ur, eða 5. apr­íl 2016.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri kærði í jan­úar 2017

Þann 5. jan­úar 2017 kærði skatt­rann­sókn­ar­stjóri Júlíus Vífil til emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna meintra brota á skatta­lögum og vegna gruns um pen­inga­þvætti. Við síð­ara brot­inu getur legið allt að sex ára fang­els­is­dóm­ur.

Í kærunni kom fram að Júl­íus Víf­ill hafi átt fjár­muni á erlendum banka­reikn­ingum að minnsta kosti frá árinu 2005. Frá árinu 2014 hafi þeir verið hjá sviss­neska bank­anum Julius Bär í nafni aflands­fé­lags Júl­í­us­ar.

Hér­aðs­sak­sókn­ara barst svo hljóð­upp­taka frá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra þann 27. mars 2017. Um svipað leyti var sama upp­taka send á fjöl­miðla.

Á upp­tök­unni mátti heyra Júl­íus Víf­ill og lög­mann hans, Sig­urð G. Guð­jóns­son, ræða um þá fjár­muni sem vistaðir voru í sviss­neska bank­anum við ætt­ingja Júl­í­usar Víf­ils, sem höfðu ásakað hann um að hafa komið ætt­ar­auð for­eldra sinna undan og geymt á aflands­reikn­ing­um. Kjarninn birti klippta útgáfu af upp­tök­unni í sept­em­ber 2017.

Sam­kvæmt umfjöllun Kast­ljóss um ásak­anir ætt­ingj­anna, sem eru systk­ini Júl­í­usar Víf­ils og erf­ingjar þeirra, sem sýnd var í maí 2016, var umfang þeirra fjár­muna sem ætt­in­gj­arnir telja að Júl­íus Víf­ill hafi haldið frá þeim mörg hund­ruð millj­ónir króna. Pen­ing­ana hafði móðir þeirra ásamt hluta fjöl­­skyld­unnar leitað í rúman ára­tug. Um var að ræða sjóð í erlendum banka sem faðir þeirra, Ingvar Helga­­son, hafði safnað umboðs­­launum frá erlendum bíla­fram­­leið­endum inn á alla tíð.

Júl­íus Víf­ill kom í við­tal við Morg­un­blaðið dag­inn eftir að Kast­ljós­þátt­ur­inn var sýndur og sak­aði þar systk­ini sín um að hafa dregið sér tugi millj­óna króna af banka­reikn­ingi móður þeirra. Í yfir­lýs­ingu sagði hann ásak­anir systk­ina sinna vera algjör ósann­indi og ómerki­leg ill­mælgi. Það væri ótrú­lega ófyr­ir­leitið að halda því fram að hann hefði gengið í eða sölsað undir sig sjóði í eigu ann­­arra.

Tóku upp fund

Áður­nefnd hljóð­upp­taka var tekin upp á fundi sem fram fór mið­viku­dag­inn 6. apríl 2016, þremur dögum eftir að Kast­ljós hafði afhjúpað að Júl­íus Víf­ill ætti aflands­fé­lög sem geymdu fjár­muni í sviss­neska bank­anum Julius Bär. Fund­inn sátu Júl­íus Víf­ill, lög­maður hans, ætt­ingjar Júl­í­usar Víf­ils og lög­menn á þeirra veg­um. Fund­ur­inn fór fram á lög­manns­stofu Sig­urðar G. Guð­jóns­son­ar.

Á upp­tök­unni talar Júl­íus Víf­ill um safn­reikn­inga og jánkar því að hafa kennt látnum bróður sínum um að hafa gengið í sjóð­ina. Af sam­tal­inu er ekki að skilja annað en að Júl­íus Víf­ill við­ur­kenni að fullu til­vist þeirra fjár­muna sem systk­ini hans hafa gert kröfu til og að verið sé að ræða um hvernig sé hægt að koma þeim til þeirra. Síðar hefur Júl­íus Víf­ill hins vegar þrætt fyrir að umræddir sjóðir séu yfir­höfuð til.

Á upp­tök­unni heyr­ist Sig­urð­ur, lög­maður Júl­í­usar Víf­ils, tala um hvernig best væri að koma þeim pen­ingum sem geymdir eru utan Íslands til systk­ina Júl­í­usar Víf­ils. Þar segir hann m.a.: „Pen­ingar ganga ekki á milli manna nema að það séu greiddir af þeim skatt­ar. Við skulum hafa það hug­fast. Á þetta að fara inn í dán­ar­búið og greið­ast þar út sem arður með öðrum skatti? Það getur ver­ið. Og það eru þessar leiðir sem þarf að skoða og finna. Er hægt að færa þessa fjár­muni á nöfn ein­stakra aðila í þeim banka þar sem þeir eru í? Þannig að við­kom­andi aðili bara gerir grein fyrir því á skatta­fram­tali sínu á næsta ári að hann eigi þessa fjár­muni og komi með þá heim og borgi af þeim skatta. Þetta er bara issue, issuið hlýtur að vera það fyrir ykk­ur, erf­ingja Ingv­ars Helga­sonar að þið fáið þá sem mest af þessum pen­ingum og minnst af þeim fari í rík­is­sjóð. Þetta liggur fyr­ir, ég meina Júl­íus Víf­ill er búinn að segja það við ykkur að hann vill koma þessum pen­ingum til systk­ina sinna en það þarf auð­vitað að finna ein­hverja þá leið sem getur leitt til þess að þetta endi ekki allt í skatt­i.“

Hæsti­réttur meinar Sig­urði að verja Júl­íus Vífil

Júl­íus Víf­ill vildi að Sig­urður myndi verja sig í mál­inu sem hér­aðs­sak­sókn­ari hefur rann­sakað á hendur hon­um. Á það vildi hér­aðs­sak­sókn­ari ekki fall­ast þar sem emb­ættið vildi kalla Sig­urð til skýrslu­töku í mál­inu og það úti­lok­aði ekki að Sig­urður fái stöðu sak­born­ings í því. Ástæðan eru þær ráð­legg­ingar sem Sig­urður veitir á hljóð­upp­tök­unni, um hvernig sé hægt að kom­ast hjá því að greiða fjár­mun­ina til systk­ina Júl­í­usar Víf­ils án þess að „þetta endi ekki allt í skatt­i.“

Júl­íus Víf­ill var ósáttur með þetta og fór með það fyrir dóm að Sig­urður mætti vera verj­andi hans.

Hér­aðs­dómur stað­festi synjun emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara um að Sig­urður mætti ekki verja Júl­íus Víf­ill 25. ágúst 2017. Dóm­ari máls­ins, Lár­entsínus Krist­jáns­son, sagði í nið­ur­stöðu sinni að það yrði „ekki betur séð en að lög­maður sókn­ar­að­ila hafi á fund­inum fyrst og fremst lagt áherslu á að skoða þyrfti ofan í kjöl­inn hvernig best væri að standa að slíkri milli­færslu í skatta­legu til­liti. Af end­ur­rit­inu má ráða að með þess­ari áherslu hafi lög­mað­ur­inn verið að gæta með rétt­mætum hætti hags­muna sókn­ar­að­ila með sem bestu móti, eins og honum var skylt.“ Það var því mat hans að ráð­legg­ingar Sig­urð­ar, sem hér­aðs­sak­sókn­ara grunar að geti falið í sér refsi­verða hátt­semi, hafi verið eðli­leg­ar. Hann hafn­aði þó kröfu Júl­í­usar Víf­ils, í ljósi þess að kalla ætti Sig­urð fyrir til skýrslu­töku.

Þeirri ákvörðun var skotið til Hæsta­réttar sem var mjög afdrátt­ar­laus í sinni nið­ur­stöðu sem féll í lok ágúst 2017: Sig­urður gæti ekki varið Júl­íus Víf­il. Rétt­ur­inn stað­festi því úrskurð hér­aðs­dóms. Ekk­ert lægi fyrir um að til­efni hér­að­sak­sókn­ara um að kalla Sig­urð til skýrslu­töku við rann­sókn máls­ins væri til­efn­is­laus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rannsókn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár