Næturstrætó er hættur akstri

Næt­ur­strætó ók sína síð­ustu ferð, í bili, um helg­ina. Næt­ur­strætó var á meðal kosn­inga­lof­orða hjá Framsókn og Pírötum fyrir kosn­ing­arnar síð­asta vor.

Akstri næt­ur­strætó hefur verið hætt. Næt­ur­strætó hefur gengið frá því í júlí en vænt­ingar um far­þega­fjölda hafa ekki stað­ist þrátt fyrir að búist hafi verið við auknum fjölda nú í haust þegar starfs­fólk kom úr sum­ar­leyfum og skólar hófust á ný, að því er segir í til­kynn­ingu frá Strætó.

Næt­ur­strætó var á meðal kosn­inga­lof­orða Fram­sókn­ar­flokks­ins og Pírata í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor.

Stjórn Strætó sam­þykkti þann 4. júlí að hefja akstur næt­ur­strætó um helgar til reynslu út sept­em­ber­mánuð. Um er að ræða leiðir 101, 102, 103, 104, 105, 106 og 107.

[links]Ekki er verið að nota næturakstur Strætó eins mikið og vonir stóðu til, sam­kvæmt kynn­ingu sem stjórn­ar­menn í Strætó bs. fengu frá fyr­ir­tæk­inu á stjórn­ar­fundi í lok ágúst.

Í kynn­ing­unni kom fram að á bil­inu 300-340 far­þegar hefðu verið að nýta sér akst­ur­inn á hverju kvöldi fyrstu fjórar helg­arnar sem næt­ur­strætó keyrði, eða um 14-16 manns að með­al­tali í hverja næt­ur­ferð sem ekin er.

Strætó segir í sam­an­tekt um næturakst­ur­inn að notk­unin hafi verið „þokka­leg, en undir vænt­ingum miðað við óskir um end­ur­vakn­ingu næt­ur­leiða“, en nokkuð ákall var uppi um það að Strætó myndi hefja akstur að næt­ur­lagi á ný um helgar eftir að skemmt­ana­líf færð­ist í samt horf við aflétt­ingu sam­komu­tak­mark­ana vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Stjórn Strætó hefur nú sam­þykkt að ekki sé rétt­læt­an­legt að halda áfram akstri næt­ur­strætó um helgar nú að loknum reynslu­tíma og verður því þeirri þjón­ustu hætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár