Fjórtán til sextán farþegar að meðaltali í hverjum næturstrætó

Notkun næt­ur­strætó er þokka­leg, en þó er far­þega­fjöld­inn undir vænt­ingum, að sögn fyr­ir­tæk­is­ins. Næturakst­ur­inn hófst að nýju um helgar í júlí en ákveða á í sept­em­ber hvort honum verði haldið áfram.

Næturstrætó fer úr miðborginni um nánast um allt höfuðborgarsvæðið, en síðustu vagnarnir rúlla af stað úr miðborginni laust fyrir kl. 4 á laugardags og sunnudagsmorgnum.
Næt­ur­strætó fer úr mið­borg­inni um nán­ast um allt höf­uð­borg­ar­svæðið, en síð­ustu vagn­arnir rúlla af stað úr mið­borg­inni laust fyrir kl. 4 á laug­ar­dags og sunnu­dags­morgnum. Mynd: Strætó

Ekki er verið að nota næturakstur Strætó, sem hófst aftur um helgar í júlí, eins mikið og vonir stóðu til, sam­kvæmt kynn­ingu sem stjórn­ar­menn í Strætó bs. fengu frá fyr­ir­tæk­inu á stjórn­ar­fundi í síð­ustu viku.

Í kynn­ing­unni kom fram að á bil­inu 300-340 far­þegar hefðu verið að nýta sér akst­ur­inn á hverju kvöldi fyrstu fjórar helg­arnar sem næt­ur­strætó keyrði, eða um 14-16 manns að með­al­tali í hverja næt­ur­ferð sem ekin er.

Strætó segir í sam­an­tekt um næturakst­ur­inn að notk­unin hafi verið „þokka­leg, en undir vænt­ingum miðað við óskir um end­ur­vakn­ingu næt­ur­leiða“, en nokkuð ákall var uppi um það að Strætó myndi hefja akstur að næt­ur­lagi á ný um helgar eftir að skemmt­ana­líf færð­ist í samt horf við aflétt­ingu sam­komu­tak­mark­ana vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Í fund­ar­gerð stjórnar Strætó segir að staðan á næturakstri verði „end­ur­metin“ í sept­em­ber, en þegar ákvörðun var tekin um að hefja næturakst­ur­inn að nýju var það gert í til­rauna­skyni fram til loka sept­em­ber.

Fram hefur komið í máli Jóhann­esar S. Rún­ars­sonar fram­kvæmda­stjóra Strætó að fram­tíð næturakst­urs­ins sé háð því að fólk noti þjón­ust­una.

Leiðin í Hafnarfjörð mest notuð

Í næturakstr­inum keyrir Strætó alls sjö leiðir frá mið­borg­inni, sex þeirra eru með þrjár brott­farir og ein með fjórar. Samkvæmt því sem fram kemur í sam­an­tekt Strætó er leiðin sem liggur í Hafn­ar­fjörð mest notuð, en sú sem liggur vestur í bæ og út á Sel­tjarna­nes minnst notuð.

Þetta mun vera svipað notk­un­ar­mynstur og var áður þegar næt­ur­leiðir Strætó keyrðu, en akstri næt­ur­strætó var hætt þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á í upp­hafi árs 2020 og allt skemmt­ana­líf lagð­ist af.

Í kynn­ingu Strætó segir að allt hafi gengið vel í tengslum við akst­ur­inn og að ekki hafi heyrst af neinum telj­andi vand­ræðum. Auk þess segir að búast megi við „meiri notkun þegar sum­ar­leyfum lýkur og atvinnu­lífið og skólar fari á fullt“ og þess einnig getið að notk­unin á næt­ur­strætó þessar fyrstu helgar ætti að vera að létta eitt­hvað á leigu­bíla­vand­ræðum úr mið­borg­inni, sem borið hefur tölu­vert á í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár