Björn Ingi kaupir Birting

Pressan ehf., félag sem er í meiri­hluta­eigu Björns Inga Hrafns­sonar og við­skipta­fé­laga hans, hefur keypt útgáfu­fé­lagið Birtíng sem gefur út ýmis tíma­rit, meðal ann­ars Séð og Heyrt og Nýtt líf. Frá þessu er greint á Stund­inni.

Rúmur mán­uður er síðan að Pressan til­kynnti fjöl­miðla­nefnd um yfir­töku sína á sjón­varps­stöð­inni ÍNN. Pressan ehf. hefur verið umsvifa­mikil á fjöl­miðla­mark­aði á und­an­förnum árum. Félagið keypti m.a. DV seint á árinu 2014 og rekur auk þess fjölda vefa og viku­blaða. Pressan ehf. hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2015 en á árinu 2014 skil­aði félagið hagn­aði upp á 11,5 millj­ónir króna. Engar upp­lýs­ingar voru í árs­reikn­ingi félags­ins um hverjar rekstr­­ar­­tekjur félags­­ins voru á árinu 2014. ­Upp­i­­­staðan í auknu veltufé frá rekstri virð­ist vera til­­komin vegna nýrra lána ­sem Pressan fékk á árinu 2014 og gerir það að verkum að hand­­bært fé frá rekstri er 184 millj­­ónir króna.

Skuldir félags­ins juk­ust mikið á árinu 2014. Lang­­tíma­skuldir sem voru engar í árs­­lok 2013 voru orðnar 148 millj­­ónir króna í lok árs 2014. Auk þess tvö­­­föld­uð­ust skamm­­tíma­skuldir Pressunnar og voru orðn­­ar 124 millj­­ónir króna í lok árs. Því skuld­aði félagið sam­tals 272 millj­­ónir króna í lok árs 2014, sem er fjórum sinnum meira en þær 68 millj­­ónir króna sem félagið skuld­aði í lok árs árið áður. Ekki kemur fram í árs­­reikn­ingnum hvenær þessi lán eru á gjald­daga né hverjir lán­veit­endur Pressunnar eru.

Eign­ar­hald Pressunnar ehf sam­kvæmt skrán­ingu hjá Fjöl­miðla­nefnd:

Kringlu­turn­inn, 28%, eig­endur Björn Ingi Hrafns­son, 50%, og Arnar Ægis­son, 50%Kringlu­eignir ehf., 31,85% eig­andi Björn Ingi Hrafns­sonAB 11 ehf., 11,15%, eig­endur Björn Ingi Hrafns­son, 50%, og Arnar Ægis­son, 50%Dr. Jón Óttar Ragn­ars­son, 11%Steinn Kári Ragn­ars­son fram­kvæmda­stjóri, 10%Jakob Hrafns­son fram­kvæmda­stjóri, 8%

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár