Við­skiptin náðu til þriggja aflands­svæða Við­skipti Benedikt Sveins­sonar, föður Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, náðu til að minnsta kosti þriggja aflands­svæða: Tortólu, Lúx­em­borgar og Kýpur. Bjarni sat í umboði hans í stjórnum fyr­ir­tækja sem hann átti á árunum fyrir hrunið, meðal ann­ars í N1 og Nes­skipum.

Panamaskjölin: Benedikt, faðir Bjarna, átti félag í skattaskjólinu Tortólu

Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, átti félag í skatta­skjól­inu Tortólu ásamt eig­in­konu sinni. Benedikt stofn­aði líka félag í Lúx­em­borg sem umtals­vert skatta­hag­ræði var af. Bjarni Bene­dikts­son var full­trúi föður síns í stjórnum margra fyr­ir­tækja á árunum fyrir hrun, meðal ann­ars skipa­fé­lags­ins Nesskipa sem átti dótt­ur­fé­lög í Panama og á Kýpur.

Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, stofn­aði fyr­ir­tæki á Tortólu í gegnum panömsku lög­fræði­stof­una Mossack Fonseca. Fyr­ir­tækið heitir Greenlight Holding Luxembourg S.A. og sett­ist Benedikt sjálfur í stjórn þess ásamt eig­in­konu sinni og móður fjár­mála­ráð­herra, Guðríði Jóns­dóttur. Félagið var stofnað árið 2000 og var hætt að greiða umsýslu­gjöld af því til Mossack Fonseca árið 2010. Félagið var því virkt þar til eftir hrunið árið 2008.

Eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum átti Bjarni Bene­dikts­son sjálfur fyr­ir­tæki í skatta­skjól­inu Seychelles-eyjum, Falson & Co., sem stofnað var í gegnum Mossack Fonseca árið 2006 til að stunda fast­eigna­við­skipti í Dubaí. Bjarni hefur sagt að hann hafi ekki vitað að félagið hafi verið á Seychelles-eyjum heldur hafi hann talið það vera í Lúx­em­borg. „Það var ekki fyrr en mér barst ábend­ing frá erlendum blaða­manni að ég komst að því að svo hefði ekki verið, en umrætt félag Falson & Co, var skráð á Seychelles-eyjum. Það hafði þó engin áhrif í skatta­legu sam­hengi.“ 

Hluthafarnir settust í stjórn
Hlut­haf­arnir sett­ust í stjórn Eigendur félags­ins Greenlight Luxembourg S.A. á Tortóla, Benedikt Sveins­son og Guðríður Jóns­dóttir, sett­ust í stjórn félags­ins í lok apríl árið 2000. Kaupþing í Lúx­em­borg hafði milli­göngu um stofnun félags­ins.

Upp­lýs­ing­arnar um Tortóla-félag Bene­dikts koma fram í Panama-skjöl­unum svoköll­uðu frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca sem ICIJ, alþjóð­legamtök blaða­manna, komust yfir í gegnum þýska blaðið Süddeustche Zeitung. Íslenski fjöl­mið­ill­inn Reykja­vík Media ehf. fékk aðgang að Panama-skjöl­unum og vinnur Stundin grein­ina í sam­starfi við þann fjöl­miðil. 

Stundin hefur ekki náð tali af Bene­dikti Sveins­syni þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir og hefur því ekki upp­lýs­ingar um af hverju Greenlight Luxembourg S.A. var stofnað, hvaða eignir félagið átti eða hvaða skatta­legu áhrif félagið hafði fyrir hann - ef nokkur.

„Ég mun láta einskis ófreistað til að ná til hinna, sem fara á svig við lög og reglur.“

Skoðanir Bjarna á aflandsfélögum

Tekið skal fram að notkun á aflands­fé­lögum og fyr­ir­tækjum í skatta­skjólum er ekki ólög­leg og er alls ekki gefið að eig­endur slíkra fyr­ir­tækja hafi framið nein lög­brot, til að mynda skatta­laga­brot. Skatta­legt hag­ræði slíkra fyr­ir­tækja gat hins vegar verið umtals­vert. Til dæmis má nefna að fram til 1. sept­em­ber árs­ins 2009 voru fjár­magnstekjur slíkra skatta­skjóls­fé­laga, sem til urðu með fram­virkum samn­ingum og öðrum slíkum fjár­mála­af­urðum, und­an­þegnar skatti og ekki var litið svo á að tekjur slíkra jafn­giltu tekjum ein­stak­ling­anna sem áttu félögin, líkt og ákveðið var að gera með laga­breyt­ingu á Íslandi árið 2010. Eftir þá laga­breyt­ingu var ekki gerður skatta­legur grein­ar­munur á tekjum slíkra aflands­fé­laga og tekjum ein­stak­lings­ins sem á félagið. 

Miðað við orð Bjarna Bene­dikts­sonar um eigið aflands­fé­lag þá snýst gagn­rýni hans á notkun aflands­fé­laga fyrst og fremst um skatta­laga­brot sem kunna að vera framin í slíkum félögum en ekki um notkun þeirra sem slíkra. „Í þessum efnum tel ég rétt að fylgja ein­faldri reglu. Það eiga allir að skila sínu til sam­eig­in­legs rekstrar sam­fé­lags­ins. Lang­flestir fylgja þess­ari sjálf­sögðu reglu. Ég mun láta einskis ófreistað til að ná til hinna, sem fara á svig við lög og reglur og vilja fá frítt far með sam­borg­urum sínum sem halda uppi lífs­gæð­unum á Íslandi.“

Fyr­ir­tæki í skatta­skjólum og á aflands­svæðum eru hins vegar yfir­leitt stofnuð vegna þess skatta­hag­ræðis sem felst í þeim þó alls ekki sé þar með sagt að eig­endur þeirra brjóti lög með notkun þeirra. Notkun aflands­fé­laga gengur með öðrum orðum út á að lækka skatt­greiðslur með lög­legum hætti, eða ólög­legum eftir atvikum. Til að mynda hefði verið skatta­hag­ræði af fjár­magnstekj­unum sem fyr­ir­tæki Bjarna á Seychelles-eyjum hefði fengið ef við­skipti þess í Dubaí hefðu gengið sem skyldi. 

Báðir formenn stjórnarflokkanna og feður þeirra
Báðir for­menn stjórn­ar­flokk­anna og feður þeirra Upp­lýs­ingar úr Panama­skjöl­unum hafa sýnt að báðir for­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, og feður þeirra, Benedikt Sveins­son og Gunn­laugur Sig­munds­son, eru tengdir félögum í skatta­skjólum sem kom fram í gögn­unum.

Báðir formennirnir og feður þeirra tengjast Panama-skjölunum

Með þessum upp­lýs­ingum liggur fyrir að báðir for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, og feður þeirra beggja, Benedikt Sveins­son og Gunn­laugur Sig­munds­son, tengj­ast fyr­ir­tækjum og við­skiptum í gegnum skatta­skjól. 

Reykja­vík Media ehf. hefur áður greint frá fyr­ir­tæk­inu Wintris Inc. á Tortóla sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son átti með eig­in­konu sinni, Önnu Sig­ur­laugu Páls­dóttur, sem og frá fyr­ir­tæki Bjarna Bene­dikts­sonar, Falson & Co. 

Þá koma í Panama-skjöl­unum einnig fram óbeinar upp­lýs­ingar um félag Gunn­laugs Sig­munds­sonar í Lúx­em­borg, GSSG Holding, þar sem stjórn­ar­menn félags­ins voru þrjú fyr­ir­tæki á Tortólu, Waverton Group Limited, Starbrook International Limited og Birefi­eld Holding, sem Kaupþing í Lúx­em­borg not­aði sem leppa fyrir aflands­fé­lög við­skipta­vina sinna í Lúx­em­borg. Ekki er minnst á félag Gunn­laugs í skjöl­unum sem sagt en mikið er af upp­lýs­ingum um þessi þrjú Tortóla-félög sem voru skráðir stjórn­ar­menn félags hans.

Allir þessir aðilar - Bjarni, Benedikt, Sig­mundur Davíð og Gunn­laugur - koma því með beinum eða óbeinum hætti fyrir í Panama-skjöl­unum.

Umsvifamikill fjárfestir og bæjarfulltrúi

Benedikt hefur síð­ast­liðna ára­tugi verið umsvifa­mik­ill fjár­festir á Íslandi og átt hluta­bréf í fyr­ir­tækjum eins og Eim­skipum, Sjóvá, Íslands­banka, N1 og Icelandair. Hann sat í mörgum stjórnum hjá þessum fyr­ir­tækjum sem og öðrum. Hann var þar að auki bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þrjú kjör­tíma­bil frá 1986 til 1998 og odd­viti flokks­ins lung­ann úr tím­anum. Benedikt var því á sama tíma, bæj­ar­full­trúi í Garðabæ og fjár­festir, rétt eins og Bjarni Bene­dikts­son sonur hans var þing­maður og fjár­festir og stjórn­ar­maður í stór­fyr­ir­tækjum og fjár­fest­ing­ar­fé­lögum þar til eftir hrunið árið 2008 þegar hann ákvað að hætta að sitja í stjórnum fjöl­skyldu­fyr­ir­tækj­anna sam­hliða þing­mennsku sinni. 

Benedikt tengd­ist meðal ann­ars umdeildri einka­væð­ingu íslenska rík­is­ins á SR-mjöli árin 1993 og 1994 en hann var for­svars­maður kaup­enda­hóps­ins sem keypti fyr­ir­tækið í umdeildum við­skiptum í gegnum sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyti Þor­steins Páls­sonar sem Rík­is­end­ur­skoðun gagn­rýndi í skýrslu árið 1994 með orð­unum: „Rík­is­end­ur­skoðun telur að þeim verk­lags­reglum sem sam­þykktar voru af rík­is­stjórn­inni 12. októ­ber 1993 og fylgja skal við fram­kvæmd á einka­væð­ingu hafi ekki verið fylgt sem skyldi við und­ir­bún­ing og sölu hluta­bréfa í SR-mjöli hf.“ Þeir Benedikt og Þor­steinn voru þá báðir áhrifa­menn í Sjálf­stæð­is­flokknum, Þor­steinn sem ráð­herra og Benedikt sem odd­viti sveit­ar­stjórn­ar­flokks sjálf­stæð­is­manna í Garðabæ.

Benedikt ákvað að hætta sem bæj­ar­full­trúi í Garðabæ árið 1998 og var hann því hættur í stjórn­málum þegar hann stofn­aði félag sitt á Tortólu árið 2000. „Ég lít svo á að það þurfi að end­ur­nýja alltaf öðru hvoru í bæj­ar­full­trúa­hópi flokks­ins. Mér finnst kom­inn tími til núna að ég hvíli mig. […] Ég hef haft gaman að því að vera í bæj­ar­mál­unum og von­andi hef ég gert eitt­hvert gagn,“ sagði Benedikt þegar hann hætti í stjórn­málum sam­kvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins frá því í októ­ber 1997.

Á þeim tíma sem fyr­ir­tæki Bene­dikts á Tortóla var stofnað var hann hins vegar meðal ann­ars stjórn­ar­for­maður Eim­skipa­fé­lags­ins - hann hafði verið í stjórn­inni frá 1986 -  og gegndi hann því starfi til árs­ins 2003.

Var fulltrúi föður síns
Var full­trúi föður síns Bjarni Bene­dikts­son var full­trúi föður síns í stjórnum margra fyr­ir­tækja á árunum fyrir hrunið. N1, BNT, Bíla­naust, Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Máttur og skipa­fé­lagið Nesskip eru meðal þeirra. Síð­ast­nefnda fyr­ir­tækið átti um tíma tvö dótt­ur­fé­lög í Panama og fjögur dótt­ur­fé­lög á Kýpur.

Feðgarnir og tengsl stjórnmála og viðskiptalífs

Á árunum eftir síð­ustu alda­mót var Benedikt mjög umsvifa­mik­ill fjár­festir þó ekki færi mikið fyrir honum á yfir­borð­inu. Bjarni Bene­dikts­son var meðal ann­ars full­trúi fyrir hans hönd og hluta­bréfa hans í olíu­fé­lag­inu N1 og móð­ur­fé­lagi þess, BNT ehf., en Bjarni var stjórn­ar­for­maður beggja fyr­ir­tækja þar til í árs­lok 2008 þegar hann hætti.

Í við­tali við Við­skipta­blaðið sagði Bjarni að honum fynd­ist óþægi­legt að vera stjórn­mála­maður og þátt­tak­andi í við­skipta­líf­inu á sama tíma og íslenska ríkið ætti bank­ana í land­inu, líkt og gerð­ist í kjöl­far hruns­ins þegar íslenska ríkið yfir­tók íslensku bank­ana.  „Ég neita því heldur ekki að mér finnst á vissan hátt óheppi­legt að vera mjög virkur þátt­tak­andi í við­skipta­líf­inu eftir að bank­arnir komust í hendur rík­is­ins.“ Miðað við þetta svar Bjarna þá fannst honum ekki óheppi­legt að vera stjórn­mála­maður og virkur þátt­tak­andi í við­skipta­líf­inu þegar bank­arnir voru í einka­eigu heldur ein­göngu eftir hrun þegar þeir voru komnir í fang rík­is­ins.

Sjálfur átti Bjarni aðeins lít­inn hlut í N1 sem hann sagð­ist hafa selt á fyrri hluta árs 2008 þegar DV spurði hann um málið um vorið 2009, rétt áður en hann var kjör­inn for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þá sat Bjarni í stjórn fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Máttar fyrir hönd föður síns en fram­kvæmda­stjóri og einn hlut­hafi þess fyr­ir­tækis var Gunn­laugur Sig­munds­son, faðir Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Bjarni átti heldur ekki hluta­bréfin í Mætti ehf. heldur faðir hans en eign­ar­hald föður hans í hinum ýmsu fyr­ir­tækjum gerði það að verkum að það var gjarnan Bjarni, ekki Benedikt, sem sett­ist í stjórn þess­ara fyr­ir­tækja. 

Bjarni kom svo að Vafn­ings­við­skipt­unum svoköll­uðu fyrir hönd föður síns og bróður hans, Einars Sveins­sonar, en eins og kunn­ugt er fékk Bjarni umboð frá þeim báðum til að skuld­binda fjár­fest­ing­ar­fé­lag í þeirra eigu, Þátt International, fyrir tíu millj­arða láni frá Glitni í febr­úar árið 2008. Lánið var til að fjár­magna hluta­bréf í Glitni sem eng­inn annar banki vildi lána fyrir á þeim tíma. Bæði Bjarni og Benedikt seldu hluta­bréf í Glitni sem þeir áttu per­sónu­lega í sama mán­uði; Bjarni seldi fyrir um 126 millj­ónir og Benedikt fyrir um 850 millj­ónir króna í gegnum félagið Haf­silfur ehf.

Upp­lýs­ingar um fjár­fest­ingar Bene­dikts Sveins­sonar frá árunum fyrir hrun sýna að Bjarni Bene­dikts­son var oft og tíðum full­trúi hans í stjórnum fyr­ir­tækja og í ein­staka við­skiptum á þessum árum enda voru hags­munir Bene­dikts sann­ar­lega einnig hags­munir Bjarna. Erfitt er að því gera mik­inn grein­ar­mun á þeim feðgum þar sem Bjarni starf­aði gjarnan innan ein­stakra fyr­ir­tækja í nafni föður síns. 

Þeir feðgar Benedikt og Bjarni eiga það sam­eig­in­legt að hafa báðir stundað við­skipti um ára­bil sam­hliða störfum sínum sem kjörnir full­trúar almenn­ings auk þess sem þeir stofn­uðu báðir fyr­ir­tæki í skatta­skjólum í gegnum panamísku lög­manns­stof­una Mossack Fonseca. Benedikt stofn­aði sitt fyr­ir­tæki árið 2000 á meðan Bjarni stofn­aði sitt félag árið 2006 vegna áður­nefndra fast­eigna­við­skipta í Dubaí. 

Skráningarskjal og úrsögn Magnúsar
Skrán­ing­ar­skjal og úrsögn Magnúsar Þessi skjöl úr Panama-lek­anum sýna skrán­ingu Greenlight Luxembourg S.A. í gegnum Mossack Fonseca og und­ir­rit­aða úrsögn Magnúsar Guð­munds­sonar úr stjórn félags­ins.

Stofnað í gegnum þekktan skattalögfræðing og Kaupþing

Í stofnskjölum Tortóla-félags­ins Green Light Holding S.A. kemur fram að Mossack Fonseca hafi stofnað fyr­ir­tækið í febr­úar árið 2000 og selt það til fyr­ir­tæk­is­ins KV Associates í Lúx­em­borg. Það fyr­ir­tæki er kennt við lög­mann­inn Karim Van den Ende og hefur unnið náið með mörgum íslenskum fjár­festum í gegnum árin, meðal ann­ars Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Ingi­björgu Pálma­dóttur. Van den Ende hefur meðal ann­ars verið með prók­uru­um­boð fyrir félag Ingi­bjargar, Guru Invest S.A., sem Stundin fjall­aði um í síð­asta tölu­blaði sínu. KV Associates sér­hæfir sig í skatta­skipu­lagn­ingu og eigna­stýr­ingu fyrir alþjóð­lega fjár­festa. 

Út frá gögn­unum að dæma var Benedikt Sveins­son í við­skiptum við Kaupþing í Lúx­em­borg sem virð­ist hafa fengið félagið frá KV Associates. Fyrstu stjórn­ar­menn Green Light Holding Luxembourg S.A. voru starfs­menn Kaup­þings í Lúx­em­borg, Magnús Guð­munds­son og Björn Jónsson, en báðir koma þeir marg­sinnis fyrir í Panama-skjöl­unum út af stofnun og umsýslu með aflands­fé­lag. Gögnin um Green Light Holding Luxembourg S.A. eru merkt Kaup­þingi í Lúx þar sem gögnin voru föxuð til Mossack Fonseca frá skrif­stofum bank­ans. Í árs­reikn­ingum eign­ar­halds­fé­lags Bene­dikts, Haf­silf­urs ehf., koma einnig fram upp­lýs­ingar um að hann hafi verið í eigna­stýr­ingu í bank­anum í Lúx­em­borg.

Eigendurnir settust í stjórn

Á hlut­hafa­fundi Greenlight Holding Luxembourg S.A. sem hald­inn var þann 25. apríl árið 2000 kemur fram að allir hlut­hafar félags­ins hafi verið mættir á fund­inn. „Út frá við­veru­skránni að dæma eru allir hlut­hafar félags­ins annað hvort mættir sjálfir eða ein­hver í umboði þeirra og boðað hafi verið til fund­ar­ins með lög­mætum hætti.“ Þeir sem voru klár­lega á fund­inum voru stjórn­ar­menn­irnir Magnús Guð­munds­son og Björn Jónsson en und­ir­skriftir þeirra beggja eru á fund­ar­gerð­inni. Hugs­an­legt er því að þeir hafi verið full­trúar Bene­dikts og Guðríðar á fund­inum.

Á fund­inum var ákveðið að þau tvö, Benedikt og Guðríður, myndu setj­ast í stjórn félags­ins í stað þeirra Magnúsar og Björns. Þau fengu bæði pró­kúru­um­boð yfir félag­inu sam­kvæmt fund­ar­gerð­inni. Magnús og Björn skráðu sig úr stjórn félags­ins á sama tíma með bréfum sem skráð voru á Green Light Holding Luxembourg á Tortólu. Þessi gögn voru svo send til Mossack Fonseca á Tortólu.

Engan hlut­haf­alista um Greenlight Holding Luxembourg S.A. er að finna í Pana­ma­gögn­unum. En þar sem Benedikt og Guðríður setj­ast í stjórn þess skömmu eftir að það var stofnað og fá umboð til að skuld­binda fyr­ir­tækið, og þar sem starfs­menn Kaup­þings í Lúx­em­borg voru full­trúar hlut­hafa félags­ins á fund­inum þar sem þetta gerð­ist, er ljóst að þau fóru með eig­enda­vald yfir félag­inu. Benedikt og Guðríður sáttu svo í stjórn þess þar til það var afskráð.

Félagið afskráð 2010
Félagið afskráð 2010 Tortóla­fé­lagið var afskráð árið 2010 og sést bréfið sem Mossack Fonseca stíl­aði meðal ann­ars á Benedikt í maí 2010 meðal ann­ars hér. Þá var hætt að greiða árgjald félags­ins og þegar slíkt er gert og lög­manns­stofan sem heldur utan um félagið fær ekki greitt fyrir það slíta þær slíkum aflands­fé­lögum.

Fyrirtækið virkt þar til árið 2010

Fyr­ir­komu­lagið á stjórn Greenlight Holding Luxembourg er nokkuð frá­brugðið fyr­ir­komu­lag­inu í flestum þeim fyr­ir­tækjum sem eru í Panama-skjöl­unum þar sem eig­end­urnir sjálfir, Benedikt og Guðríður, sett­ust í stjórn félags­ins í stað þess að aðilar á vegum Mossack Fonseca eða ann­arrar lög­manns­stofu gegndu því hlut­verki. Fyr­ir­komu­lagið hjá þeim var því gagn­særra ef svo má segja þar sem hlut­haf­arnir sátu sjálfir í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. 

Litlar upp­lýs­ingar eru í Panama-skjöl­unum um Greenlight Holding Luxembourg S.A. eftir þetta. Það er ekki fyrr en árið 2010 sem starfs­menn Mossack Fonseca senda tölvu­pósta sín á milli um að það eigi eftir að greiða umsýslu­gjöld fyrir fyr­ir­tækið vegna árs­ins 2010. Á því ári virð­ist hafa verið hætt að greiða gjöld vegna félags­ins til Mossack Fonseca og til­kynnti Mossack Fonseca þá fyr­ir­ætlun sína að hætta að sjá um umsýslu félags­ins í bréfi í maí árið 2010 sem meðal ann­ars var stílað á Benedikt Sveins­son og Magnús Guð­munds­son í októ­ber árið 2010. Lög­fræð­ing­ur­inn Karim Van den Ende í Lúx­em­borg fékk einnig sams konar bréf vegna afskrán­ingar félags­ins. Félagið var svo afskráð úr fyr­ir­tækja­skránni á Tortólu í októ­ber 2010. 

Tíma­setn­ingin á afskrán­ingu félags­ins vekur nokkra athygli þar sem að í gildi tóku lög á Íslandi árið 2010 sem gerðu eig­endur aflands­fé­laga per­sónu­lega skatt­skylda vegna tekna slíkra félaga erlendis. Benedikt hætti sem sagt að hafa félagið virkt á þessu sama ári. Eins og kom fram í frétt Reykja­vík Media um félag Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, Wintris Inc., þá seldi hann eig­in­konu sinni hlut sinn í Wintris einum degi áður en þessi lög tóku gildi í árs­byrjun 2010.

Félag með svipuðu nafni stofnað í Lúxemborg

Þann 7. apríl árið 2000, átján dögum áður en Magnús og Björn færðu félagið yfir á Benedikt og Guðríði, hafði Kaupþing í Lúx­em­borg sótt um kenni­tölu á Íslandi fyrir félag í Lúx­em­borg sem bar svipað nafn og Tortóla-félag Bene­dikts og Guðríðar. Það félag hét Greenlight Holding S.A. Umsóknin var vegna banka­við­skipta. Þetta kemur fram í skjali sem sent var til Rík­is­skatt­stjóra og sem aðgengi­legt er í gegnum vef­síð­una Creditinfo. 

Í skjal­inu sækir Kaupþing um kenni­tölu fyrir félagið til að stunda banka­við­skipti á Íslandi. Ekkert er minnst á Benedikt eða Guðríði í þess­ari umsókn en með henni fylgdu stofnskjöl félags­ins frá Lúx­em­borg sem dag­sett voru í byrjun mars árið 2000. Út frá þessu skjali liggur því ekki fyrir því að Benedikt hafi verið eig­andi umrædds félags. Í tölvu­pósti frá Kaup­þingi til rík­is­skatt­stjóra sagði um beiðn­ina um kenni­tölu: „Með þessu faxi fylgir stofn­skrá Green Light Holding S.A. og stað­fest­ing á skrán­ingu félags­ins hér í Lúx­em­borg. […] Ástæðan fyrir beiðn­inni: fjár­fest­ingar á Íslandi og við þurfum að hafa kenni­tölu þegar við höfum við­skipti við banka­stofn­anir á Íslandi.“ Fram­kvæmda­stjóri félags­ins var þá sagður vera Magnús Guð­munds­son, starfs­maður Kaup­þings í Lúx­em­borg á þeim tíma. 

Sömu tvö Tortóla-félög og voru skráðir stjórn­ar­menn í félagi Gunn­laugs Sig­munds­sonar í Lúx­em­borg, Waverton Group Limited og Starbrook International Limited, skráðu sig fyrir öllu hlutafé félags­ins upp á sam­tals 30 millj­ónir íslenskra króna.

Ekki liggur fyrir hvort eig­enda­tengsl voru á milli Green Light-félags­ins á Tortóla, Greenlight Holding Luxembourg S.A. og félags­ins í Lúx­em­borg, Greenlight Holding S.A. Svo virð­ist hins vegar sem Benedikt Sveins­son hafi átt bæði félögin. 

Þetta fyr­ir­tæki teng­ist líka Panama­skjöl­unum eins og Tortóla­fé­lagið, þó það sé með óbeinum hætti, þar sem mikið magn gagna er þar að finna um félögin Waverton Group Limited og Starbrook International Limited. Engar upp­lýs­ingar er hins vegar að finna um þau félög þar sem þessi Tortóla-félög sátu í stjórn. 

Fyrirtæki í Lúxemborg nutu skattahagræðis

Fyr­ir­tæki eins og Greenlight Holding S.A. í Lúx­em­borg nutu veru­legs skatta­hag­ræðis sam­kvæmt lúx­em­borgískum lögum fram til árs­ins 2010. Þetta voru svokölluð „1929 Holding“-félög en skatta­hag­ræði slíkra félaga var afnumið með lögum í Lúx­em­borg árið 2010. Meðal ann­ars þurftu slík fyr­ir­tæki ekki að greiða fyr­ir­tækja­skatt í Lúx­em­borg og ekki skatta af arð­greiðslum sem þau með­tóku.

Lögin voru sett árið 1929 og var ætlað að búa til umhverfi í Lúx­em­borg sem væri skatta­lega hag­kvæmt fyrir fyr­ir­tæki. Eins og segir um „Holding 1929“-félög á einum stað: „Árið 1929 bjó her­toga­dæmið Lúx­em­borg til ákvæði í skatta­lögum sem var hag­stætt fyrir eign­ar­halds­fé­lög en yfir­völd þar í landi höfðu áhyggjur af því að ekki væru í gildi tví­skött­un­ar­samn­ingar til að koma í veg fyrir tví­sköttun. Samkvæmt þessu skatta­laga­á­kvæði þurfti fyr­ir­tækið aðeins að greiða árlegan skrán­ing­ar­skatt sem nam 0,2 pró­sentum af eigin fé fyr­ir­tæk­is­ins. Þar fyrir utan þurfti fyr­ir­tækið ekki að greiða neina skatta, hvorki á inn­komnar tekjur né útgreiddar.“ Laga­á­kvæðið breytti því samt ekki að ein­stak­ling­ur­inn, eða fyr­ir­tækið, sem var eig­andi félags­ins þurfti að greiða skatta af mót­teknum arði í því landi þar sem hann var með skatta­lega heim­il­is­festi.

Árið 2006 ákvað Evr­ópu­nefndin hins vegar að þessi lög í Lúx­em­borg fælu í sér „órétt­læt­an­legt skatta­hag­ræði“ og brot á lögum aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins. Í kjöl­far þess ákváðu yfir­völd í Lúx­em­borg að afnema lögin og var það gert árið 2007. Eigendur slíkra félaga fengu þriggja ára frest, fram til árs­ins 2010, til að búa sig undir afnám lag­anna. 

Þá virð­ist Benedikt Sveins­son hins vegar hafa verið hættur að nota umrætt félag.

Tortólafélagið bar sama nafn og skipafélag í Panama

Nafn eign­ar­halds­fé­lags Bene­dikts á Tortóla, og nafn félags­ins í Lúx­em­borg, eru svipuð og nafn félags í Panama sem Benedikt stýrði meðal ann­arra á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. 

Félagið í Panama hét Green Light Shipping Organization og var skipa­fé­lag sam­kvæmt Guðmundi Ásgeirs­syni fjár­festi sem yfir­leitt er kenndur við íslenska skipa­fé­lagið Nesskip. Guð­mundur var stærsti hlut­hafi Nesskipa með rúm­lega 40 pró­senta hlut en Benedikt Sveins­son átti tæp­lega 24 pró­senta hlut á móti honum auk þess sem eign­ar­halds­fé­lag hans, Haf­silfur ehf., átti 12 pró­senta hlut í Nes­skipum. Skipa­fé­lagið í Panama var stofnað utan um rekstur flutn­inga­skips­ins Sandness sam­kvæmt Guðmundi.

Nesskip er íslenskt skipa­fé­lag sem stofnað var árið 1974 en árið 2006 keypti norska skipa­fé­lagið Wilson Eurocarriers meiri­hluta í félag­inu, meðal ann­ars hluta­bréf Bene­dikts Sveins­sonar, og á norska fyr­ir­tækið yfir 90 pró­sent hluta­fjár í dag. Bjarni Bene­dikts­son sat um tíma í stjórn Nesskipa fyrir hönd föður síns en nafn hans kemur meðal ann­ars fyrir í árs­reikn­ingi Nesskipa fyrir árið 2003.

Benedikt sat í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins í Panama ásamt Guðmundi sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr hluta­fé­laga­skránni í Panama. Benedikt og Guð­mundur sátu líka í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins Kermit Overseas í Panama sem seldi félag­inu Salt­skipi hf., sem var í eigu SÍF, Sambands íslenskra fisk­út­flytj­enda, flutn­inga­skipið Hvítanes árið 1997. Eimskip keypti Hvítanes svo árið 2001 en þá var Benedikt Sveins­son stjórn­ar­for­maður Eim­skipa­fé­lags­ins eins og áður segir. 

Tekið skal fram að þessi fyr­ir­tæki í Panama koma ekki fyrir í Panama-skjöl­unum en af ein­hverjum ástæðum ber Tortóla-félag Bene­dikts sama nafn og annað þess­ara skipa­fé­laga. 

Félögunum slitið eftir sölu á skipum
Félög­unum slitið eftir sölu á skipum Guð­mundur Ásgeirs­son, kenndur við Nesskip, segir að tveimur Panama-félögum sem Nesskip átti hafi verið slitið eftir að skip sem þau áttu voru seld. Benedikt átti nærri 40 pró­sent hlut í Nes­skipum og sat Bjarni í stjórn félags­ins fyrir hans hönd á tíunda ára­tugnum.

Félögunum slitið eftir sölu

Guð­mundur segir að þessum tveimur fyr­ir­tækjum hafi verið slitið eftir að skipin sem þau áttu voru seld. „Þetta voru bara skipa­fé­lög. Þau áttu skip og sigldu meðal ann­ars með salt­fisk og voru í alþjóða­sigl­ingum. Þetta eru eign­ar­halds­fé­lögin yfir skipin sjálf, yfir stál­inu. End­an­legur eig­andi þess­ara fyr­ir­tækja var svo Nesskip. Svo var þessum félögum bara slitið þegar skipin voru seld. Þá var þetta bara búið,“ segir Guð­mundur. Bæði skipin sem voru inni í félög­unum tveimur voru því seld út úr þessum félögum.

Guð­mundur segir að ástæðan fyrir stofnum þess­ara fyr­ir­tækja hafi verið að þegar skipin voru keypt hafi þau verið skráð í Panama og að það hafi ekki verið nein ásæða til að færa þau þaðan og því hafi þessi tvö skipa­fé­lög verið stofnuð utan um rekstur skip­anna. „Þegar Hvíta­nesið er keypt var það undir Panama-fána. Það er mjög erfitt að fá eldri skip inn undir flagg í nýju landi. Það er ýmis­legt sem varð til þess að það var engin ástæða til að skipta neitt um land og færa þetta frá Panama.“

Samkvæmt þessu svari Guð­mundar voru því fyrst og fremst praktískar ástæður fyrir því að þeir Benedikt ákváðu að stofna fyr­ir­tækin í Panama í kringum rekstur umræddra skipa. Nesskip ehf. átti svo að minnsta kosti fjögur önnur dótt­ur­fé­lög en fyr­ir­tækin tvö í Panama og voru þau öll skráð á Kýpur sam­kvæmt árs­reikn­ingum félags­ins. 

Tortóla-félag Bene­dikts virð­ist því ekki hafa komið að rekstri Green Light Shipping Organization þó nafn þess sé líkt nafni panamíska fyr­ir­tæk­is­ins enda var búið að slíta skipa­fé­lag­inu í Panama þegar Tortóla­fé­lagið var stofnað. Guð­mundur segir að hann minni að eig­endur Nesskipa hafi keypt panamíska fyr­ir­tækið Green Light Shipping Organization af fyr­ir­tæki í Panama og að félagið hafi þá borið umrætt nafn.

Greenlight kemur fyrir í ársreikningum Benedikts

Eign­ar­halds­fé­lag sem ber nafnið Greenlight kemur fyrir í árs­reikn­ingum áður­nefnds fyr­ir­tækis Bene­dikts Sveins­sonar, Haf­silf­urs hf., sem hélt utan um hluta­bréf hans í Nes­skipum. Greenlight er talið upp í árs­reikn­ingum fyr­ir­tæk­ins fram til árs­ins 2006. Haf­silfur er sagt 100 pró­sent eig­andi félags­ins en ekki er sagt frá fyr­ir­tæk­inu með sama hætti í hvert skipti. Í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið 2005 er fyr­ir­tækið kallað „Green Light Holding“ og í árs­reikn­ingum 2006 er það kallað „Green light Holding ehf.“. Í árs­reikn­ing­unum er verð­mæti umrædds fyr­ir­tækis sagt vera rúm­lega tvær millj­ónir króna. 

Ekkert fyr­ir­tæki í íslensku hluta­fé­laga­skránni heitir hins vegar „Green light Holding ehf.“ og er lang­lík­leg­ast að vísað sé til fyr­ir­tæk­is­ins í Lúx­em­borg þar sem end­ingin „Holding“ kemur þar fyrir og ekk­ert bendir til að Haf­silfur ehf. hafi verið eig­andi Tortóla-félags­ins.

Engar opin­berar upp­lýs­ingar eru hins vegar til um Tortóla-félag Bene­dikts og Guðríðar, Greenlight Luxembourg S.A, sem Stundin hefur heim­ildir um. Miðað við gögnin í Panama-skjöl­unum voru þau Benedikt og Guðríður líka skráð per­sónu­lega fyrir félag­inu og því koma upp­lýs­ingar um eign­ar­hald þess vænt­an­lega ekki fram í neinum árs­reikn­ingum ann­arra félaga á þessum tíma. Engar opin­berar heim­ildir liggja fyrir um eignir þess eða starf­semi. 

Fyr­ir­tækið í Lúx­em­borg kemur ekki fyrir í árs­reikn­ingum eign­ar­halds­fé­lags Bene­dikts eftir árið 2007 en tekið skal fram að fyr­ir­tækið skil­aði engum árs­reikn­ingum á árunum 2008 og 2009. Í árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2010 er hins vegar ekk­ert minnst á Green Light Holding og virð­ist félagið þá ekki hafa verið hluti af eigna­safni Haf­silf­urs ehf. Félag með þessu nafni finnst ekki heldur í hluta­fé­laga­skránni í Lúx­em­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið undanfarið ár