Gústaf Níelsson: Opið bréf til múslima ástæðan fyrir vali Framsóknar

Gústaf Adolf Níelsson, segir að opið bréf sem hann skrif­aði til félags múslima í Morg­un­blaðið í haust, þar sem hann spurð­ist fyrir um fjár­mögnun moskubygg­ingar á Íslandi, hafi vakið athygli Svein­bjargar Birnu Svein­björs­dóttur, odd­vita Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í Reykja­vík. Í kjöl­farið hafi honum verið boðið að ger­ast vara­maður flokks­ins í mann­réttinda­ráði Reykja­vík­ur­borgar.

Í við­tali við DV í dag segir Gústaf: "Hún hafði sam­band við mig um miðjan des­em­ber og bar þetta undir mig. Ég spurði hvort hún gerði sér grein fyrir því að ég væri í Sjálf­stæð­is­flokknum, en tók samt fram að ég væri flug­vall­ar­vinur. Ég benti henni á að þetta myndi lík­lega ekki falla í góðan jarð­veg hjá öllum í Fram­sókn­ar­flokknum. Hún sagði að henni væri nokk sama um það því henni þætti þessi skrif mín mál­efna­leg.“

Vill ekki fjölmenningarsamfélag


Gústaf, sem hefur skrifað tölu­vert um inn­flytj­enda­mál og sam­kyn­hneigða á opin­berum vett­vangi, hefur þótt mjög umdeildur. Í við­tal­inu seg­ist hann þó standa við öll þau orð sem hann hafi látið falla og að skoð­anir hans hafi ekk­ert breyst. Hann sé til að mynda mót­fall­inn því að sam­kyn­hneigðir fái að gifta sig í Þjóð­kirkj­unni og hann ekki að Ísland verði fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag. Trúin geri hins vegar ekki ráð fyrir því að sam­kyn­hneigðir gift­ist í kirkju. "Þetta er guð­fræði­legur ómögu­leiki [...]Og af hverju geta sam­kyn­hneigðir ekki bara stofnað sína eigin kirkju og látið Þjóð­kirkjun eiga sig?"

Ekki trúaður, ekki á móti hommum og ekki rasisti


Gústaf seg­ist ekki vera trú­aður og hann sækir ekki kirkju. Hann sé hins vegar mik­ill áhuga­maður um trú­ar­brögð og kristna sið­fræði. Hann seg­ist ekki á móti hinsegin fólki, það megi vera þannig ef það vilji.„Maður getur ekki verið á móti sam­kyn­hneigðum, ekki frekar en fötl­uðum. Það er alls konar fólk á meðal okkar“.

Hann seg­ist heldur ekki vera ras­isti eða á móti útlend­ingum. „Þegar ég segi að við eigum að móta skyn­sama inn­flytj­enda­stefnu þá er það sagt til marks um að ég sé haldin útlend­inga­fó­bíu. Ég er það ekki, en við verðum að hafa ein­hverja stefnu.
Núna er til dæmis verið að flytja inn homma og les­b­íur frá Mið-Aust­ur­löndum, á vegum rík­is­stjórn­ar­innar. Þá er verið að velja fólk til að koma hingað á grund­velli kyn­hneigðar. Ann­að­hvort ertu flótta­maður eða ekki flótta­maður, það er ekki hægt að velja úr flótta­mönnum[...] en ég geri enga athuga­semd við það þegar fólk kemur hingað í góðum og lög­mætum til­gangi. Ef það vill aðlag­ast land­inu og siðum þess, læra tungu­málið, vinna og sjá fyrir sér, þá er það vel­komið. En ég vil alls ekki vera gleiður á því að úthluta fólki íslenskum rík­is­borg­ara­rétti. Ég geri þá kröfu að sá sem fær íslenskan rík­is­borg­ara­rétt geti að minnsta kosti talað eitt­hvað í mál­inu, skrifað og hugsað á íslensku. Mér finnst ótækt að veita fólki íslenskan rík­is­borg­ara­rétt sem skilur ekk­ert í tungu­mál­inu og veit ekk­ert hvað fram fer. Við getum heldur ekki flutt inn fólk á grund­velli ein­hverrar vor­kunn­semi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár