Sátt er játning á brotum

Sátt Íslands­banka við fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands er játn­ing á brotum að mati Gunnars Jak­obs­sonar, vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands.

Nefndarfundur
Nefnd­ar­fundur Gunnar Jak­obs­son er vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika hjá Seðla­banka Íslands. Hann situr hér lengst til vinstri á mynd­inni, en auk hans voru mætt á fund­inn fyrir hönd Seðla­bank­ans þau Björk Sig­ur­gísla­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands og Gunnar Þór Pét­urs­son, nefnd­ar­maður í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd Seðla­banka Íslands. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

„Það er kannski er að þvæl­ast fyrir okkur þegar við erum að tala um sátt að það séu allir sáttir. Þetta snýst í raun­inni bara um það að það er játn­ing og við ljúkum mál­inu með játn­ingu á þeirri atvika­lýs­ingu sem er og þeim brotum sem hafa verið framin,“ sagði Gunnar á opnum fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis sem nú stendur yfir. 

Fund­ar­efnið er brot Íslands­banka við sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í bank­anum og auk Gunnars eru Björk Sig­ur­gísla­dóttir og Gunnar Þór Pét­urs­son, nefnd­ar­maður í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd Seðla­banka Íslands, gestir fund­ar­ins. Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, og Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, eru einnig gestir fund­ar­ins. 

„Það er játn­ing og við ljúkum mál­inu með játn­ingu á þeirri atvika­lýs­ingu sem er og þeim brotum sem hafa verið framin,“
Gunnar Jak­obs­son,
vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands.

Gunnar sagði það heppi­legt þegar hægt er að ljúka málum sem þessum með játn­ingu í stað þess að fara dóm­stóla­leið­ina. „Mitt mat er það að það er heppi­legt þar sem það er hægt að ljúka málum með játn­ingu heldur í stað­inn fyrir að fara í veg­ferð fyrir dóm­stólum til þess að fá úr því skorið hvort um hafi verið að ræða brot og hvers konar brot, sér­stak­lega þegar við erum að reyna að koma á úrbótum.“

Birna Ein­ars­dóttir, sem lét af störfum sem banka­stjóri Íslands­banka í nótt, hefur lýst sátt bank­ans við fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Ís­lands sem trausts­yf­ir­lýs­ingu gagn­vart sér. Í sátt­inni eru þó al­var­legar at­huga­semd­ir við hátt­semi henn­ar og stjórn­ar bank­ans og að brot­in séu ekki til­fallandi held­ur al­var­leg og kerf­is­læg.

Birna sagði ekk­ert um játn­ingu í sam­tali við Heim­ild­ina fyrir helgi heldur var það mat hennar að í sátt­inni fælist trausts­yf­ir­lýs­ing í sinn garð. 

„Með því að bjóða sátt er fjár­mála­eft­ir­litið að sýna stjórn og banka­stjóra traust til þess að inn­leiða þær breyt­ingar sem þarf. Og það er að sjálf­sögðu mik­il­vægt. Og það er mik­il­vægt að okkur er boðin sátt,“ sagði hún enn frekar. Í sátt­inni sjálfri er því þó lýst að Íslands­banki hafi beðið um að fá að ljúka mál­inu með sátt þann 6. jan­úar, eftir að hafa fengið frum­mat fjár­mála­eft­ir­lits­ins til yfir­ferðar. Þegar málum er lokið með sátt er miðað við að sekt­ar­fjár­hæðir séu hlut­falls­lega lægri en ætla má að þær væru ef stjórn­valds­sektir yrðu lagðar á ein­hliða. Skiptir líka máli hvenær fal­ast er eftir sátt. 

Það er annar tónn en sleg­inn er í nið­ur­stöðu fjár­mála­eft­ir­lits­ins og birt­ist í sátt­inni sem stjórn­endur bank­ans höfðu þá þegar lýst yfir vilja til að und­ir­gang­ast. „Þá er það mat fjár­mála­eft­ir­lits­ins að stjórn­ar­hættir máls­að­ila, í tengslum við und­ir­bún­ing og aðkomu hans að útboði Banka­sýslu rík­is­ins, beri vott um skort á áhættu­vit­und stjórn­enda og hafi ekki verið til þess fallnir að stuðla að skil­virkri og var­fær­inni stjórnun hans.“

Björk Sig­ur­gísla­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands, sagði, líkt og Gunnar, að Íslands­banki hefði geng­ist við brot­inu. 

„Ef að skil­yrði sáttar eru upp­fyllt þá er það alltaf mögu­leiki sem er á borð­inu. Í þessu til­viki óskar Íslands­banki sjálfur eftir að ljúka þessu með þessum hætti. Þá þarf að upp­fylla tvö önnur skil­yrði, að aðili máls gengst við brot­inu, hann við­ur­kennir að hann hafi brotið af sér og hann ræðst í úrbætur á grund­velli úrbótakrafna.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár