Hættan frá hægri

Norska örygg­is­lög­reglan segir vax­andi hættu á voða­verkum öfga­hægri­manna. Svart­k­lætt fólk, Hermenn Óðins, seg­ist vakta götur í Noregi og Finn­landi. Hóf­sam­ari hægri öfl eru einnig að verða strang­ari og leggja til enda­lok hug­mynd­ar­innar um póli­tískt hæli.

„Ógnin sem stendur af öfga­hægri­hópum fer vax­andi. Þeim fjölgar sem aðhyll­ast hug­mynda­fræð­ina, án þess þó að til­heyra skipu­lögðum hópum öfga­hægri­manna. Ástæðan fyrir aukn­ing­unni er umræðan um vax­andi fjölda flótta­manna og hæl­is­leit­enda.”

Þetta er kalt mat norsku örygg­is­lög­regl­unnar PST þegar nýtt hættu­mat var gefið út fyrir skemmstu. - Hröð fjölgun í hópnum Hermenn Óðins þessa dag­ana rennir stoðum undir matið.

„Fjölgun öfga­hægri­manna eykur einnig lík­urnar á ofbeld­is­að­gerðum”, bætir PST við. „Líkur eru á að reynt verði að kveikja í eða eyði­leggja athvörf hæl­is­leit­enda á annan hátt.” Þetta hefur þegar komið fyrir í Noregi og oftar en einu sinni í Svíþjóð.

Þetta er í fyrsta skipti sem form­legt, árlegt hættu­mat örygg­is­lög­reglu á Norð­ur­löndum hefur varað við auk­inni hættu vegna öfga­hægri­manna, með beinni vísan í auk­inn flótta­manna­straum, eftir því sem Kjarninn kemst næst.

Soldiers of Odin

Eftir því sem sólin sökk lengra niður fyrir sjón­deild­ar­baug­inn síð­asta haust fóru að ber­ast fréttir frá Finn­landi af fólki í svörtum hettu­peysum merktum Soldiers of Odin. Svart­klædda fólkið gerði sosum ekk­ert af sér, sagði það, gekk bara um göt­urnar og pass­aði að þessi inn­flytj­enda­skríll væri ekki að nauðga og drepa eins og þeir gera hvar sem þeir koma. Eða eitt­hvað á þá leið. Blóts­yrði og skoð­anir í boði þeirra, ekki mín.

Álíka hópar hafa nú skotið rótum í fleiri Evr­ópu­löndum, þar á meðal í Noregi, þar sem hóp­arnir spretta upp eins og gorkúlur. Um þarsein­ustu helgi gengu Óðins­menn um götur Tønsberg, í fyrsta skipti sem hóp­ur­inn sýnir sig á götum Noregs. „Sérð þú ekki að ólög­legir inn­flytj­endur standa í skipu­lagðri glæp­a­starf­semi, selja eit­ur­lyf og káfa á norskum konum?” svarar for­sprakk­inn Ronny Alte blaða­manni norska blaðs­ins VG á næt­ur­rölt­inu.

„Þá þarf nú fyrst að senda Svíana úr landi”, kall­aði full­orð­inn maður sem stóð og fylgd­ist með hópnum, við­stöddum til nokk­urrar kátínu. Í þó nokkur ár hafa ungir Svíar í atvinnu­leit verið einn stærsti inn­flytj­enda­hóp­ur­inn í Noregi.

Og svo Loldiers of Odin

Hermenn Óðins eru eitt heitasta umræðu­efnið í norskum stjórn­málum þessa dag­ana. Eftir að þeir gengu um götur Stafang­urs á laug­ar­dags­kvöldið var, kærði borg­ar­stjórn­ar­full­trúi þá til lög­reglu, fyrir að taka að sér opin­bert vald sem þeir ekki hafa.

Af hinum væng stjórn­mál­anna hefur hóp­ur­inn fengið skýran stuðn­ing frá Jan Arild Ell­ing­sen, dóms­mála­tals­manni Fram­fara­flokks­ins Frp, sem er lengst til hægri í norskum stjórn­málum. Þetta er ekki í fyrsta skipti og eflaust ekki í síð­asta sem reynir á þan­þol rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins. Erna Solberg for­sæt­is­ráð­herra sá sig til­neydda að und­ir­strika að þetta frum­hlaup sam­starfs­flokks­ins væri ekki í takt við stefnu rík­is­stjórn­ar­innar.

En besta svarið við Óðins­mönn­unum kom upp í Finn­landi fyrr í vetur. Það er and­stæður hópur, sem mætir svörtu hettu­peys­unum með furðu­bún­ingum og trúðslátum. Sá hópur, Loldiers of Odin, reynir að drepa niður boð­skap Óðins­manna með því að gera grín að að þeim. Þeir sem eru ekki búnir að sjá mynd­band af útkom­unni á Facebook nú þegar ættu að gera það hið snarasta.

Mótast af forsögunni

Það er ekki skrýtið að það skuli einmitt vera norska örygg­is­lög­reglan sem varar fyrst við auk­inni hættu. Flest eiga löndin eiga sinn ell­efta sept­em­ber, þ.e. eina eða fleiri árásir sem móta hættu­mat þjóð­ar­innar. Skotrás­irnar í Kaup­manna­höfn fyrir ári síðan og mis­heppnuð sprengju­árás í Stokk­hólmi árið 2010 voru á ábyrgð öfga­fullra ísla­mista. En í Noregi lærðu menn árið 2011 að vera á varð­bergi gagn­vart fleiri hættum.

Vel­flestir Norðmenn, og án efa hver ein­asti með­limur örygg­is­lög­regl­unnar, muna eflaust eftir til­finn­ing­unni þegar ljóst varð að árás­armað­ur­inn í Osló og á Útey væri ekki múslimi, heldur þvert á móti. Að hann væri ljós­hærður, krist­inn, öfga­hægri­s­inn­aður Norð­maður, upp­al­inn í rík­manna­bænum Bærum í útkanti Oslóar.

Um áraraðir óðu nýnas­ista­hópar uppi í Noregi, með ofbeldi og hót­unum gegn fólk sem hafði annan húð­lit en hvítan. Fyrir fimmtán árum urðu hins vegar þátta­skil, þegar tveir menn réð­ust að hinum hálf­n­orska, hálf­gan­verska Benjamin Herman­sen og réðu honum bana með hnífi í úthverfi Oslóar. Morð­in­gj­arnir voru með­limir í nýnas­ista­hópi. Við rétt­ar­höldin þótti hafið yfir allan vafa að morð­in­gj­arnir hafi ráð­ist á Benjamin ein­göngu vegna húð­litar hans.

Morðið leiddi af sér mikil mót­mæli og vit­und­ar­vakn­ingu gegn ras­isma og nýnas­isma í Noregi. 40.000 manns tóku þátt í mót­mæla­göngu í mið­borg Oslóar eftir morðið, til að mót­mæla ras­isma og nýnas­isma. Spurn­ingin sem nú vaknar, er sú hvort ras­ist­arnir hafi virki­lega látið af skoð­unum sínum, eða hvort þeir hafi bara farið í felur og eygi nú sókn­ar­færi á ný.

“Godhetstyranniet” – þöggun hinna rétthugsandi

Þeir sem vilja halda útlend­ingum utan Noregs eiga sér kröft­ugan málsvara í hinni orð­hvössu Sylvi Listhaug. Hún er rísandi stjarna innan Fram­fara­flokks­ins, sem liggur lengst til hægri í norskum stjórn­málum. Dag­bla­det skrifar: „hún passar inn í lýs­ing­una á amer­ískum erkirepúblik­ana, nema í Noregi.”

Hún er höf­und­ur­inn að orð­inu god­het­styranniet á norskri tungu. Hún er þeirrar skoð­unar að sá hluti þjóð­fé­lags­ins sem vill strang­ari inn­flytj­enda­lög­gjöf sé stimplað vont fólk, af hinum póli­tískt rétt­þenkj­andi, sem upp­hefji sjálfa sig sem hina góðu. Góð­mennskan sé komin út í því­líkar öfgar að “hinir góðu” minni mest á ein­ræð­is­herra sem vilja þagga niður skoð­anir hinna sem hafa efa­semdir um skyn­semi óhindr­aðra fólks­flutn­inga.

“God­het­styranniet tröll­ríður Noregi”, sagði hún í við­tali við NRK í nóv­em­ber síð­ast­liðnum, þegar gagn­rýnendur hökk­uðu í sig til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar að hertri inn­flytj­enda­lög­gjöf. Nokkrum vikum síðar tók hún við emb­ætti ráð­herra inn­flytj­enda­mála!

Fleiri Norðmenn eru henni sam­mála um að þöggun efa­semd­aradd­anna sé yfir­drifin. Hin 20 ára Mina Gjerde er eitt dæmi. Hún seg­ist hafa verið stimpluð sem ras­isti, eftir les­enda­bréf í haust um að þorpið hennar, Bolkesjø, væri ef til vill ekki í stakk búið til að taka á móti 680 hæl­is­leit­endum á hót­elið í bænum. 40 manns bjuggu fyrir í bænum.

Nýjar hugmyndir um flóttamannapólitík

Orðræðan í Noregi, og víðar, ber þess merki að hug­myndir um hertar tak­mark­anir á fólks­flutn­ingum eru að verða meira “mainstr­eam”. Það eru ekki bara öfga­hægri­menn sem finnst kerfið búið að sprengja þan­þolið.

Hug­myndir um rót­tæka end­ur­skipu­lagn­ingu flótta­manna­kerf­is­ins eru nú settar fram í fullri alvöru, af aðilum sem sitja nærri kjöt­kötl­unum. Hug­veitan Civita, sem er nátengd Høyre, flokki Ernu Solberg for­sæt­is­ráð­herra, birti í árs­lok 2015 til­lögur sem ganga í raun út á að hug­mynd­inni um póli­tískt hæli verði skipt út fyrir fleiri kvótaflótta­menn:

Hæl­is­kerfið virkar ekki og þarfn­ast end­ur­nýj­unar. Status quo getur ekki haldið áfram. Við þurfum heild­stæða flótta­mannapóli­tík sem kemur fleiri flótta­mönnum til góða, á sama tíma sem maður tak­markar vanda­mál sem tengj­ast ótak­mörk­uðum fólks­flutn­ingum. Móttaka flótta­manna ætti að byggja í stærra mæli á kvóta­kerfi S.þ. og í minna mæli á til­vilj­ana­kenndum fólks­flutn­ingum og hæl­is­um­sóknum við ytri landa­mæri Schengen-svæð­is­ins.”

For­stjóri norsku útlend­inga­stofn­un­ar­innar viðr­aði svip­aðar hug­myndir á bloggi stofn­un­ar­innar. Þar ýjaði hann að því að núver­andi flótta­manna­sátt­málar, og þá sér­stak­lega ákvæðin um póli­tískt hæli, hefðu misst marks. Annað kerfi myndi vera rétt­lát­ara og ein­fald­ara í fram­kvæmd.

Og nú hafa ung­liðar Høyre tekið hug­mynd­ina upp á sína arma. Þeir hvetja móð­ur­flokk­inn til að beita sér fyrir enda­lokum hæl­is­hug­mynd­ar­innar, loka á komu hæl­is­leit­enda og taka í stað­inn inn fleiri kvótaflótta­menn.

Það er aug­ljóst að Norðmenn eru bundnir af alþjóða­sátt­málum, sem þeir breyta ekki upp á sitt eins­dæmi. Hitt er annað mál, að ef póli­tískur vilji er fyrir hendi, þá geta Norðmenn beitt sér innan Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þar hafa þeir mun meiri áhrif en stærð rík­is­ins og fólks­fjöldi segir til um.

Þegar svona sterkar raddir eru farnar að hafa orð á kerf­is­breyt­ingum, þá verður ekki hjá því kom­ist að taka umræð­una. Það er vel. Allt er betra en þöggun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár