Verðbólgudraugurinn haminn með sterkari krónu

Verð­bólga mun aukast á næst­unni, en ef gengi krón­unnar styrk­ist meira á næst­unni, þá vinnur það gegn verð­bólg­unni.

Styrk­ingin krón­unnar vinnur gegn því að verð­bólgan kom­ist af stað á nýjan leik, að mati hag­fræði­deildar Lands­bank­ans. Hún mun þó hækka úr 1,7 pró­sent í 2 pró­sent, næst þegar Hagstofa Íslands birtir verð­bólgu­mæl­ingu sína, 28. júní næst­kom­andi.

Það sem er að þrýsta verð­bólg­unni upp á við eru hækkun á bens­ín­verði eftir hækk­anir á olíu á alþjóða­mörk­uðum að und­an­förnu, hækkun á húsa­leigu og hús­næð­is­kostn­aði, hækkun á flug­far­gjöldum og hækkun á veit­inga- og gisti­þjón­ustu.

Styrking krónu í kortunum

Það sem helst vinnur á móti hækkun á vörum og þjón­ustu inn­an­lands er hvernig gengið hefur þró­ast að und­an­förnu, en Banda­ríkja­dalur kostar nú 122 krónur og evra 138 krónur. Fyrir ári síðan kost­aði dal­ur­inn 136 krónur og evran rúm­lega 150 krónur. Þetta skilar sér í því, að inn­fluttar vörur kosta minna, sem leiðir út í verð­lagið og þar með verð­bólgu­mæl­ingar.

Verð­bólga hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði í meira en tvö ár. Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, sem ákvarðar vexti, hefur gefið til kynna í frétta­til­kynn­ingum að það sé mat nefnd­ar­innar, að verð­bólga muni aukast nokkuð á næst­unni og geti verið farið yfir mark­miðið á næsta ári. Ástæðan er meðal ann­ars launa­hækk­anir að und­an­förnu og síðan hækkun á hrá­vörum á alþjóða­mörk­uðum, sem hefur áhrif á verð á inn­fluttum vörum.

Skuldastaðan batnað hratt

En á sama tíma hefur staða hag­kerf­is­ins sjaldan ver­iði sterk­ari, þegar horft er til skulda erlendis. Eftir að rúm­lega sjö þús­und millj­arða skuldir sem til­heyrðu slita­búum föllnu bank­anna, voru þurrk­aðar út úr hag­töl­unum, þá lítur staðan mun betur út, svona til ein­föld­unar sagt. Erlendar opin­berar skuldir nema um 230 millj­örðum króna, og skuldir rík­is­sjóðs inn­an­lands 1.250 millj­örðum. Samtals nema opin­berar skuldir nú um 60 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu, sé miðað við stöðu mála í fyrra.

Ferðaþjónustan eins og vítamínsprauta

Mikið gjald­eyr­is­inn­streymi vegna sífelldrar aukn­ingar í ferða­þjón­ustu, virkar því eins og vítamín­sprauta fyrir hag­kerfið og er þrýst­ingur fyrir sterkara gengi krónu gagn­vart helstu við­skipta­myntum. Þannig er gert ráð fyrir að gjald­eyr­is­inn­streymi frá erlendum ferða­mönnum verði yfir 400 millj­arðar á þessu ári, sem gerir ferða­þjón­ust­una að lang­sam­lega stærstu gjald­eyr­is­skap­andi grein þjóð­ar­innar.

Seðla­bank­inn hefur komið í veg fyrir sterkara gengi krónu, með inn­gripum á gjald­eyr­is­mark­aði, á und­an­förnu ári. Sam­keppn­is­staða útflutn­ings­ins á mikið undir því, að gengi krón­unnar styrk­ist ekki of mikið. En á sama tíma getur hún dregið úr verð­bólgu­þrýst­ingi, eins og bent er á skýrslu hag­fræði­deildar Lands­bank­ans í dag, og pen­inga­stefnu­nefnd hefur einnig fjallað í fund­ar­gerðum, sem birtar eru tveimur vikum eftir vaxta­á­kvörð­un­ar­dag. Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands eru nú 5,75 pró­sent, en víð­ast hvar í heim­inum eru þeir mun lægri, eða á milli 0 og 1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár