Með næma frásagnargáfu að vopni í Rússlandi

Skapti Hall­gríms­son blaða­maður hefur sent frá sér fal­lega og skemmti­lega bók um þátt­töku Íslands á HM í Rúss­landi í sumar.

Það var mikil spenna á okkar heim­ili, í Kirkland, í útjaðri Seattle, þegar Ísland mætti Argent­ínu í Moskvu á HM í Rúss­landi í sumar. Vinir komu í heim­sókn.

Steve og Jennifer, sem alin eru upp í Winsconsin og St. Louis í Missouri og ekki sér­lega mikið fyrir „soccer“, voru í bláum treyjum að styðja litla Ísland gegn stjörnum prýddu liði Argent­ínu. Henry, sex ára sonur þeirra og vinur Halldórs Elí jafn­aldra síns og sonar okkar, þótt­ist vera Messi en Halldór var Jóhann Berg. Það er hans maður.

Og hann ver

Við trúðum ekki eigin augum þegar Hannes Þór Hall­dórs­son varði vítið frá Messi og Steve við­ur­kenndi, með herkjum, að þetta væri skemmti­leg íþrótt. HÚH!

Einn af stærstu atburðum íslenskrar íþrótta­sögu voru þessi augna­blik í Rúss­landi.

Þegar Ísland mætti með lands­liðið í úrslita­keppni HM, fámennsta þjóðin í sög­unni, og náði að sýna að smæðin og fámennið segir lítið um styrk liðs­heild­ar­innar.

Millj­ónir manna um allan heim horfðu svona til Íslands og íslenska lands­liðs­ins á HM. Þetta var ösku­busku­æv­in­týri á vissan hátt (Banda­ríkja­mönnum leidd­ist ekki að minn­ast á það, svo því sé til haga haldið. Hollywood hefur vænt­an­lega fylgst grannt með).

Fært í texta og myndir

Eins og með öll ævin­týri - hvort sem er í raun­heimum eða skáld­skap - þá verða þau fyrst til þegar búið er að segja frá þeim, helst með myndum og texta.

Það var mikil blessun fyrir okkur Íslend­inga að reynslu­bolt­inn í stétt blaða­mennsk­unnar, Skapti Hall­gríms­son, hafi verið í Rúss­landi þegar HM stóð yfir. Hann skrá­setti þennan stór­við­burð í íslensku íþrótta­lífi og hefur gefið út bók­ina Ævintýri í aust­ur­vegi.

Skapti hefur verið að sem blaða­maður í um 40 ár, og þar til nýlega fengu les­endur Morg­un­blaðs­ins að njóta snilli hans og næmni. Skapti er fram­úr­skar­andi sögu­maður og hefur auga blaða­manns­ins, þegar hann tekur myndir.

Þetta er sjald­gæfur eig­in­leiki.

Hann er yfir­leitt jákvæður í sinni frá­sögn, sem er eitt­hvað sem hefur alltaf fylgt hans blaða­mennsku, eins og hún horfir við mér. Fagmaður fram í fing­ur­góma.

En það er þessi næmni fyrir hinu mann­lega, þar sem Skapti skorar sín fal­leg­ustu mörk í frá­sögn­inni, svo ein­föld lík­ing sé notuð af fót­bolta­vell­inum.

Fjölskyldumót í Rússlandi

Þátttaka Íslands á HM í Rúss­landi var stór­merki­leg og þó frá­sagnir af kapp­leikj­unum séu í fyr­ir­rúmi í þess­ari skemmti­legu og vel skrif­uðu bók, þá er magnað að sjá það vel skrá­sett hversu mik­ill menn­ing­ar­við­burður þetta var í raun.

Þúsundir Íslend­inga á sama tíma í Rúss­landi. Það eitt er merki­legt og sögu­sviðið sömu­leiðis. Myndir af fögn­uði, þreytu, bláum bylgjum mann­hafs, átökum á vell­inum, kossum, návígum.

Allt sem til­heyrir dæmi­gerðu fót­bolta­móti í íslenskum veru­leika, hjá stelpum og strákum. Nema hvað þarna voru full­orðnir menn á ferð­inni, atvinnu­menn. Til­finn­ing­arnar virt­ust stundum bera þá ofur­liði, alveg eins og sést oft á mót­unum sem íslenskar fjöl­skyldur eru hluti af hvert sumar.

Sveit­ungi Skapta frá Akureyri, Aron Einar Gunn­ars­son, er fyr­ir­liði lands­liðs­ins og fer fyrir því eins og Þór með ham­ar­inn. Ég man eftir honum sem litlum gutta á íþrótta­mótum fyrir norðan, í Þórs­ara­bún­ingnum. Það sást langar leiðir að hann var efni­legur í fót­bolta og virt­ist hafa lík­am­legan styrk og kraft á við tán­ing strax sem barn. Spilaði fram­herja­stöð­una þegar ég sá til hans og það héldu honum engin bönd.

Eitt af því sem hefur ein­kennt Aron Einar - sem Skapti sýnir vel í bók­inni - er fórn­fýsi. Hann gjör­sam­lega „tæmir tank­inn“ - eins og þeir segja í Ameríku um Bruce Springsteen á tón­leikum - í leikjum. Eða deyr fyrir klúbb­inn, eins og þeir segja á Þórs­svæð­inu á Akureyri.

Góður kafli á spjöldum sögunnar

Ég efast ekki um að leik­menn Íslands hafi viljað ná betri úrslitum á HM í Rúss­landi en afrek þeirra er nú þegar á spjöldum sög­unnar, og bók Skapta er fal­legur og skemmti­legur kafli í þeirri skrá­setn­ingu. Þjóðin fyllt­ist stolti og fólk um allan heim hugs­aði hlý­lega til litla Íslands.

Bókin er eitt­hvað sem íslenskar fjöl­skyldur ættu að hafa upp í hillu til að sýna kom­andi kyn­slóðum íþrótta­æv­in­týrið íslenska á slóðum Aust­ur­víg­stöðv­anna í Rúss­landi.

Steve og Jennifer hrifust með okkur, en ég lenti í vand­ræðum með útskýr­ingar þegar ég fór að segja þeim frá því að Aron Einar hefði getað orðið hluti af „strák­unum okkar“ í hand­bolta - eins og bróðir hans - ef hann hefði lagt þá íþrótt fyrir sig. Handball, what is that?

Banda­ríkja­mönnum er ekki við­bjarg­andi þegar kemur að „soccer“ og ég tala nú ekki um hand­bolta. En þeir stóðu með okkur í ösku­busku­æv­in­týr­inu í Rúss­landi. Að minnsta kosti flestir. Hollywood tekur lík­lega brátt við sér við að segja Íslands­sög­una, og þá munu sjást tár á hvarmi eins og á góðum myndum í bók Skapta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár